Feykir - 28.09.2005, Blaðsíða 2
2 Feykir 36/2005
Bæjarstjórn Blönduósbæjar
Mótmæla ákvörðun
Símans
Bæjarstjórn Blönduós-
bæjar hefur sent frá sér
bókun þar sem harðlega
er mótmælt þeirri
ákvörðun nýrra eigenda
Símans að leggja niður
starfsstöðina á Blöndu-
ósi.
Segir meðal annars í bókun
bæjarstjórnar: „Það hefur sýnt
sig að næg verkefni eru fýrir
hendi á svæðinu í fjar-
skiptamálum og lýsir bæjar-
stjórn yfir áhyggjum með að
þjónustustig Símans á svæð-
inu versni og uppfylli ekki þær
Leiðari
kröfur sem nútímasamfélag
gerir. Bæjarstjórn skorar því
hér með á stjórnendur Símans
að ákvörðunin um Iokun
starfsstöðvarinnar verði
endurskoðuð.
Jafnframt vil bæjarstjórn
benda á að einkavæðing
ríkisfyrirtækja hefur komið
hvað verst niður á störfum á
landsbyggðinni og krefur
stjórnvöld um tafarlausar
aðgerðir í atvinnumálum á
svæðinu í samvinnu við
heimamenn."
Tölvupóstur
Einhverntíma sagði mér tölvufróður maður að allur minn
netpóstur vœri geymdur á góðum stað í kerfinu. Þessu trúði ég
auðvitað máltulega enda maðurinn ekki þekktur fyrir að gera
lítið úrþekkingu sinni á þessu sviði.
En mi renna á migtvœrgrímur. Fyrst Fréttablaðið komstyfir
rafpóst jómínu Ben, Styrmis og Jóns Steinars, því skyldu ekki
einhverjir óprúttnir aðilar eiga minn póst vistaðan á góðum
stað. Þetta er dálítið ónotalegt. Ég man ekki nema brot afþeim
netbréfum sem éghefsenten þarmá sjálfsagt fuma viðkvæmar
persónuupplýsingar og dœmi um að ég hafði liaft afskipti af
málum sem mig varðar í raun ekkert um.
Ég man í fljótu bragði eftir að hafa hvatt aðila til - og aðstoðað
við - að senda inn umsóknir í Framleiðnisjóð og Bjargráðasjóð
svo eitthvað sé nefnt og einu sinni skrifaði ég afmœlisrœðu fyrir
þriðja aðila. En viðkvœmasti rafpóstur sem égman eftirhérog
nú er minningargrein sem ég lét tilleiðast að skrifajjrir vinkonu
mína. Minningargreinin var um ömmu hennar, sem éghafði
aldrei hitt og þekkti ekki neitt. Égfékk reyndar áður upplýsingar
um komma.
Mér líður vissulega ögn skár eftir að hafa tekið afskarið og
játað þetta. En svona til öryggis. Þið sem hafið fengið frá mér
tölvupóst með viðkvœmum persónuupplýsingum. Vinsamlegast
eyðið bœði fimgraförum mínum ogFeykis áður en það verður of
scint.
Meðfyrirfram þökk,
Árni Gunnarsson
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum
Feykir
Úlgefandi:
Feykirhf
Skrifslofa:
Aðalgötu 21,
Sauðárkróki
Bladstjórn:
Árni Gunnarsson, Áskell
Heiðar Ásgeirsson,
Guðbrandur Þorkell
Guðbrandsson, Herdis
Sæmundardóttir og Jón
Hjartarson.
Ritsljóri &
ábyrgðarmaður:
Árni Gunnarsson
arnig@krokur.is
Sími 455 7100
Blaðamenn:
ÓliArnar Brynjarsson
PéturIngi Björnsson
feykir@krokur.is
Simi 453 6001
Póstfang Feykis:
Box 4, 550 Sauðárkrókur
Askriftarverð:
210 krónur hvert tölublað
með vsk.
Lausasötuverð:
250 krónur með vsk.
Setning og umbrot:
Hinirsömu sf.
Prentun:
Nýprent ehf.
Eins og sjá má er billinn erilla farinn.
Hálka í Skagafirði um helgina
Beint í ruslið!
Bíll í eigu Suðurleiða
ehf. á Sleitustöðum í
Skagafirði hafnaði utan
vegar í hálkunni í gær.
Óhappið átti sér stað
skammt frá afleggjaranum að
Geldingarholti á veginum um
Langholtið.
Ekki urðu slys á fólki en
bíllinn er talinn ónýtur.
Óhappið varð fyrir hádegi á
laugardag í krapa og hálku.
Billinn snérist og hafnaði á
ruslagámi er stendur við
veginn ogýtti honum nokkuð
á undan sér áður en hann
stöðvaðist.
Samstarf_____________
Hólaskóli og
Textflsetrið
Textílsetur íslands og
Háskólinn á Hólum stefna
að samstarfi um eflingu
rannsókna, menntunar
og almennrarfræðslu um
íslenskan textílarf.
Þetta verður gert með
heimsóknum og námsdvöl
nemenda Hólaskóla við
Textílsetur íslands á Blöndu-
ósi, með þátttöku Hólaskóla
í rannsóknaverkefnum,
menningarviðburðum og
fræðslustarfi við Textílsetur
íslands og með aðgengi
starfsfólks Hólaskóla að þeirri
starfsaðstöðu er Textílsetur
íslands býður uppá. Þetta
kemur fram á heimasíðu
Hólaskóla.
Fljótin_________________________
Alger ótíð síðustu daga
Eins og flestum er
kunnnugt fór að snjóa í
héraðinu í síðustu viku. í
Fljótum gerði grátt á
fimmtudag og eftir það
snjóaði með nokkrum
hléum allt til sunnudags-
kvölds.
Þetta áhlaup hafði marg-
vísleg vandræði í för með sér.
Taka varð á hús sláturlömb á
nokkrum bæjurn en í sumum
tilfellum var fé og nautgripum
gefið út í gjafagrindur. Eitthvað
hefur drepist af lömbunr í
vatnsveðrinu sem fýlgdi í kjöl-
far snjókomunnar en þá var
jafnffamt mjög hvasst þannig
að fé leitaði skjóls í skurðum
sem mikið vatn og krapi stóð í.
Ljóst er að grænfóður og kál
sem nota átti til bötunar á
lömbum ódrýgist verulega.
Einnig er vafasamt að þar sem
slík beit var fyrir hendi og
ætluð mjólkurkúm muni
nýtast íhaustþvíjörðinervíða
nánast sósa eftir alla
úrkomuna.
í þessurn ótíðarkafla geta þó
þrír kornbændur í sveitinni
huggaðsig við að þeir náðu
uppskeru sumarsins með því
að slá stanslaust í heilan
sólarhring rétt áður en byrjaði
að snjóa. Eldri menn telja að
fara verði langt aftur til að finna
jafn óhagstæða haustveðráttu,
nefna í því sambandi árið 1963
þegar snjóaði verulega nrikið
um svipað leiti og nú, þá var
haustið 1979 einnig rnjög
Ieiðinlegt. ÖÞ:
Takið þátt í könnun!
Ágætu Skagfirðingar
Sendir hafa verið út spurningalistar til allra
bænda í Skagafirði. Könnun er hluti af BIRRA
verkefninu svokallaða (Broadband in Rural and
Remote Area), sem er samstarfsverkefni þjóða á
norðurslóð.
Markmiðið með því er að kanna hversu mikið
bændur og smærri fyrirtæki í dreifbýli nota netið
og tölvupóst og hvort íbúar telji að auka megi
fjarvinnslu með háhraðatengingum. Þá er jafn-
framt markmið að núðla upplýsingum um nýjustu
tæknilausnir á sviði gagnaflutninga. Innlendir þátt-
takendur eru Byggðastofnun, Póst- og fjarskipta-
stofnun, Síminn, Sveitarfélagið Skagafjörður, Isa-
fjarðarbær, Leiðbeiningamiðstöðin á Sauðárkróki
og Gallup. Auk íslendinga taka aðilar frá Skot-
landi, Svíþjóð og Finnlandi þátt í verkefninu.
Könnun sem þessi er mikilvægt framlag í stjórn-
málaumræðuna og stefnumótun um áframhald-
andi uppbyggingu fjarskiptanets í dreifbýli. Fólk
er vinsamlegast beðið um að svara könnuninni
sem fyrst og mikilvægt er að sem flestir bregðist
vel við og taki þátt.
Byggðastofnun
Upplýsingatækni
í dreifbýli