Feykir - 28.09.2005, Blaðsíða 3
36/2005 Feykir 3
Áskell Heiðar Ásgeirsson skrifar
Stefnumótun í þjónustu við
ferðamenn í Skagafirði
Ferðaþjónusta er sívaxandi atvinnugrein í heiminum
og á skömmum tíma hefur hún skotist upp á milli
"hefðbundinna" atvinnugreina hérlendis og skipað sér
sess sem mikilvægur þáttur í íslensku hagkerfi. Víða á
landsbyggðinni hefur hún þó átt erfitt uppdráttar þar
sem "háönnin" er stutt, rékstrareiningar litlar og
fjármögnun erfið.
Nákvæni úttekt á
efnahagslegum áhrif-
urn af þjónustu við
ferðamenn í Skaga-
firði er ekki til en þó
er ljóst að þjónusta
við þá ferðamenn sem
sækja fjörðinn heim
skiptir máli í rekstri
bensínstöðva, verslana, safna
og veitingahúsa, auk afþrey-
ingarfyrirtækja og gististaða
sem byggja sína afkomu á
komu ferðamanna. Eins er
ljóst að sóknarfæri felast í því
að auka straum
ferðamanna til
svæðisins og nýta
þannig betur þá
þjónustu sem hér í
boði og skapa tækifæri
fyrir aukna þjónustu.
Sveitarfélagið
Skagafjörður leggur
nú þegar miklu fjármagni til
ferðaþjónustutengdrar starf-
serni s.s. í rekstur Upplýsing-
armiðstöðvar í Varmahlíð og
Markaðsskrifstofu Norður-
lands, auk þess að verja
verulegum upphæðum í
auglýsingar á Skagafirði sem
áfangastað. Það er mjög
mikilvægt að þessuin fjár-
munum sé varið í samræmi
við ákveðna stefnu sem byggja
þarf upp í samráði við
áðurnefnda þjónustuaðila.
Með þetta að leiðarljósi ákvað
Sveitarfélagið Skagafjörður að
setja fjármagn í stefnumótun
fyrir ferðaþjónustu í Skagafirði
sem hófst sl. vor og áætlað er
að ljúki í byrjun næsta árs. í
stefnumótunarferlinu er gert
ráð fýrir að þeir aðilar sem
þjónusta ferðamenn með
einum eða öðrum hætti ásamt
áhugafólki um ferðaþjónustu
og fulltrúar sveitarfélagsins
korni sarnan til að skiptast á
skoðunum. Stefnt er að því að
út úr því komi leiðarvísir til
næstu ára, bæði fýrir
áðurnefnda þjónustuaðila svo
og tillaga að stefnu sveit-
arfélagsins í þessum málaflokki
til næstu ára. Umsjón með
stefnumótuninni er í höndum
fagfólks hjá ferðamáladeild
Hólaskóla.
Markmið sveitarfélagsins
með þessu starfi er tvíþætt,
annars vegar að fjölga hér
ferðamönnum og auka þannig
tekjur þjónustuaðila og
sveitarfélagsins og hins vegar
að efla enn frekar ímynd
Skagafjarðar sem svæðis sem
spennandi er að heimsækja
og einnig er spennandi
búsetukostur.
Næstu skref í stefnumót-
unni eru svonefndar málstofur
þar sem lykilaðilar í íslenskri
ferðaþjónustu, sem og erlendir
gestir munu sækja Skagafjörð
heim til að ræða ferðaþjónustu
frá mismunandi sjónarhorn-
um. Meðal þessara gesta eru
Ársæll Harðarson, forstöðu-
rnaður markaðssviðs Ferða-
málaráðs, Rögnvaldur Guð-
mundsson.ferðamálaráðgjafi,
Audun Pettersen, ferðamála-
ráðgjafi frá Noregi, Helgi
Gestsson, forstöðumaður
Ferðamálaseturs íslands og
Svanhildur Konráðsdóttir,
sviðsstjóri menningar- og
ferðamálasviðs Reykjavíkur-
borgar.
Þjónusta við ferðamenn og
fjölgun ferðamanna er ekki
einkamál fárra aðila, því vil ég
að hvetja alla sem reka
þjónustu sem hagnast getur af
komu ferðamanna hingað svo
ogáhugafólkumferðaþjónustu
til að fjölmenna í þessar
málstofur sem haldnar verða á
Hólum (nánar á www.holar.
is. Eins hvet ég sömu aðila til
að fýlgjast vel með auglýsingum
um næstu fundi í
stefnumótunarferlinu sent
auglýstir verða fljótlega.
Áskell Heiðar Ásgeirsson
Sviðsstjóri Markaðs- og
þróunarsviðs hjá
Sveitarfélaginu Skagafirði
gomsæ
^ hjá/Jóní/Vcuv
Lambakjöt er tilvalið tif upp-
skriftagjafar þessa dagana því
nú er hægt að fá bæði ferskt
og frosið kjöt. Við byrjum á
afskaplega góðum rétti úr
lambaskönkum sem er ódýr
en góður matur.
Lambaskankar með
soðsósu og
kjúklinga ba unasalsa
4 stk. lambaskankar (snyrtir)
2 stk. gulrætur (skrældar)
2 stk. laukur (skrældir)
2 stk. blaðlaukur (hreinsaður)
sellerírót (ca. 200g skræld)
I stk. hvítlaukur (skrældur)
I tsk. rósmarín
1 tsk. timian
3 stk. lórviðarlauf
1/2 stk. sítróna (safi)
2 msk. hunang
Við fáurn okkur stóran pott og
hitum hann og meðan hann
hitnar skerum við grænmetið í
grófa bita, síðan fáum við
okkur góða olívuolíu og
brúnum kjötið í pottinum vel
á öllum köntum og bætið
grænmetinu útí og brúnið það
einnig. Að síðustu setur maður
hunang og sítrónusafa ásamt
kryddjurtum í pottinn og
síðan hellurn við köldu vatni
yfir þar til flýtur yfir. Kjötið er
soðið við vægan hita í ca. eina
og hálfa klukkustund.
Soðsósa
20g laukur (saxaður)
20g sveppir (saxaður)
20g sellerí (saxaður)
2msk. saxaðar ferskar kryddjurtir
- má innihalda basil, rósmarin,
koriander og steinselju
250ml rauðvín
Grænmetið er svissað í potti þar
til það er mjúkt, hellið rauðvín-
inu yfir og sjóðið þar til borðið í
pottinum hefúr lækkað unt
helming. Þá er kn'ddjurtunum
bætt útí ásamt 500ml af soðinu
af lambakjötinu. Smakkað til
með salti og pipar og þykkt með
maizina-mjöli eftir smekk.
Kjúklingabaunasalsa
200g kjúklingabaunir
2 msk olivuolía
2 stórir tómatar (fræin tekin úr og
tómatarnir grófsaxaðir)
Istk laukur (saxaðir)
2stk hvítlauksrif(söxuð)
I stór gulrót (söxuð)
I sellerístilkur (saxaður)
1/2 tsk timian
600ml lambasoð
2 tsk lárviðarlauf
10 stk basillauf (fersk)
50g capers
Baunirnar eru lagðar í bleyti
yfir nótt. Grænmetið saxað,
pottur settur yfir til hitunar og
olívuolían sett í pottinn og
grænmetið brúnað í því. Þá er
baununum bætt útí ásamt
kryddjurtum og tómötum og
soðinu hellt yfir. Pottinum er
lokað nteð þéttu loki og látið
sjóða rólega þar til baunirnar
eru orðnar rneirar.
Söxuðunt basillaufum og
capers er bætt útí réttinn áður
en hann er borinn fram.
Lambaskankarnir berist frarn
með salsanu og sósunni en
einnig er gott að hafa kartöflur
og salat eftir sntekk hvers og
eins. Verði ykkur að góðu!
Kveðja, Jón Daníel
molar
Hjólabrautá leikskóla-
lóðina á Blönduósi
Það stendur rnikið til á lóð
Leikskólans Barnabæjar á
Blönduósi. Þar hafa verið
stórvirk tæki á ferðinni og
grafið upp og fyllt í aftur
enda stendur til að leggja þar
hjólabraut mikla.
Hjólabrautin mun verða
hellulögð og hefur verið
jarðvegsskipt þar sem hún
verður lögð. Þessa stundina
er ekki hægt að gera mikið
þar sem snjóað hefur talsvert
síðan hellurnar komu á staðinn
en það fer væntanlega að
hlána í næstu viku þannig að
hjólabrautin verður vonandi
vígð með viðhöfn mjög
fljótlega.
Danskir nemendur
heimsækja Árskóla
Laugardaginn 24. september
komu 26 danskir nemendur
ásamt kennurum frá Hastrup-
skole í Koge í heimsókn.
Síðastliðin 8 ár hefur
Árskóli verið í samstarfi við
Hastrupskole í Koge, sem
er vinabær Sauðárkróks í
Danmörku. Hafa nemendur í
10. bekk Árskóla tekið á móti
dönsku nemendunum að
hausti og heimsótt þá að vori.
Þessu samstarfi var upphaflega
komið á til að efla dönskuáhuga
nemenda okkar.
Þessi samskipti hafa einnig
haft jákvæð áhrif á félagsstörf
10. bekkinga þar sem þau
vinna hörðum höndum að
fjáröflun og undirbúningi
heimsóknanna.
málstofa
Ferðaþjónusta:
stefnumótun og
samstarf
í tengslum við vinnu að
stefnumótun ferðaþjónustu í
Skagafirði hefur Ferðamála-
deild Hólaskóla ákveðið að
bjóða ferðaþjónustuaðilum
og öðrum íbúum Skagatjarðar
sem áhuga hafa á ferðaþjónustu
til opinnar málstofu haustið
2005.
Málstofan ber yfirskriftina
Ferðaþjónusta: stefnumótun
og samstarf og henni er ætlað að
vera innlegg í þá umræðu sem
Skagfirðingar eiga nú varðandi
uppbyggingu ferðaþjónustu í
héraðinu.
Þann 10. október næstkomandi
mun Ársæll Harðarsson,
forstöðumaður markaðssviðs
Ferðamálaráðs Islands halda
fyrirlestur og fjallar hann um
þýðingu landsbyggðarinnar
fyrir íslenska ferðaþjónustu.
Sjá nánar á www.holar.is