Feykir - 28.09.2005, Qupperneq 7
36/2005 Feykir 7
Guðmundur Valtýsson skrifar_
Vísnaþáttur 414
Heilir og sælir lesendur góðir.
Að gefnu tilefni er rétt að taka
fram að lokavísa síðasta þáttar er
eftir Einar Kolbeinsson.
Ingi Steinar Gunnlaugsson
skólastjóri á Akranesi yrkir svo,
staddur á veitingahúsi.
Ég er afar skrýtin skepna
skemmti mér í heimi Ijóða.
En lýkist stundum Leifi heppna
og lendi á Vínlandinu góða.
Ekki fer alltaf eins og menn vona
eftir næstu vísu Inga að dæma.
Ekki þáðir þú hjá tnér
að þreyja í nœturhúmi.
Þótt hlíðu mína ég hyði þér
bœði í tíma og rútni.
Þar sem nú er enn eitt
norðanhríðaráhlaupið er þessi
þáttur er í smíðum er við hæfi að
rifja upp þessa vísu Inga.
Ligg í híði - í leyni btð
laus við kvíða og trega.
Kveð ég níð í kuldatíð
og kœtist gríðarlega.
Ingi Steinar, sem einnig er
liðtækur limrusmiður, veltir fyrir
sér hinu íslenska fjármálaviti.
Haitn Áslákur afglapaskratti
dró önd upp úr botnlausum hatti.
Sagði við Gunttu
að salt’ana í tunnu
ogstikjana helst uttdan skatti.
Að lokum þessi ágæta limra Inga
Steinars.
Á kvöldin er konurnar attga
fer karlana stundurn að langa
Að horfa í svip
á huggulegskip
í höfninni á Grundartanga.
I síðasta þætti var aðeins minnst
á grínistan ísleif Gíslason. Þrátt
fyrir að vísur hans væru misjafnar
að gæðum, sem sumir töldu reyn-
dar að skáldið léti þær svo viljandi
frá sér fara, fór ekki á milli mála að
hann orti mjög góðar vísur. Einni
hringhendu man ég eftir nú sem
ort er um mann í Skagafirði sem
öðrum fyrr í þeirri sveit var svo
heppinn að geta bruggað brúkle-
gan landa.
Sykurgrautinn sýður Itann
sigur hlaut í landi.
Allar þrautir yftrvatm
Eiríkur brautryðjandi.
Ef mig misminnir ekki, mun
næsta vísa vera eftir Þorstein Er-
lingsson.
Holdsinsfjör og heimsins lyst
hjá þér lengi vaki.
En þegar þú hefur hana tnisst
hamsana Drottinn taki.
Eins og áður er sagt er nú illveður
um Norðurland og útvarpið
varar við snjó og hálku á öxnad-
alsheiði og Stóra-Vatnsskarði.
Við svipaðar aðstæður mun Egill
Jónsson eitt sinn hafa átt erindi á
bæjarskrifstofu Húsavíkur, og þá
dottið þetta í hug.
Nú er hálka, hvar umfold égfer,
íjjörunni þó nógur sandur er.
I einlœgni þœr bœnirfram ég ber
að bœjarstjórnin detti á undan tttér.
Hryllilegar fréttir berast nú utan
úr hinum stóra heirni, þar sem
fellibyljir valda gríðarlegum
flóðum sem granda flestu af því
sem fyrir verður. Eitt sinn er mikil
vatnsflóð urðu á Skáni var sérstak-
lega tekið fram í blöðum að engir
íslendingar væru á flóðasvæðu-
num. Urn þau tíðindi orti Bene-
dikt Axelsson svo.
Ég Iteld aðflóð
ífjarlægum löndum
ei Frónbúum stúti.
Því þeir eru vanir
aðfara áfjörur
viðfljóðin þarna úti.
Og við þyrftum heldur
ekkert að óttast
þótt aldrei þau sjatni.
Þvt ef Frónbúinn druknaði
yrði það alltaf
í öðru en vatni.
Einhverju sinni birtist í Morgun-
blaðinu eftirfarandi fyrirsögn.
Ólafur sakaður um undanslátt
- Einar utn svik.
Benedikt sá að þarna var á ferð
ágætis vísubotn og var fljótur að
bæta framanvið.
Stjórnin Itefur alltaf átt
erfttt um vik.
Það mun hafa verið Theodóra
Thoroddsen sem orti þessa.
Gleðisjóinn geyst ég fer
þó gutli sorg und kíli.
Vonitta læt ég Ijúga að ntér
og lift á henni í bili.
Jóhannes Benjamínsson frá
Hallkelsstöðum er eins og margir
vita snjall hagyrðingur. Benjamín
faðir hans var ekki síðri við rímið.
Eftir hann mun vera þessi vísa.
Áður þjóðin þjáða hljóð
þráði óð utn hetjudáð.
Kváðu fróðir kjarnyrt Ijóð
kljáðu góðatt söguþráð.
Hinn kunni hagyrðingur Þor-
móður Pálsson frá Njálfsstöðum
mun hafa ort þessa.
Auðna breytist orkaþver
árin þeyta tímans hjóli.
Htigur þreytist, ævin er
orðin leitað hvíld ogskjóli.
Gaman væri að fá frá lesendum
fleiri vísur eftir Þormóð, eða eit-
thvað annað efni fyrir þáttinn, þá
kannski helst sem tengist þeim
hausttíma sem nú ríkir.
Verið þar með sæl að sinni.
Guðmundur Valtýsson
Eiríksstöðum,
541 Blönduósi.
S: 452-7154.
íþróttafréttír
Þórarinn Eymundsson varð hestaíþróttamaður Skagafjarðar i opnum flokki.
Uppskeruhátíð skagfirskra hestamanna
Þórarinn
Um 700 manns sótti
Uppskeruhátíð skag-
firskra hestamanna
síðastliðið föstudags-
kvöld og var verulega
kátt í reiðhöllinni og
létu menn það ekkert
slá sig út af laginu þótt
veðrið væri kuldalegt.
Útnefndir voru hesta-
íþróttamenn Skagafjarðar
2005. í barnaflokki hlaut
titilinn Pétur ÖIi Þórólfsson
á Hjaltastöðum, í unglinga-
flokki Eyrún Ýr Pálsdóttir á
Flugumýri II, í ung-
mennaflokfd Heiðrún Ósk
Eymundsdóttir í Saurbæ og
í opnum flokki Þórarinn
Eymundsson, reiðkennari á
Hólum.
Hæst dæmda kynbóta-
hross ársins í Skagafirði var
Tindur frá Varmalæk í eigu
þeirra Björns og Magneu á
Varmalæk og ræktunarbú
ársins var Miðsitjuhestar
ehf, annað árið í röð, en það
Jóhann Skúla hlaut viðurkenningu.
númer 1
eru þau Sólveig Stefánsdóttir
og Jóhann Þorsteinsson sem
standa fyrir því búi. Það
hefur skapast sú hefð að
heiðra þá skagfirsku
ræktendur sem ræktað hafa
hross er ná tiltili á
Heimsmeistaramóti og það
sama á við um skagfirska
keppnismenn. í þetta sinn
var þeim Ásdísi og Einari á
Syðra-Skörðugili veitt
viðurkenning fyrir stóð-
hestinn Prins frá Syðra-
Skörðugili, en Sigurður
Straumfjörð Pálsson varð
heimsmeistari ungmenna í
lOOnt flugskeiði á Prinsi s.l.
sumar.
Jóhanni R. Skúlasyni,
Sauðkrækingi og Skagfirð-
ingi, var einnig veitt viður-
kenning fyrir einstakan
árangur, en hann varð í
þriðja sinn heimsmeistari í
tölti s.l. suntar eins og alþjóð
veit.
Sjá nánar á www.horse.is
Miðsitjuhestar voru ræktunarbú ársins.
Knattspyrna__________
Gísli og
Bjarki í liði
ársins í 2.
deildinni
í síðustu viku var val á
liði ársins í 1. og 2. de-
ild karla í knattspyrnu
opinberað á skem-
mtistaðnum Broadway
í Reykjavík.
Það var fótboltafrétta-
síðan fótbolti.net sem stóð
fyrir kjörinu og voru tveir
leikmenn Tindastóls í liði
2. deildar, markmaðurinn
Gísli Eyland Sveinsson og
varnarjaxlinn Bjarki Már
Árnason.
Valið fór þannig fram að
fyriliðar og þjálfarar allra
liða í deildinni völdu lið
þeirra ellefu leikmanna sem
þeim fannst hafa staðið sig
best í sumarfekki mátti vel-
ja leikmann úr eigin liði).
Einnig var þjálfari ársins
valinn ásamt efnilegasta
leikmanni og þeim besta.
Þess má geta að Rúnar
Már Sigurjónsson (15 ára)
sem lék sína fyrstu leiki fyrir
meistaraflokk Tindastóls
í sumar fékk atkvæði í vali
á efnilegasta leikmanni de-
ildarinnar. Þá fékk Serbinn,
Ilic Mladen, sem einnig lék
með Stólunum í surnar at-
kvæði sem sóknarmaður í
lið ársins.
www. skagafjordur. com/tindastoll
Körfuboltinn_________
Kanamál
Stólanna
Þessa dagana er verið
að vinna í leikman-
namálum körfuknatt-
leiksliða Tindastóls.
Stefnt er að fá sitthvorn
leikmanninn fyrir meist-
araflokk karla og kvenna,
jafnframt sem erlenda
stúlkan mun þjálfa meist-
araflokk kvenna. Vonandi
skýrast þessi mál á allra
næstu dögum þar sem óð-
fluga styttist í mót.
smáauglýsingar Sendið smáauglýsingar til frírrar birtingar á feykir@krokur.is
Flóamarkaður
Flóamarkaðurinn verður fyrstu
helgina i nóvember.
Nánarsiðar.
Kvenfélag Sauðárkróks.
Tapað - fundið
Bíllykill afSubaru tapaðist á
Sauðárkróki eða Varmahlíð!
Vinsamlega látið mig vita efþið
finniðhann isíma8612528
Til sölu
Suzuki Grand Vitara árgerð 1998
tilsölu. Liturgrásans, ekinn 115
þúsundkm. Mjög velmeð farinn.
Upplýsingar í síma 899 4016.
Jón Grétar.
Hjól í óskilum
Hvitt og blátt kvennmannsreiðhjól
tapaðist við Hásæti 5 á
Sauðárkróki (Dvalarheimili
aldraðra). Finnandi hafi samband
við Tamöru.