Feykir - 07.12.2005, Side 1
Starfsmenn Stiganda við vinnu sina. Páll Marteinsson, Þorgils Magnússon, Stefán Pálsson og Sigurður Smári Garðarsson. Mynd: AG.
Áform um 300 starfsmanna álver kynnt í janúar_
Ákvörðun um staðar-
val í byrjun mars
Kanadíski álrisinn Alcoa ætlar að kynna um mánaðarmót
febrúar/mars á næsta ári hvaða sveitarfélag því þykir
fýsilegast fyrir væntanlegt álver fyrirtækisins á Norðurlandi.
Um 300 manns munu starfa við álverið ef af byggingu þess
verður.
Fulltrúar sveitarfélaga á
Norðurlandi, sem heimsóttu
höfuðstöðvar Alcoa í Montreal,
komu til landsins á sunnudag,
eftir að hafa kynnt sér starfs-
semi fyrirtækisins og undir-
búningsvinnu fyrir mögulega
byggingu álvers. Undirbún-
ingsvinna hefur m.a. verið í
höndum ráðgjafafyrirtækisins
Nýsis og verkffæðistofúnar
Hönnunar.
Þeir staðir sem helst hafa
verið nefndir fýrir álver á
Norðurlandi eru Húsavík,
Dysnes við Eyjafjörð og Brimnes
í Skagafirði. Samstarfsnefnd
hlutaðeigandi sveitarfélaga og
fúlltrúar Alcoa munu kynna
málin fýrir íbúum svæðanna í
janúar.
Febrúarmánuður verður
síðan nýttur til að ganga
endanlega frá skýrslu um
staðarval en þar á Alcoa síðasta
orðið.
Fjárlaganefnd Alþingis_______
Hátæknisetur fær styrk
Fjárlaganefnd Alþingis
leggur á fjárlögum næsta
árs að undirbúningur að
stofnun Hátækniseturs á
Sauðárkróki verði styrktur
um 4 milljónir króna.
Formaður Fjárlaganefnd-
ar, Magnús Stefánsson, segir
þetta viðleytni til að stynkja
nýsköpun á landsbyggðinni.
Ársæll Guðmundsson,
sveitarstjóri segir styrkinn
mikla viðurkenningu á þeirri
vönduðu undirbúningsvinnu
sem hefur farið ffam hjá
sveitarfélaginu.
Hugmyndiná að Hátækni-
setri á Sauðárkróki á burtfluttur
Sauðkrækingur, Dr. Sveinn
Ólafsson eðlisffæðingur, sem
hefúr unnið náið með
Atvinnu- og térðamálanefnd
Skagafjarðar að verkefninu.
Sjá nánar bls. 3
Veiðifélag Blöndu og Svartár_
Nýtt 700m2 veiði-
hotel í Langadal
Þessa dagana eru
starfsmenn Stíganda á
Blönduósi að Ijúka við að
steypa gólfplötu undir nýtt
veiðihús fyrir veiðimenn í
Blöndu og Svartá í Austur
Húnavatnssýslu.
Veiðihúsið nýja verður 700
fermetrar að grunnfleti og
búið öllum nútíma þægindum
og væri nær lagi að nefna það
hótel en veiðihús Eins og
greint var ffá í Feyki í vor hafa
veiðimenn kvartað undan
því að hafa ekki veiðihús við
ána en hingað til hafa lengra
að komnir gestir yfirleitt gist
á hótelinu á Blönduósi eða í
gistihúsunum við Glaðheima.
Veiðihúsið verður
væntanlega fullbúið fýrir
næsta sumar. Það stendur í
landi Hólabæjar og verður úr
því gott útsýni yfir Blöndu og
Langadal.
Innheimtustöð kynnt á Blönduósi
Tekur til starfa í vor
Innheimtumiðstöð sekta-
og sakarkostnaðar á
Blönduósi tekurtil starfa í
vor. Áætlað er að 10-15
manns munu hafa atvinnu
á hinum nýja vinnustað.
Bjarni Stefánsson, sýslu-
rnaður á Blönduósi, Kristján
Þorbjörnsson, yfirlögreglu-
þjónn ásamt Þorsteini Sverris-
syni og Daða Jóhannessyni
starfsmönnum verkffæðis-
tofúnnar VKS kynntu umfang
verkefnisins, stöðu rnála og
næstu skref fyrir bæjarráði
Blönduóss á dögunum.
Ráðgert er að innheimtu-
miðstöðin verði undir sama
þald og sýslumaður og lög-
regla en þar eru reyndar einn-
ig bæjarstjórnarskriístofúr
Blönduósbæjar. Ekki náðist í
Bjarna Stefánsson, sýslumann,
en hann er í leyfi. Ágúst Þór
Bragason, formaðurbæjarráðs
segir að verkefnið sé áhugavert
og ánægjulegt. Verið sé að
móta nýja verkferla og auka
skilvirkni í innheimtu á sektar
og sakakostnaði á landsvísu.
Skagaströnd____________________
Embætti sóknarprests laust
Embætti sóknarprests á
Skagaströnd er laust til
umsóknar en séra Magnús
Magnússon, sem þjónað
hefur prestakallinu hefur
látið af störfum.
Magnús tekur við embætti
sóknarprests á Ólafsvík.
Hann stóð fýrir kveðjumessu
í Hólaneskirkju á sunndag en
hann hefur þjónað sinni sókn
við góðan orðstýr undanfarin
fimm ár.
Almenn raftækjaþjónusta
- frysti og kæliþjónusta
- bíla- og skiparafmagn
- véla- og verkfæraþjónusta
—CTeHfill chj>-
Bílaviðgerðir
hjólbarðaviðgerðir
réttingar og sprautun
Æl
bílaverkstæði
Aöalgötu 24 550 Sauóárkrókur Sími 453 5519 Fax 453 6019
Sæmundargötu lb 550 Sauðárkrókur Sími 453 5141