Feykir


Feykir - 08.01.2009, Síða 1

Feykir - 08.01.2009, Síða 1
ymwássp *’BílamáícM ~z> *7Réttiw?a.i **7jó*tA4tnbu*i DuPont Bílalakk Borgarröst 5, Sauðárkrókur Sími 453 6760 / 698 4342 Fax: 453 6761 Netfanq: malverk550@simnet.is Hólaskóli_________________________ Tillögur Hólanefndar hljóta ekki náð fyrir fjárlögum Hólanefnd sem skipuð var af menntamálaráðherra fyrir rúmu ári síðan gerði ráð fyrir að skólinn þyrfti aukalega 115 milljónir á fjárlögum 2009 til þess að endar næðu saman í rekstri skólans. Ekki var tekið tillit til þessarar tillögu Hólanefndar við gerð fjárlaga né gert ráð fyrir sérstökum fjármunum til skólans í vinnu Norðvesturnefndar. Skólinn stendur því fjárhagslega mjög illa og segir rektor að ef ekki finnst lausn á rekstarmálum skólans verði að grípa til alvarlegra aðgerða. Háskólinn á Hólum hefur verið rekinn með tapi undanfarin ár, en ríkið kom til móts við það tap með 170 milljón króna framlagi á íjáraukalögum. En til þess að koma rekstrinum í jafhvægi þurftu að koma til þessar auka 115 milljónir á ijárlögum ársins 2009. Kaflaskipti verða þegar skólinn mun verða sjálfseigna- stoftiun 1. júli á þessu ári en búist er við að aðilar sem tengjast námsbrautum skólans svo sem Bændasamtökin, Samtök atvinnulífsins.aðilar í ferðaþjónustu og fiskeldi auk sveitarfélagaáNorðurlandivestra gerist aðilar að stofhuninni auk þess sem gert er ráð fyrir að bjóða fleiri aðilum þátttöku. Aðspurður segir Skúli Skúlason að gert sé ráð fyrir að eignaraðildin verði breið. Enda sé það mikið og héraðslegt hagsmunamál að rekstur Háskólans á Hólum verði í blóma. -Málið er allt á mjög viðkvæmu stigi og er þessa dagana verið að taka reksturinn til mikillar skoðunar og finna leiðir í stöðunni. Á þriðja tug nýrra nemenda voru teknir inn í skólann nú um áramót, en stjómvöld hvöttu háskólana til að taka við nýjum nemendum í ársbyrjun. Ljóst er að niðurskurður getur ekki snúið að því að stytta annir eða senda nemendur heim. Það em einhverjir liðir í rekstri sem era þess eðlis að hægt er að taka á þeim strax en liðir sem varða líf og limi fólks er ekki hægt að ráðast í með einhveijum snöggum viðbrögðum. Við heima í héraði verðum að snúa bökum saman og klára okkar mál með bjartsýni og jákvæðn- ina að leiðarljósi, segir Skúli. Norðurland vestra Dregur úr atvinnuleysi á ný Eftir að atvinnuleysistölur fóru hratt upp á við undir lok sfðasta árs hefur staðan örlítið lagast á nýjan leik en þann 7. janúar voru 78 skráðir atvinnulausir á Norðurlandi vestra á móti 83 fyrir jól. Um áramót tóku gildi uppsagnir 8 starfsmanna í Mjólkurstöðinni á Blönduósi en ekki er vitað um aðrar hópuppsagnir sem tekið hafí gildi. Enn er eitthvað um að störf séu auglýst en þó hefur dregið úr því síðustu vikurnar. Á móti kemur að samkvæmt upplýsingum sem Feykir hefur aflað sér er ekki gert ráð fyrir stórum uppsögnum á næstunni í byggingaiðnaði hér líkt og annars staðar á landinu og í Skagafirði eru væntanleg útboð á nokkrum verkum. Nánar verður fjallað um atvinnuástandið á Norðurlandi vestra með fréttaskýringu í næsta blaði. Sauðárkrókur Steikin elduð á grillinu Rafmagnsiaust varð á Sauð- árkróki rétt fyrir klukkan sex síðdegis á gamlársdag vegna of mikils álags. Allar eldavélar bæjaríns vom þá líklega famar að elda hátfðarmatinn og þoldi kerfið það ekki. Rafmagnið komst á um hálftíma síðar á mestum hluta bæjarins en íbúar Túnahverfis fengu sitt rafmagn ekki fyrr en upp úr klukkan hálftíu um kvöldið vegna bilunar í spennistöð. Þurffi því að beita ýmsum brögðum til að elda matinn og f flestum tilfellum voru grillin dregin fram og hátíðarmaturinn eldaður á þeim. Maríanna Margeirsdóttir og Sigurlaug Valgarðdóttir grilla á gamlársdag. Norðurland vestra Arið gert upp Feykir mun næstu tvær vikurnar gera upp árið 2008 í máli og myndum. Heilt yfir var árið okkur nokkuð gott en þegar rýnt er nánar í fréttir með atburði undir lok árs í huga má sjá blikur á lofti. Okkur fjölgaði á árinu sem er gott og atvinnuleysi hefúr aukist hægar hér en á mörgum öðrum stöðum. Síðari hluti ársins verður síðan gerður upp í næsta blaði. Sjá miðopnu > —ICTeHglll ek|3— TÖLVUDEILD BORGARFLÖT 27 SAUÐÁRKRÓKI ( 455 7900 VIÐ BÓNUM 0G RÆSTUM! Daglegar ræstingar og reglubundið viðhald á bóni í fyrirtækjum og stofnunum S5I£%íí£íSI? Hringdu núna eða sendu tölvupóst Sími: 848 7007 * Netfang: siffo@hive.is Bílaviðgerðir hjólbarðaviðgerðir

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.