Feykir - 15.01.2009, Blaðsíða 3
02/2009 Feykir 3
Varaformaður fjárlaganefndar styður fíutning
heilbrigðisstofhana til sveitarfélaga
Kristján Þór styður
tillögu fundarins
Húsfyllir var og góð stemning á borgarafundinum á föstudag.
Kristján Þór Júlíusson,
varaformaður fjárlaga-
nefndar, styður heilshugar
þá hugmynd að færa
nærþjónustuna alfarið til
sveitarfélaganna. Þetta
sagði hann á fjölmennum
borgarafundi sem haldinn
var á sal FNV sl. föstudag.
Sagðist Kristján hafa þessa
skoðun sökum eigin reynslu
sem sveitarstjórnarmanns.
Fundurinn var íjölmennur og
voru ræðumenn sammála um
að nú væri komið nóg og tími
til að heimamenn spyrntu við
fótum.
Fundarmenn samþykktu
allir sem einn með háværu
lófaklappi ályktun þar sem
mótmæltvarharðlegaáformum
heilbrigðisráðherra um að
sameina Heilbrigðisstofnun-
ina Sauðárkróki öðrum
heilbrigðisstofnunum á Norð-
urlandi.
Jafnframt átaldi fundurinn
vinnubrögð ráðherra í málinu.
Þá studdu fundarmenn hug-
myndir Sveitarstjórnar Skaga-
ijarðar um að yfirtaka rekstur
Heilbrigðisstofnunarinnar á
Sauðárkróki og skoruðu á
ráðherra að setjast nú þegar að
samningaborði með sveitar-
stjórn um þá yfirtöku.
Herdís Pálmadóttir, Brynjar Pálsson og Gunnar Bragi Sveinsson fluttu ávörp.
Blönduós
Nýr vert á Árbakkanum
Björn Þór Kristjánsson hefur
tekið viö rekstri á Árbakkans
á Blönduósi. Björn Þór rekur
samhliða Árbakkanum
veitingastaðinn Pottinn og
pönnuna og félagsheimilið.
Fyrst um sinn verður
Árbakkinn einungis opinn við
sérstök tækifæri auk þess sem
grunnskólanemendur fá þar
að borða í hádeginu.
-Við verðum áfram með
pöbba og kaffihúsastemningu
á Ábakkanum og síðan verður
meiri áhersla á matinn á
Pottinum, segir Björn Þór,
sem segist vera bjartsýnn á
reksturinn. -Það hjálpar mikið
i svona rekstri að hafa eitthvað
fast í hendi eins og skólamatinn
og ég er bara bjartsýnn á
framhaldið. Pottinum og
pönnunni hefur verið
gríðarlega vel tekið síðan
staðurinn opnaði og
Árbakkinn á einnig sinn stóra
hóp reglulegra viðskiptavina.
Skagafjörður
Gunnar
Bragi vill
ritarann
Gunnar Bragi Sveinsson
sendi frá sér yfirlýsingu
í byrjun viku þar sem
hann tók af skarið og
lýsti yfir að hann sæktist
frekar eftir embætti
ritara en varaformanns
Framsóknarflokksins á
flokksþingi flokksins sem
haldið verður núna um
helgina.
Kristinn H Gunnarsson
alþingismaður
sendir Norðlendingum
og lesendum Feykis nýjdrskveðjur
með þökk fyrir samstarfið
ói liðnu dri og bestu
óskwn um að
drið í ár
verði íbúum
farsœlt og
heillaríkt.
www.kristinn.is
Alagning
fasteignaqjalda
2009 er í
undirbúningi
Mögulegt veröur aö skuldfæra fasteignagjöld
á kreditkort gjaldenda sé þess óskaö.
Þeir sem óska þess að greiða á þann máta,
vinsamlega hafið samband vió innheimtu sveitarfélagsins
í síma 455 6000 (Eybjörg Guðnadóttir)
og gefið upp kortaupplýsingar.
Einnig er hægt aó senda inn upplýsingar frá
heimasíðu sveitarfélagsins, www.skagafjordur.is,
en þar er hnappur merktur VISA eða
frá www.valitor.is/bodgreidslur
Öll önnur gjöld er sömuleiðis hægt að greiöa með kreditkortum.
Athugið að gjalddagar verða almennt átta en hægt er ef óskaö er,
að greiða gjöldin á einum gjalddaga, þann 1. maí 2009.
Skiptir engu máli hvort greitt er með kreditkortum
eða á annan máta.
Fólk er beðið um að tilkynna um kortanúmer og hvort þaó vilji einn
gjalddaga eöa fleiri meó símtali eöa með tölvupósti
á eybjorg@skagafjordur.is VISA
fyrir 26. janúar næstkomandi.
www.skagafjordur.is
• •OOCIIIDUUI
Skagafjörður