Feykir - 15.01.2009, Side 7
02/2009 FeykJr ~7
Fréttaannáll Feykis - síðari hluti
Guðmundar Karls Jónssonar.
Meðal þess sem ávallt fylgir
Húnavöku er samnefnt rit og var
það í 48. sinn sem það kom út.
Fleiri selir
Selatalningin mikla fór fram í
annað sinn á Vatnsnesi upp úr
miðjum júlí. Fleiri selir sáust nú
en árið áður eða 1125 á móti 727
árið á undan.
Sparisjóður Skaga-
fjarðar ei meir?
Þessi fyrirsögn prýddi forsíðu
Feykis um miðjan ágúst. Þá var
verið að fjalla um tillögu stjórnar
Sparisjóðs Mýrarsýslu um aukn-
ingu stofnfjár í sjóðnum með
þeim hætti að Kaupþing kaupi
sig inn og eignist 70% hlut í
sparisjóðnum. Eins og menn vita
er óljóst enn hvað verður.
Lífleg helgi
Helgina 16. - 17. ágúst var nóg
um að vera hjá íbúum á
Norðurlandi vestra hvað varðar
skemmtanir og mannamót.
Kántrýdagar á Skagaströnd,
Sveitasæla í Skagafirði, íbúahátíð
i Húnaveri, Norðurlandsleikar
æskunnar í frjálsum fþróttum,
fslandsmót í mótorkrossi og
Hólahátíð svo eitthvað sé nefnt.
Áður hafði farið fram vel
heppnuð Grettishátíð.
Höfóingleg gjöf
Listasafn Skagfirðinga fékk góða
gjöf þegar ættingjar Jóhannesar
Geirs listmálara ákváðu að
afhenda listasafninu málverk,
skissur, ljósmyndir og önnur
gögn listamannsins.
Nýr eigandi Glaóheima
Eigendaskipti urðu að Glað-
\ heimum sem er félag um húsin í
I Brautarhvamminum á Blöndu-
I ósi. Það var fyrirtækið Blanda
ehf. sem eignaðist reksturinn.
Sjóslys
Fjólmundur Fjólmundsson var
hætt kominn er Qögurra og hálfs
tonna bátur hans söldc eftir
árekstur við einhvern fljótandi
hlut f sjónum. Líklegt var talið að
um rekaviðardrumb hafi verið
að ræða. Það þótti hins vegar
umhugsunarefni hvað langur
tími leið frá því að hringt var í
aðstoð þangað til hún barst.
Einnig þótti undarlegt að enginn
tók eftir neyðarsólunum sem
skotið var á loft en hugsanlegt
var talið að fólk héldi að ein-
hverjir væru að leika sér með
flugelda.
Drangeyjarsund
Benedikt Hjartarson bakari og
sundkappi úr Reykjavík synti hið
eftirsótta og erfiða Drangeyjar-
sund. Sundið tók hann 2 klst. og
36 mínútur. Það sem þótti
eftirtektarvert var að Benedikt
dreif sig norður eftir vinnu í
bakaríinu þar sem hann vinnur
og eftir að hafa hitað sig í
Grettislauginni dreif hann sig
suður aftur þar sem hann ædaði
að leggja sig örlítið og mæta svo i
vinnuna.
Fyrsti heimsmeist-
arinn í glímu
Jóhanna Guðrún Magnúsdóttir
frá Hnjúki hampaði fyrsta
heimsmeistaratitli kvenna í
glímu á fyrstaheimsmeistaramóti
IGA sem ffam fór í Hróarskeldu
í Danmörku.
íslandsmeistari
Jóndís Inga Hinriksdóttir llára
frá Syðstu-Grund varð Islands-
meistari í langstökki á Meistara-
móti Islands sem fram fór að
Laugum í Reykjadal. Jóndfs
stökk 4,10 metra.
Nýtt nafn á nýja
heilbrigóisstofnun
Já, nýtt nafn var opinberað á
nýrri stofnun samkvæmt reglu-
gerð sem tók gildi þann 16. júlí.
Nýja stofnunin skal heita
Heilbrigðisstofnunin Blönduósi
og Sauðárkróki.
íbúum fjölgar
Samkvæmt miðársmannfjölda-
skrá Hagstofú íslands fjölgaði
íbúum á Norðurlandi vestra um
59 manns. Mest fjölgaði í
Skagafirði eða um 34 en fækkað
mest í Húnaþingi vestra um 8.
Sameining
Bæjarstjórn Blönduósbæjar
samþykkti einróma að styðja
hugmyndir samgönguráðherra
að íbúafjöldi sveitarfélaga yrði að
lámarki þúsund manns. Verði
hugmyndirnar að lögum er ljóst
að ekkert sveitarfélaganna fjög-
urra í Austur Húnavatnssýslu
getur staðið eitt og sér.
Tíu milljónir
Umsóknir um styrki úr Vaxtar-
samningi Norðurlands vestra
voru teknar fyrir í upphafi
september. Alls bárust 20
umsóknir um ijárframlög,
samtals að upphæð 48.090.000.
Tíu aðilar fengu styrki alls að
upphæð tíu milljónir.
Kalkþörungur í
Húnaflóa
10-15 manna vinnustaður gæti
orðið til verði hugmyndir að
væntanlegri kalkörungaverk-
smiðju á Hvammstanga að veru-
leika. Kalkþörunganámur sem
taldar eru vera í vinnanlegu
magni má fmna í Hrúta- og
Miðfirði þannig að ef til kæmi er
líkleg staðsetning verksmiðj-
unnar á Hvammstanga. Jón
Óskar Pétursson framkvæmda-
stjóri SSNV segir þó að hug-
myndin sé á byrjunarstigi.
Metuppskera korns
I Skagafirði og Húnavatnssýslu
voru bændur duglegir við að
rækta korn. Stefndi í algjöra
metuppskeru hvað varðar magn
á hvern hektara sem og heildar-
magn korns þar sem fjöldi
hektara sem sáð var í hefur aldrei
verið meiri.
Sjö missa vinnuna
Sjö starfsmenn Mjólkurbúsins á
Blönduósi missa vinnuna frá og
með áramótum er mjólkurbúinu
verður lokað vegna hagræðingar
í rekstri Auðhumlu. Þetta segir í
grein í Feyki þann 25. sept.
Áburóarverksmiója?
Stofnað var á Blönduósi félag urn
könnun á forsendum til áburðar-
framleiðslu. Forathugun á mál-
inu hefur gefið það til kynna að
þetta kunni að vera fýsilegur
kostur og með stofnun þessa
félags er ætíað að kanna enn
frekar hvort að þetta sé raun-
hæfúr möguleiki, sagði Arnar
Þór bæjarstjóri á Blönduósi. Fél-
agið fékk nafnið Hákjarni ehf.
Gunnar formaöur
SSNV
Gunnar Bragi Sveinsson var
kjörinn formaður SSNV á
sextánda ársþingi samtakanna
sem haldið var á Siglufirði um
miðjan september. Aðrir í stjórn
voru kosnir Elín R Líndal, Björn
Magnússon, Héðinn Sigurðsson
og Páll Dagbjartsson. Þetta var í
síðasta sinn sem Siglfirðingar
sitja þingið því þeir munu vænt-
anlega starfa með Eyfirðingum
og Þingeyingum héðan af.
Fjöldi manns í
Laxárdalnum
Mikill fjöldi manns tók þátt í
Ævintýrinu Skrapatungurétt þar
sem riðið var niður Laxárdalinn
og hann smalaður og stóðið
dregið daginn eftir f Skrapa-
tungurétt. Mikil gleði og söngur
var allsráðandi í þessu skemmti-
lega ævintýri.
Dömupjatt og mígildi
Þetta voru drykkir sem boðið
var upp á í afmæli ferðaþjón-
ustunnar í Dæli en þá voru liðin
20 ár síðan þau Víglundur
Gunnþórsson og Sigrún Valdi-
marsdóttir fóru í slíkan rekstur.
Fleiri drykkir voru á boðstólnum
með skemmtileg nöfn eins og
Sveitalúði, Bændabuna og Garg-
olía svo eitthvað sé nefnt.
Flallamnet og Feykir.is
fer í loftið
Til þess að geta sagt að fjölmenni
hafi verið þegar Feykir.is væri
opnaður þá var staðurinn valinn
með það í huga. Það var gert á
fjölmennri skemmtun í Reið-
höllinni Svaðastöðum í sambandi
við Laufskálaréttirnar að við-
stöddum um 1000 manns. Á
skemmtuninni var m.a. keppt í
skeiði og varð Sigurður Sigurð-
arson hlutskarpastur á Drífu frá
Hafsteinsstöðum á tímanum
4,63 sekúndum og setti með þvi
nýtt hallarmet.
Hrafnhildur og Bjarki
best
Á uppskeruhátíð knattspyrnu-
deildar Tindastóls voru þau
Hrafnhildur Guðnadóttir og
Bjarki Már Árnason kjörin bestu
leikmenn í kvenna- og karla-
flokki í fótboltanum.
Skaufar og vambir í
útflutning
Skaufar vambir og annar
innmatur seljast sem aldrei fýrr
og hefur margfaldast í verðmæti
enda mikil eftirspurn á þessum
afúrðum á Asíumarkaði. Að-
spurður segir Ágúst Andrésson
hjá KS að skaufarnir séu notaðir
í pottrétti og vambirnar þurrk-
aðar og notaðar Iíkt og pasta og
núðlur í ýmsa rétti.
Smalaó í snjö og blíóu
Mikið fjölmenni var í Víðidals-
tungurétt en hún er stærsta
stóðrétt landsins sé litið til fjölda
hrossa. Tveggja daga dagskrá var
í kringum réttarstörfin og koma
gestir víða að úr heiminum tii
þess að upplifa stemninguna.
Línudansarar í útrás
Nokkrar hressar konur frá
Skagaströnd héldu í haust til
Skotlands þar sem þær tóku þátt
í mikilli línudanshátíð. Forsvars-
maður hópsins er Linda Björk
Ævarsdóttir sem kennt hefúr
línudans á Skagaströnd. Lentu
þær stöllur i miklum ævintýrum
í ferðinni sem þær sögðu frá í
Feyki.
íslandsmet í
garpasundi
Hans Birgir Friðriksson frá
Sauðárkróki setti Islandsmet í
garpasundi sem fór fram í byrjun
október. íslandsmetið var sett í
flokki 55-59 ára í mjög harðri
keppni í 50 m skriðsundi.
Sparisjóóirnir standa
sterkir
SparisjóðirnirtveiráNorðurlandi
vestra í Skagafirði og Hvamms-
tanga standa nokkuð keikir,
stendur á forsíðu Feykis um
miðjan október. -Þetta eru auð-
vitað hræðilegar hremmingar en
engu að síður er staðan hjá okkur
góð og aukin innlán virka á
okkureinsoggóðvítamínsprauta,
sagði Páll Sigurðsson spari-
sjóðsstjóri á Hvammstanga.
45 milljóna búbót
Einstaklingur á Skagaströnd fékk
45 milljónir í vinning í Happ-
drætti Háskólans. Hæsti vinn-
ingur er 5 milljónir á einfaldan
miða en vinningshafmn hafði
keypt fimmfaldan rniða auk
íjögurra einfalda á sama miða.
Sundlaug af staó
Verktaki að byggingu sundlaugar
á Hofsósi kom sér fyrir með tæki
og tól sama dag og Guðmundur
Guðlaugsson sveitarstjóri Skag-
firðinga og fulltrúi Sveinbjörn
Sigurðsson hf. undirrituðu
samning um að fýrirtækið myndi
byggja laugina. Samkvæmt sam-
komulaginu var áætlað að gestir
gætu baðað sig f lauginni í
nóvember á þessu ári.
Tískustúlkan 2008
Vala María Kristjánsdóttir var
valin Tískustúlka 2008 á
lokakvöldi keppninnar sem
haldin var á Sauðárkróki. Þrek-
sportstúlkan var kjörin Inga
María Baldursdóttir. Það var
Hulda Jónsdóttir, einstæð móðir
á Sauðárkróki, sem var hug-
myndasmiður og eigandi keppn-
innar.
Segir sig frá
dreifbýlinu
Gagnaveita Skagafjarðar sendi
Fjarskiptasjóði bréf, þar sem í
ljósi fyrirkomulags á útboði og
breytinga sjóðsins varðandi
farnetsþjónustu, telji fyrirtækið
sig ekki skuldbundið að veita
þjónustu sem áður var samið
um. Gagnaveitan mun samt sem
áður halda áfram uppbyggingu á
háhraðaneti i dreifbýli, en á
sínum forsendum.
Glaumbær fær
vióurkenningu
Á uppskeruhátíð ferðaþjónustu-