Feykir


Feykir - 15.01.2009, Side 8

Feykir - 15.01.2009, Side 8
8 Feyklr 02/2009 Fréttaannáll Feykis - síðari hluti Ráóherra ætlar ekki aó bakka frá sameiningu heilbrigðisstofnanna -Hinn kosturinn aó skeróa þjónustu og hækka gjöld aðila á Norðurlandi var tilkynnt að Byggðasafn Skagfirðinga í Glaumbæ hlyti viðurkenningu Ferðamálasamtaka fslands 2008. Viðurkenningin er fyrir áralanga faglega uppbyggingu og rann- sóknir. Þyngsti tuddinn í lok október er sagt frá því að á sláturhúsi KS á Sauðárkróki var felldur þyngsti nautgripur sem lagður hefúr verið inn til þessa. Vó hann 569,6 kg í blautvigt. Æskulýðsbikarinn Hestamannafélagið Þytur í V-Hún hlaut hinn eftirsótta æskulýðsbikar LH fyrir árið 2008. Sigrún K Þórðardóttir formaður Þyts sagði að mikil alúð væri lögð í æskulýðsstarfið hjá félaginu og hverjum hesti fundið hlutverk. 33 hlutu styrk Menningarráð úthlutaði 33 aðilum á Norðurlandi vestra alls 19 milljónum í verkefnastyrki við hátíðlega athöfn í Félags- heimilinu á Hvammstanga. Hæstu styrkina hlutu Sögusetur íslenska hestsins og Ópera Skagafjarðar. Heilbrigóisstofnunin Blönduósi og Sauóárkróki í upphafi nóvember er sagt frá því að ákvörðunar sé að vænta um staðsetningu höfúðstöðva stofnunarinnar. Almennir starfs- menn þurfa ekki að hafa áhyggjur af sínum stöðum og stjórn- skipulag hinnar nýju stofnunar kemur til með að fara eftir heilbrigðisþjónustulögum. Góöuppskera Á uppskeruhátíð frjálsíþrótta- fólks í Skagafirði sem haldin var í Varmahlíð var einu íslandsmeti og átta íslandsmeistaratitlum fagnað. íslandsmetið setti Linda Björk Valbjörnsdóttir í 300m grindarhlaupi en íslandsmeist- aratitía hlutu: Jóndís Inga Hinriksdóttir langstökk, Jóhann Björn Sigurbjörnsson 60m grind, Linda Björk Valbjörnsdóttir 60m, 60m grind og 200m innanhúss, Vignir Gunnarsson sleggjukast, Gauti Ásbjörnsson stangarstökk og Vilborg Jóhann- esdóttir stangarstökk. Matís opnar Líftæknismiðja Matís á Sauðárkróki var formlega opnuð þann 19. nóvember að viðstöddu fjölmenni í Verinu á Sauðárkróld. Líffæknismiðjan er sérstaklega sett upp til að skapa vettvang fyrir öflugar rannsóknir og þróunarvinnu á sviði rann- sóknarvinnu á sviði líftækni og lífvirkra efna eða afúrða s.s. prótein, peptíð, fitusýrur, sykrur o.fl. sem notað eru í matvæla-, heilsu-, eða snyrtivöruiðnað svo eitthvað sé nefnt. Með opnun smiðjunnar ætti störfúm vísinda og tæknimenntaðs fólks í Skagafirði að fjölga. Atvinnuleysi eykst Undir lok nóvember er sagt frá því að atvinnuleysi hafi auldst á Norðurlandi vestra. Alls voru 54 á atvinnuskrá en þess skal geta að Siglufjörður er í þeirri tölu en þar ef þeir eru undanskyldir er talan 42 Stíllinn Krakkar af Norðurlandi vestra gerðu góða ferð suður í Stílinn sem er keppni félagsmiðstöðva á landinu í hárgreiðslu, förðun og fatahönnun. Stelpur í félags- miðstöðinni Frið á Sauðárkróki lentu í fyrsta sæti í förðunar- keppninni. t fatahönnunar- keppninni náðu lcrakkarnir í Óríon á Hvammstanga góðum árangri með því að landa fimmta sætinu. Sveinn Rúnar Gunnars- son Friði tók þátt í Rímnaflæði og sigraði glæsilega. Fækkar á atvinnuskrá I upphafi desember er það fært í letur að fækkað hafi um tvo á atvinnuleysisskrá á Norðurlandi vestra. Eldsneytisframleiðsla í Skagafirói Sveitafélagið Skagafjörður er komið í samband við danskan umhverfisfræðing sem hefúr verið að vinna verkefni tengd ræktun þörunga sem lífmassa. Hugsunin er að framleiða þör- ungana í eldiskerjum og hugs- anlegamættitengjaframleiðsluna við fyrirhugaða koltrefjaverk- smiðju sem losar bæði kol- tvísýring og heitt afrennslisvatn sem er nauðsynlegt til framleiðslu á þörungum. Atvinnuleysi eykst 11. desember er sagt frá því að fjölgað hafi á atvinnuskrá frá því síðast um 21 og eru því 73 atvinnulausir. Skjótum þá Nefnd skipuð af umhverfis- ráðherra skilaði af sér tillögum um hvernig ætti að bregðast við komu hvítabjarna til landsins. Lagði nefndin til að fyrir hvert dýr sem fellt verður hér á landi myndu íslensk yfirvöld kaupa kvóta af grænlenskum veiði- mönnum á móti. Að sjálfsögðu yrði veiðileyfið ekki nýtt en á Austur Grænlandi er gefinn árlega út veiðilcvóti á hvítabirni. Stór vaxtarsamningur Stjóm Vaxtarsamnings Norður- lands vestra fundaði öðru sinni um úthlutanir, byggðar á umsóknum sem áður höfðu borist. Alls bárust 27 umsóknir um tæpar 62 milljónir króna. Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, sat á þriðjudag fund með forsvarsmönnum Sveitar- félagsins Skagafjarðar og Heilbrigðisstofnunarinnar á Sauðárkróki. Á fundinum reyndu heimamenn að fá Guðlaug Þór til þess að snúa til baka með ákvörðun sína um að sameina heilbrigðisstofnunina á Sauðárkróki við FSA og fela þess f stað stjórn hennar í hendur heimamanna. Feykir settist niður með Guðlaugi eftir fundinn. Guðlaugur, nú hefúr þú verið mitt í öldudalnum síðustu vikur og mánuði það er ekki hægt annað en spyrja þig hvernig þér líði með þetta allt saman? -Mér líður mjög vel, og svo maður setji hlutina í samhengi og útskýri af hverju það er. Það er ef einhverjum finnst það skrítið með þá valkosti sem eru í stöðunni. Ég veit ekki hvort fólk hafi almennt áttað sig á þeirri stöðu sem við erum í. Það þarf að draga úr ríldsútgjöldum á næstu árum og þá er verkefni okkar í ráðuneytinu í mínum huga að halda vel utan um þá þjónustu sem við höldum úti fýrir alla íslendinga. Það er þess vegna Verkefnastyrkþegar Menningarráðs Norðurlands vestra Jólastemning í Hofsósi.

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.