Feykir - 22.01.2009, Blaðsíða 6
6 Feykir 03/2009
Norðvestlendingar ársins 2008
Harðfiskurinn hans Bangsa þykir bestur en hann er með þurrkhjail við Selasetrið.
Stella í Gröf og Sigrún á bókasafinu er miklar vinkonur Bangsa.
Bangsi segir að nú sé hann í annað sinn á ævinni orðinn barn á bryggjunni en þar
dvelur hann og hefur alla tíða dvalið löngum stundum.
Björn Þ. Sigurósson Bangsi
Hæverskur
þúsundþjalasmióur
Björn Þ. Sigurðsson
eóa Bangsi eins og
hann er kallaóur
var ásamt Stefáni
Vagni Stefánssyni
kjörinn maöur ársins
á Noróurlandi vestra.
Bangsi er hvers
manns hugljúfi og
eftir aó hafa eytt meö
honum dagparti er
blaóamaóur á því aó
maöur eins og Bangsi
þyrfti aó vera til í
hverri götu á íslandi.
-Vitleysa er þetta, tautar Bangsi
þegar blaðamaður hringir í hann
og tilkynnir honum um úrslitin í
keppninni um mann ársins. Við
komum okkur saman um að
hittast á mánudagsmorgni á
Hvammstanga og Bangsi biður
mig að koma á bókasafnið, ber
þvi að við það sé drasl heima hjá
sér. Ég hringi síðan aftur þegar
ég nálgast Hvammstanga og segi
að ég sé að koma. Bangsi er þá
staddur í Kaupfélaginu en
þangað fer hann á hverjum
morgin hittir félagana og þeir
leysa heimsmálin. Bangsi vill
reyndar meina að mikill tími fari
í að ræða ferðir til Kanaríeyja,
eitthvað sem hann hafi ekki
áhuga á.
Þegar við hittumst tekur á
móti mér glaðlegur eldri maður
með góðlegt, gott ef ekki líka
örlítið prakkaralegt blik í augum.
Ég er ekki hissa á því að þessi
maður hafi hlotið góða kosningu.
Eftir að hafa spjallað um daginn
og veginn örlitla stund komum
við okkur fyrir úti í horni á
bókasafninu og ég spyr Bangsa
hver hann sé. -Ég er einn af
þessum gömlu skrítnu mönnum
sem eru orðnir fáir, útskýrir
Bangsi. -Ég hef búið hér á þessari
þúfu allt mitt líf og verið svolítið
að dútla við veiðiskap, unnið þó
nokkuð mikið við múrverk og
síðan í rækjuvinnslunni, bætir
hann við og ég næ að daga upp
úr honum að aldurinn telji 73 ár.
Vinirnir um Bangsa
Maðurinn er hægverskur og sem
betur fer eru vinir hans allt í
kring og Karl í Forsvari laumar
að þeirri sögu að hér á árum
áður hafi Bangsi ætíð haldið
veglega upp á afmælið sitt.
-Hannáafmæliþann 18.febrúar
og daginn þá var glatt á hjalla. Að
deginum bauð Bangsi börnunum
hér á Hvammstanga í veislu þar
sem boðið var upp á harðfisk,
gos og fleira góðgæti en um
kvöldið kom fullorðna fólkið og
þá jókst nú fjörið. Ég man eftir
að hafa dansað niður úr
sokkaleistunum í afmæli hjá
Bangsa. En meginreglan var sú
að þegar karlarnir færu að syngja
þá væri tímabært fyrir börnin að
fara heim, rifjar Karl upp.
Sigríður, vinkona hans
safnstjóri bætir við. -Bangsi er
mikill barnavinur, hann kemur
hér ætíð á öskudaginn. Er þá
búinn að verka harðfisk og síðan
syngja börnin fyrir Bangsa og fá
harðfisk í staðinn. Ég man
sérstaklega eftir einu barni sem
talaði um að enginn fiskur væri
jafn góður og Bangsafiskur.
Stella í Gröf segir frá því að
Húsmæðurnar á Vatnsnesi
hreinlega gætu ekki án hans
Bangsa verið. Fyrir þær herði
hann fisk, verki signa grásleppu
og hákarl auk þess að aðstoða við
reykingu og fleira.
Það er í raun sama við hvern
talað er á Hvammstanga og í
nágrenni allir hafa sömu sögu að
segja. Sjálfur er Bangsi
hægverskan uppmáluð. Ég spyr
hann hvernig hann eyði deginum
eftir að hann hætti að vinna.
-Það eru nú í nokkuð föstum
skorðum. Ég byrja alltaf á því að
fara í Kaupfélagið að hitta kallana
þar og síðan kem ég hingað á
bókasafnið og er hér fram að
hádegi, að skoða blöðin og ræða
við fólk. Síðan skrepp ég oftar en
ekki eftir hádegið upp í Hvamm
hér ofan við bæinn. Síðan er ég
að herða fisk og verka hákarl en
mér áskotnaðist í haust 600 kílóa
hákarl en úr honum fæ ég um 60
kíló af verkuðum hákarli, segir
Bangsi. Hann bætir því við að
hann láti aldrei frá sér hákarl
nema kæsing hans sé vel
heppnuð. -Ég smakka alltaf á
hákarlinum og ef hann er ekki
góður læt ég hann ekki sjást,
segir Bangsi. Greinilega engin
tilviljun hversu vel er látið af
Bangsafisknum eins og afurðir
hans eru kallaðar.
Ert þú sjálfur eitthvað að fara á
sjó? -Já, ég geri svolítið af því yfir
sumartímann, svarar Bangsi en
Sigríður hafði áður laumað því
að mér að Bangsi væri duglegur
við aðfæra vinum ogkunningjum
í soðið.
Verslunin sjálf var safn
Annað er það verk sem Bangsi
hefur komið að en það er versl-
unarminjasafnið á Hvamms-
tanga en safnið er að stórum
hluta byggt upp af munum úr
verslun Sigurðar Davíðssonar,
föður Bangsa sem var versl-
unarmaður á Hvammstanga í
yfir 50 ár. Bangsi segir að mikið
hafi verið til að fallegum munum
þegar versluninni var lokað og