Feykir


Feykir - 19.03.2009, Page 8

Feykir - 19.03.2009, Page 8
8 Feykir 11/2009 100% endurgreiðsla virðisaukaskatts Meistarafélag byggingamanna á Norðurlandi vekur athygli á nýsamþykktum lögum sem heimila 100% endurgreiðslu virðisaukaskatts af allri vinnu iðnaðarmanna sem unnin er á byggingastað. Lögin tóku gildi frá 1. mars s.l. Vakin er sérstök athygli á að lögin ná einnig til vinnu við sumarhús. í þenslu undanfarinna ára var oft erfitt að fá iðnaðarmenn til starfa, en nú hefur orðið breyting á. Nægt framboð er nú á mjög hæfum, löggiltum iðnaðarmönnum til að sinna þessum verkefnum og því kjörið tækifæri til að ráða iðnmeistara til að sinna þeim verkefnum sem setiö hafa á hakanum. Kvittun fyrir vinnunni og aö löggiltur iðnmeistari sé í forsvari fyrir verkinu tryggir að rétt og vel sé að verki staðið og að ábyrgð sé á verkinu komi eitthvað uþþá síðar meir. MJIPQÍÍLÆl® ÞÉR/YKKUR ER BOÐIÐ í AFMÆLISVEISLU í tilefni af 100 ára afmæli Kaupfélags Vestur-Húnvetninga mun félagið bjóða viðskiptavinum sínum og velunnurum til veislu í Félagsheimilinu á Hvammstanga föstudaginn 20. mars næstkomandi. Boðið verður uppá veglega kökuveislu, ásamt því að Lóuþrælarnir og Kvæðamannafélagið Vatnsnesingur ætla að heiðra okkur með nærveru sinni. Við hvetjum alla unga sem aldna til þessa koma og gæða sér á kræsingunum og halda uppá aldarafmæli Kaupfélagsins með okkur. Dagskráin hefst kl. 16:00 og stendur til 18:00. Húsið opnar kl. 15:30. Það er ekki á hverjum degi að fyrirtæki nái þeim merka áfanga að verða aldargamalt. Viðskiptavinir Kaupfélagsins í gegnum tíðina eiga miklar þakkir skildar fyrir að þessum merka áfanga er náð. Tryggð viðskiptavina okkar við félagið og umfang daglegrar verslunar í heimabyggð eru helstu ástæður þess að fyrirtækið hefur dafnað vel þennan tíma. I dag er fyrirtækið í góðum rekstri og hefur meginstarfsemi þess verið óbreytt í eina öld. Fyrirtækið rekur kjörbúð, byggingarvörudeild og pakkhús ásamt því að eiga helmingshlut á móti Kaupfélagi Skagfirðinga í Sláturhhúsi KVH ehf. Kaupfélag Vestur Húnvetninga þakkar ykkur viðskiptin undanfarin 100 ár og Vonumst við til að eiga við ykkur ánægjuleg viðskipti í framtíðinni. NÝPRENT ehf

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.