Feykir - 19.03.2009, Page 9
n/2009 Feykir 9
Fóöur og fjör á landsbyggðinni
Léttir lund meó
hækkandi sól
Svanhildur Pálsdóttir á Hótel Varmahliö.
Um helgina fer fram dagskrá
á landsbyggðinni sem ber
heitið Fóður og fjör. Þetta er
í annað sinn sem slíkt er sett
á laggirnar og nú ætlar Hótel
Varmahlíð að taka þátt í
fyrsta sinn. Eldhúsið opnar
klukkan 19, laugardags-
kvöldið 21. mars og ætlar
Þórhildur að kokka fram
eftir kvöldi. Svo verður
slegið upp balli á eftir.
Svanhildur Pálsdóttir hótel-
stjóri á Hótel Varmahlíð segir
að í boði verði fjögurra rétta
matseðill á mjög sanngjörnu
verði og ókeypis á ballið á eftir.
-Við ætlum að leggja áherslu á
sjávarfang á matseðlinum en
bjóðum þó líka upp á
lambakjöt ásamt fleiru óvæntu
og spennandi úr Matarkistu
Skagafjarðar, segir Svanhildur.
Að sögn Svanhildar kom
hugmyndin upp í fyrra að vera
með í þessu verkefni en það
byggir á því að vera með eins
konar mótvægisaðgerðir við
Food and Fun sem fram fer á
höfuðborgarsvæðinu. -Mark-
miðið er að stimpla Hótel
Varmahlíð inn sem góðan
veitingastað á landsbyggðinni
og bjóða fólki upp á góðan
mat úr skagfirsku hráefni.
Sumarqjöf til
Skagfiröinga
Ýmislegt er á döfinni hjá Hótel
Varmahlíð á næstunni.
Svanhildur segir að í sumar-
byrjun verði boðið upp á
ókeypis salsa danskennslu og
verði það sumargjöf hótelsins
til skagfirðinga. í maí ætlum
viðaðverameðsauðburðahelgi
líkt og í fyrra en það er sam-
starfsverkefni við bændurna á
Syðri Hofdölum. Þar geta
þéttbýlisbúar fengið smá
nasaþef af sauðburði og öllu
sem því fylgir, segir Svanhildur
og að hennar sögn tókst þetta
verkefni mjög vel í fyrra þó
fleiri hefðu kannski mátt
koma.
Svanhildur er bjartsýn á
sumarið og bókanir líta vel út
og hún telur að íslendingar
eigi eftir að ferðast meira
innanlands í ár en áður.
( MENNINGARUMFIÖLLUN Feykis)
Bændasjóður Bólstaðarhlíðarhrepps í Austur-Húnavatnssýslu fékk styrk
frá Menningarráói Noróurlands vestra til þess aó taka saman og skrá
ábúendatal í Bólstaöarhlíóarhreppi 1703- 2003. Mikil vinna liggur aó baki
riti sem þessu en verlok eru áætluó nú í vor.
Ábúendatal
Bólstaöarhlíöarhrepps
Verkefnið nefnist Ábúendatal Ból-
staðarhlfðarhrepps 1703- 2003,
og er unnið á vegum Bændasjóðs
Bólstaðarhlíðarhrepps. Bænda-
sjóðurinn var stofnaður af Bjarna
Jónassyni og konu hans Önnu
Sigurjónsdóttur er lengi bjuggu
í Blöndudalshólum. Hlutverk
sjóðsins er að skrá ábúendur í
Bólstaðarhlíðarhreppi og færa
stutt æviágrip þeirra.
Sjóðnum er einnig ætlað
að safna myndum af fólki sem
hefur átt heima í hreppnum.
Gerð ábúendatals er eitt af
helstu verkefnum sem sjóðnum
er ætlað að gera og hefur verið
nokkuð lengi í undirbúningi. Það
var síðan ákveðið á fundi stjórnar
lö.apríl 2008 að ráða Guðmund
Sigurð Jóhannsson ættfræðing
á Sauðárkróki til starfsins.
Guðmundur hóf fljótlega störf og
skilaði megin hluta verksins um
mánaðarmótjan.-feb. sl. Eftirerað
lesa það saman við hreppsbækur
og aðrar heimildir eins er eftir að
skrá næstliðinn tíma.
Ætla má að sú vinna sem
eftir er taki minnst einn til einn
og hálfan mánuð og er háð að
nokkru aðgengi að gögnum.
Verklok voru áætluð í apríl næst
komandi en ólíklegt er að það
náist. Verkefnið fékk skyrkloforð frá
Menningaráði Norðurlands vestra
að upphæð 500.000, helmingur
fjárhæðarinnar var greiddur við
upphaf verksins og hinn þegar
því er lokið. Þessi styrkur skiptir
Bændasjóðinn afar miklu og gerir
raunar skráningu ábúendatalsins
mögulega, ásamt því að
Guðmundur Sigurður fékkst til þess
að taka það að sér og víkja öðmm
verkefnum til hliðar á meðan.
Bændasjóðurinn hefur undan farin
ár styrkt útgáfu sagnfræðiritsins
Stykils, sem Ingi Heiðmar Jónsson
sagnfræðingur og kennari
Svartárdalur.
hefur gefið út. Bændasjóður
Bólstaðarhlíðarhrepps hefur
vissulega næg verkefni á næstu
árum. Sem dæmi má nefna
varðveislu á stóm og merkilegu
myndasafni sem sjóðurinn á,
skráningu á æviþáttum, og mörg
fleiri áhugaverð viðfangsefni.
ÍJ ]f menningarráð
m M 1 Norðurlands vestra
( MITT LIÐ )
Maóur styöur
af einhverjum
ástæóum
Luton Town
Nafn: Sveinn Brynjar
Pálmason..
Heimili: Skógargata 2..
Starf: Deildarstjóri raftækja-
deildar Skagfirðingabúðar,
slökkviliðs- og sjúkraflutninga-
maður
Hvert er uppáhaldsliðið þitt f
enska boltanum og af hverju?
Manchester United...af því
að þeir em bestir! Hefur verið
uppáhaldsliðið mitt frá bams
aldri og höfðu frændur mínir,
ungirsem aldnirá Frostastöðum,
gn'ðarleg áhrif á val mitt hvaða
liði skildi halda með í enska...
vel valið!
Hefur þú einhvemtímann lent í
deilum vegna aðdáunar þinnar
á umræddu liði? Oft! Við karl
faðir minn og yngri bróðir minn
sem hafa nákvæmlega ekkert
vit á fótbolta og svo vinnufélaga.
Margar rimmur verið teknar
og nánast á hverjum degi
meðan deildin er í gangi. Það
er endalaust hægt að skjóta á
menn þegar þeirra liðum gengur
illa! Það em svo margir skntnir,
halda meðTottenham, Liverpool,
Arsenal eða einhveiju þaðan af
verra. Svo lenti ég í skemmtilegu
rifrildi við fjörgamlan tjalla þegar
ég var á Goodison Park. Hann
var að selja mat, ég svangur
og var á vellinum með Man
Utd húfuna mína enda á leik
með þeim daginn áður. Hann
var ekki sáttur við þetta Everton
maðurinn og neitaði að selja mér
mat en sannfærðist svo og seldi
mér þá alverstu böku sem ég hef
nokkum b'man smakkað!
Hver er uppáhaldsleikmaðurinn
fyrr og síðar? Það em og vom
auðvitað fullt af hetjum í þessu
liði. En hrokkinhærði hnokkinn
frá Wales, Ryan Giggs er ofariega
á listanum!
Hefur þú faríð á leik með liðinu
þínu? Já farið á nokkra, eina 4
leiki. 2 sigra, 1 jafntefli og ltap!
Og svo farið á leik með STÓRA
liðinu ÍUverpool-borg....Everton!
Áttu einhvern hlut sem tengist
liðinu? Já, það er eitthvað til,
leikskrár frá leikjunum, treyjur,
húfur og eitthvað smádót.
Hvernig gengur að ala aðra
fjölskyldumeðlimi upp í
stuðningi við liðið? Það gengur
bara vel, stelpumar með þetta
alveg á hreinu þó að afi þeirra
sé alltaf að atast í þeim um að
Liver.... séu bestir en þær em
skynsamarogsjá í gegnum þetta
og vita vel hvað er rétt í þessu!
Hefur þú einhvemtfmann
skipt um uppáhalds félag?
Nei, svoleiðis gerir maður ekki!
Hins vegar á maður sér annað
félag sem maður styður sem er
af einhverjum óútskýranlegum
ástæðum Luton Town!
Uppáhalds málsháttur? Margt
smátt gerir fullt af litlu!