Feykir


Feykir - 19.03.2009, Síða 9

Feykir - 19.03.2009, Síða 9
n/2009 Feykir 9 Fóöur og fjör á landsbyggðinni Léttir lund meó hækkandi sól Svanhildur Pálsdóttir á Hótel Varmahliö. Um helgina fer fram dagskrá á landsbyggðinni sem ber heitið Fóður og fjör. Þetta er í annað sinn sem slíkt er sett á laggirnar og nú ætlar Hótel Varmahlíð að taka þátt í fyrsta sinn. Eldhúsið opnar klukkan 19, laugardags- kvöldið 21. mars og ætlar Þórhildur að kokka fram eftir kvöldi. Svo verður slegið upp balli á eftir. Svanhildur Pálsdóttir hótel- stjóri á Hótel Varmahlíð segir að í boði verði fjögurra rétta matseðill á mjög sanngjörnu verði og ókeypis á ballið á eftir. -Við ætlum að leggja áherslu á sjávarfang á matseðlinum en bjóðum þó líka upp á lambakjöt ásamt fleiru óvæntu og spennandi úr Matarkistu Skagafjarðar, segir Svanhildur. Að sögn Svanhildar kom hugmyndin upp í fyrra að vera með í þessu verkefni en það byggir á því að vera með eins konar mótvægisaðgerðir við Food and Fun sem fram fer á höfuðborgarsvæðinu. -Mark- miðið er að stimpla Hótel Varmahlíð inn sem góðan veitingastað á landsbyggðinni og bjóða fólki upp á góðan mat úr skagfirsku hráefni. Sumarqjöf til Skagfiröinga Ýmislegt er á döfinni hjá Hótel Varmahlíð á næstunni. Svanhildur segir að í sumar- byrjun verði boðið upp á ókeypis salsa danskennslu og verði það sumargjöf hótelsins til skagfirðinga. í maí ætlum viðaðverameðsauðburðahelgi líkt og í fyrra en það er sam- starfsverkefni við bændurna á Syðri Hofdölum. Þar geta þéttbýlisbúar fengið smá nasaþef af sauðburði og öllu sem því fylgir, segir Svanhildur og að hennar sögn tókst þetta verkefni mjög vel í fyrra þó fleiri hefðu kannski mátt koma. Svanhildur er bjartsýn á sumarið og bókanir líta vel út og hún telur að íslendingar eigi eftir að ferðast meira innanlands í ár en áður. ( MENNINGARUMFIÖLLUN Feykis) Bændasjóður Bólstaðarhlíðarhrepps í Austur-Húnavatnssýslu fékk styrk frá Menningarráói Noróurlands vestra til þess aó taka saman og skrá ábúendatal í Bólstaöarhlíóarhreppi 1703- 2003. Mikil vinna liggur aó baki riti sem þessu en verlok eru áætluó nú í vor. Ábúendatal Bólstaöarhlíöarhrepps Verkefnið nefnist Ábúendatal Ból- staðarhlfðarhrepps 1703- 2003, og er unnið á vegum Bændasjóðs Bólstaðarhlíðarhrepps. Bænda- sjóðurinn var stofnaður af Bjarna Jónassyni og konu hans Önnu Sigurjónsdóttur er lengi bjuggu í Blöndudalshólum. Hlutverk sjóðsins er að skrá ábúendur í Bólstaðarhlíðarhreppi og færa stutt æviágrip þeirra. Sjóðnum er einnig ætlað að safna myndum af fólki sem hefur átt heima í hreppnum. Gerð ábúendatals er eitt af helstu verkefnum sem sjóðnum er ætlað að gera og hefur verið nokkuð lengi í undirbúningi. Það var síðan ákveðið á fundi stjórnar lö.apríl 2008 að ráða Guðmund Sigurð Jóhannsson ættfræðing á Sauðárkróki til starfsins. Guðmundur hóf fljótlega störf og skilaði megin hluta verksins um mánaðarmótjan.-feb. sl. Eftirerað lesa það saman við hreppsbækur og aðrar heimildir eins er eftir að skrá næstliðinn tíma. Ætla má að sú vinna sem eftir er taki minnst einn til einn og hálfan mánuð og er háð að nokkru aðgengi að gögnum. Verklok voru áætluð í apríl næst komandi en ólíklegt er að það náist. Verkefnið fékk skyrkloforð frá Menningaráði Norðurlands vestra að upphæð 500.000, helmingur fjárhæðarinnar var greiddur við upphaf verksins og hinn þegar því er lokið. Þessi styrkur skiptir Bændasjóðinn afar miklu og gerir raunar skráningu ábúendatalsins mögulega, ásamt því að Guðmundur Sigurður fékkst til þess að taka það að sér og víkja öðmm verkefnum til hliðar á meðan. Bændasjóðurinn hefur undan farin ár styrkt útgáfu sagnfræðiritsins Stykils, sem Ingi Heiðmar Jónsson sagnfræðingur og kennari Svartárdalur. hefur gefið út. Bændasjóður Bólstaðarhlíðarhrepps hefur vissulega næg verkefni á næstu árum. Sem dæmi má nefna varðveislu á stóm og merkilegu myndasafni sem sjóðurinn á, skráningu á æviþáttum, og mörg fleiri áhugaverð viðfangsefni. ÍJ ]f menningarráð m M 1 Norðurlands vestra ( MITT LIÐ ) Maóur styöur af einhverjum ástæóum Luton Town Nafn: Sveinn Brynjar Pálmason.. Heimili: Skógargata 2.. Starf: Deildarstjóri raftækja- deildar Skagfirðingabúðar, slökkviliðs- og sjúkraflutninga- maður Hvert er uppáhaldsliðið þitt f enska boltanum og af hverju? Manchester United...af því að þeir em bestir! Hefur verið uppáhaldsliðið mitt frá bams aldri og höfðu frændur mínir, ungirsem aldnirá Frostastöðum, gn'ðarleg áhrif á val mitt hvaða liði skildi halda með í enska... vel valið! Hefur þú einhvemtímann lent í deilum vegna aðdáunar þinnar á umræddu liði? Oft! Við karl faðir minn og yngri bróðir minn sem hafa nákvæmlega ekkert vit á fótbolta og svo vinnufélaga. Margar rimmur verið teknar og nánast á hverjum degi meðan deildin er í gangi. Það er endalaust hægt að skjóta á menn þegar þeirra liðum gengur illa! Það em svo margir skntnir, halda meðTottenham, Liverpool, Arsenal eða einhveiju þaðan af verra. Svo lenti ég í skemmtilegu rifrildi við fjörgamlan tjalla þegar ég var á Goodison Park. Hann var að selja mat, ég svangur og var á vellinum með Man Utd húfuna mína enda á leik með þeim daginn áður. Hann var ekki sáttur við þetta Everton maðurinn og neitaði að selja mér mat en sannfærðist svo og seldi mér þá alverstu böku sem ég hef nokkum b'man smakkað! Hver er uppáhaldsleikmaðurinn fyrr og síðar? Það em og vom auðvitað fullt af hetjum í þessu liði. En hrokkinhærði hnokkinn frá Wales, Ryan Giggs er ofariega á listanum! Hefur þú faríð á leik með liðinu þínu? Já farið á nokkra, eina 4 leiki. 2 sigra, 1 jafntefli og ltap! Og svo farið á leik með STÓRA liðinu ÍUverpool-borg....Everton! Áttu einhvern hlut sem tengist liðinu? Já, það er eitthvað til, leikskrár frá leikjunum, treyjur, húfur og eitthvað smádót. Hvernig gengur að ala aðra fjölskyldumeðlimi upp í stuðningi við liðið? Það gengur bara vel, stelpumar með þetta alveg á hreinu þó að afi þeirra sé alltaf að atast í þeim um að Liver.... séu bestir en þær em skynsamarogsjá í gegnum þetta og vita vel hvað er rétt í þessu! Hefur þú einhvemtfmann skipt um uppáhalds félag? Nei, svoleiðis gerir maður ekki! Hins vegar á maður sér annað félag sem maður styður sem er af einhverjum óútskýranlegum ástæðum Luton Town! Uppáhalds málsháttur? Margt smátt gerir fullt af litlu!

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.