Feykir - 19.03.2009, Qupperneq 11
11/2009 Feykir 11
( MATGÆPINGAR VIKUNNAR )
Hilmar og Sigurlaug kokka
Lambalærisneiöar
í tómatsoði
Þessa vikuna eru það Hilmar Fnmannsson
vélsmíðameistari hjá Vélsmiðju Alla á Blönduósi
og Sigurlaug Markúsdóttir heilbrigðisritari á
Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi sem töfra fram
dýrindis uppskriftir handa lesendum Feykis.
Þau Hilmar og Sigurlaug skora á Sigurjón Guðmundsson
og Guðríði Ólafíu Kristinsdóttur að koma með næsta
skammt.
AÐALRÉTTUR
Lambalœrisneiðar
í tómatsoði
4 stk. lambalœrisneiðar
(ca4x200gr).
1 stk. gulrót
2 stk. sellerístönglar stórir
2 stk. lárviðarlauf
Aðferð:
Skera gulrót og selierí í stóra
bita. Setja lærisneiðar í pott og
láta kalt vatn renna eins og 2 cm
yfir kjötið. Láta gulrót, sellerí
og lárviðarlauf út í og sjóða við
vægan hita í 1 '/2 klst.
Tómatsoð:
4 stk. skalottlaukar
2stL gulrœtur
V2 dl. ólífuolía
2 stk. stórir rósmarínkvistir
1 'A dl. rauðvín
1 dós maukaðir
tómatar (500gr.)
4 stk. plómutómatar
20 gr. sykur
3 tsk. blandaðar
ferskar kryddjurtir
Salt og svartur pipar úr kvörn.
Aðferð:
Afhýðið og skerið skalottlauka
í grófa bita, flysjið gulrætur og
skerið gróft. Hitið olíuna í potti
og mýkið gulrætur, skalottlauk og
rósmarín. Hellið rauðvíni yfir og
sjóðið niður um helming. Bætið
tómötum úr dós saman við ásamt
sykri og sjóðið í 20 mín. Sjóðið
vatn í potti. Skerið burt holuna
eftir stilkinn á tómötunum og
ristið kross á hinn endann. Setjið
tómatana í sjóðandi vatnið í um
10 sek og síðan strax í kalt vatn
með ísmolum. Afhýðið tómatana
og skerið hvern tómat í 4 báta,
fjarlægið kjarna og skerið bátana
í tvennt. Saxið kryddjurtirnar
. Takið kjötið upp úr soðinu og
setjið í heitt tómatsoðið. Bætið 3
dl. af kjötsoði, plómutómötum og
kryddjurtum út í. Smakkið til með
salti og svörtum pipar úr kvörn.
FORRÉTTUR
Humarsúpa
50 gr. smjör
1 stk. laukurstór, smáttskorinn
2 stk. gulrœtur stórar
smáttskornar
5 dl. vatn
5 dl. hvítvín
1-2 hvítl. rif, pressuð
(má sleppa)
2 dl. kjúklingasoð
1 msk. tómatpúrra
2 dl. rjómi
Salt eftir þörfum
Slatti afhumar
Aðferð:
Hreinsið humarinn úr skelinni
og brjótið hana í sundur (gott að
nota buffhamar). Bræðið smjörið
í potti yfir meðalhita og bætið
út í: gulrótum, lauk, hvítlauk og
humarskelinni. Látið krauma í
10 mín, hrærið af og til. Bætið
svo vatni, víni og hvítlauk saman
við, látið suðuna koma upp.
Lækkið þá hitann og sjóðið við
vægan hita í 30 mín. Látið mesta
hitann rjúka úr soðinu. Hellið
soðinu í hreinan pott í gegnum
sigti , lagt að innan með grisju.
Helhð því næst kjúklingasoðinu,
tómatmaukinu og rjómanum í
pottinn saman við og hrærið vel
og látið súpuna hitna vel. „Gott
er að sjóða humarinn þannig að
suðan rétt komi upp og setja hann
síðan saman við súpuna“, það má
gera degi áður.
Verði ykkur að góðu!
Álftgeröisbræöur meö styrktartónleika
Ekki nógu
gróðavænlegt aó
selja klósettpappír
Álftagerðisbræöur og Stefán Gisla istuði.
Stúlkurnar í 3. flokki kvenna í knattspyrnunni hjá Tindastól
stefna á utanfÖr í sumar til að taka þátt í knattspyrnumóti. Til
að eiga fyrir kostnaði hafa þær stúlkur staðið fyrir allskyns
fjáröflunum í vetur. Nú á sunnudaginn á hins vegar að ráðist
í það verkefni að halda tónleika og m.a. koma þar fram
Álftagerðisbræður og einnig ætla stúlkurnar að syngja við
undirleik Rögnvaldar Valbergssonar.
Það voru hæg heimatökin hjá tónlistarmenn til liðs við sig
stúlkunumaðfáþessafrábæru því Rögnvaldur og Pétur
Álftagerðisbróðir eiga afa-
stelpur í hópnum. Rögnvald-
ur hefur verið að æfa stúlk-
urnar en þær ætla að syngja
lögin Undir regnboganum,
sem Ingó veðurguð söng í
undankeppni Evróvision í
vetur og lagið Lífsgleði, sem
Álftagerðisbræður sungu einu
sinni.
-Þórunn dóttir mín kom
og nefndi þetta við mig og svo
kom Aðalbjörg Sigfúsar og
skipaði mér að gera þetta og
ég þorði ekki annað en að
hlýða, segir Rögnvaldur kím-
inn. -Það er gaman hjálpa
örlítið til, segir Pétur og telur
það ekki vera nógu
gróðavænlegt fyir stelpurnar
aðseljaeingönguklósettpappír.
-Það þyrfti þá að koma upp
salmonella til að græða eitt-
hvað á því. Hvort það hafi
verið erfitt að fá þá bræður til
að taka þátt segir Pétur það
ekki hafa verið. -Þeir brugðust
vel við enda höfum við gert
þetta áður. Óskar bróðir stóð í
þessu sama með strákinn sinn
á Akureyri. Þá sungum við
fyrir hann, segir Pétur og telur
að það hafi heldur ekki
skemmt fyrir að afastelpan
hans heldur með Man. Utd.
Tónleikarnir fara fram á
sunnudaginn 22. mars í sal
Fjölbrautarskólans og hefjast
kl. 16.00.
( KNAPAKYNNING 1 álJUIIJL'k
Líney María Hjálmarsdóttir
liney býr á
Tunguhálsi 2 í
Lýtingsstaðahreppi
hinum foma. Þar
starfar hún sem
tamningamaður
og er einnig
lærður reiðkennari
frá Hólum. Hún
kemur ný inn í
KS-deildina og það
með glæsibrag því
hún stóð efst eftir
úrtökuna.
Líney ætlar að tefla
fram miklum og
góðum hestum f
vetur og telur að ekkert eigi að valda þeim neinum vandræðum í
keppninni. -Þau hrosssem égtefli fram eru Vaðall frá íbishóli, Þerna
frá Miðsitju, Þyturfrá Húsavík ogTenórfrá Tunguhálsi 2. Vaðall varð
íslandsmeistari í fimmgangi í opnum flokki árið 2007 en hin eru
óreynd nema Tenór sem var gangnahesturinn hans Pabba og stóð
sig vel í því, segir Líney. Um helstu kosti hestanna segir hún; -Allt
eru þetta frábær hross en ólík, en maður kemur alltaf brosandi inn
í hesthús eftir þjálfun á þeim.
Keppnin leggst vel í Líneyju, búið að vera gaman það sem af er
keppni, gaman að vinna úrtökuna og spurð um það hvort hún vilji
koma einhverju á framfæri svara hún, -Já égvil skila miklu þakklæti
til Baldurs Sig og Guðrúnar Astrid fyrir að hýsa alltaf hrossin fyrir mig
þegar ég er að keppa.