Feykir


Feykir - 16.04.2009, Page 5

Feykir - 16.04.2009, Page 5
15/2009 Feyklr 5 Fjölbrautaskóli Norðurland vestra_ Verðlaunanemandi í rafvirkjun Árni Páll Gíslason frá Sauóárkróki hlaut á dögunum verðlaun fyrir bestan árangur í verklegum hluta sveinsprófs í rafvirkjun. Verðlaunin hlaut hann er afhent voru sveinsbréf i raf- virkjun til þeirra nýsveina sem luku sveinsprófi í rafvirkjun á Akureyri í febrúar s.l. Árni Páll útskrifaðist frá Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra 25. maí 2007 og lauk sínum námssamningi hjá Tengli ehf. Meistari hans þar var Haraldur Jón Arason. Á meðfylgjandi mynd er Helgi Jónsson formaður Raf- virkjafélags Norðurlands að afhenda Árna Páli verðlaun fyrir þennan árangur. Johan Rönning heildverslun veitti Árna einnig verðlaun fyrir frábæran árangur. Skíðasvæðið Tindastóli Góðir páskar að baki Mikil gleði og hamingja n'kti í Stólnum um páskana, fjöldi manns renndi sér á skíðum og sleðum. Farnar voru ævintýraferðir og sagðar sögur í Lambár- botnum þar sem fram kom að fyrstu jarðgöng íslandssög- unnar voru gerð þvert í gegn um Tindastól. ( ÁSKORENDAPENNINN ) Lára Gunndís Magnúsdóttir Framnesi skrifar Sveitarómantík - aó vera í sambandi Ég hafði hugsað mér að fjalla um hollt fæði og heilbrigðan lífsstíl. Ætlaði að miðla ykkur góðum ráðum til betri lífshátta. Minni sætindi, meiri hreyfing og svo framvegis. Ég settist við tölvuna mina og byrjaði. I útvarpinu varverið að tala um nútíma tækni og þægindi af hennarvöldum. Ég lagði við hlustir. „Netið" er allstaðar og fólk úti á sjó og upp til sveita notar það sér til þæginda heyrði ég glymja úr tækinu. Fyrst brosti ég í kampinn en síðan fann ég reiðina innra með mér. Ég sem bý að því er virðist ekki afskekkt átti því láni ekki að fagna fyrr en í síðustu viku að hafa viðunandi netsamband. Þetta er hálf öfugsnúið, gott netsamband í þéttbýli er sjálfsagt. l'búar dreifbýlisins sem hafa hvað mestan hag af Internetinu eiga þess ennþá ekki kost nema ástökustað. Efhringt er í ýmsar stofnanir eftir upplýsingum er undantekningalítið vísað á heimasíður og að eyðublöð séu þar að finna. Oft á tíðum er ekki hægt að ná þessum eyðublöðum út heima á nethraða snigilsins. Bændur þurfa að sinna skýrsluhaldi, bókhaldi og skila skattframtali. Til þess að það sé hægt þurfa margir þeirra að eiga athvarf í þéttbýlinu til slíkra starfa. (Takk Día) Nú árið 2009 virka silungsnetin best á mörgum bæjum í dreifbýli Skagafjarðar. Betur má ef duga skal. Það er forgangsverkefni að netvæða dreifðar byggðir svo íbúar verði í sambandi við umheiminn. Fjarnám er hugsað sem jafnrétti til náms handa íbúum dreifðra byggða. Forsenda þess ergottnetsamband. Hér í Skagafirði höfum við Farskólann sem sinnirsínu mjög vel. Ég hef í vetur stundað fjarnám og fjarkennslu með þeim hætti að keyra í Farskólann og fyrir velvilja sveitunga minna hef ég fengið aðstöðu til að hlusta á fyrirlestra í Héðinsminni. Það kostar mikla skipulagningu að stunda nám og störf með þessum hætti. Ég átti mér ósk um betra samband og hún rættist þegarégvarað skrifa þennan pistil. Sumar óskir rætast svo það er um að gera að halda áfram að eiga sér óskir. Eg skora á Helgu Harðardótturvinkonu mína á Sauðárkróki að taka við pennanum. Aðalfundur Kaupfélags Skagfirðinga Fundurinn verður haidinn laugardaginn 18. apríl 2009 kl. 9:30 í Selinu. Dagskrá samkvæmt samþykktum félagsins auk breytinga á samþykktum, seinni umferð. STJÓRNIN ,gSg . 20^ Kaupfélag Skagfirdinga

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.