Feykir - 16.04.2009, Blaðsíða 9
15/2009 Feykir 9
Feykir kynnir oddvita framboóa þeirra sem hyggjast bjóða upp á framboðslista í Norðvesturkjördæmi í komandi
alþingiskosningum. Aö þessu sinni eru þaö Guðbjartur Hannesson, Samfylkingu, og Jón Bjarnason hjá Vinstri grænum
sem svara spurningum Feykis auk Gunnars Sigurðssonar, Borgarahreyfingu, en hans svör eru á blaðsíðu 11.
Frambjóðendur í 15 spurningum
Guðbjartur Hannesson samfylkingin
-Þú ert miklu Ijótari en á myndum
Nafn? -Guðbjartur
Hannesson, kallaður Gutti
Aldur? -Fæddur 3. júní 1950 á
Akranesi, Borgfirðingur og
Hrútfirðingur að upplagi.
Staða? - Forseti Alþingis,
þingmaður og frambjóðandi.
Fjölskylda? -Kvæntur Sigrúnu
Ásmundsdóttur og eigum við
tvær dætur, Birnu og Hönnu
Maríu.
Áhugamál? -Skóla- og
félagsmál, stjórnmál, ferðalög,
íþróttir og ég er heitur
stuðningsmaður ÍA í fótbolta.
Eitt sinn skáti ávallt skáti!
Af hverju ert þú í
stjórnmálum? -Ég er alinn
upp við stjórnmálaumræðu,
daglega umræðu um hag
launafólks og réttindamál
almennings. Ég var beðinn að
fara í framboð í sveitarstjórn á
Akranesi og seinna hvattur til
að gefa kost á mér í alþingis-
kosningunum 2007 og sló til.
Hvað finnst þér
skemmtilegast að gera þegar
þú gefur pólitíkinni frí?
-Það hafa verið fáir frídagar
undanfarið. Ég nýt þess að
ferðast og á eftir að heimsækja
marga staði bæði innanlands
og erlendis. Annars nýt ég
þess líka að vera með
fjölskyldunni. Ég á yndislegan
dótturson og við þyrftum
miklu meiri tíma saman.
Hver er þín uppskrift að
góðu laugardagskvöldi?
-Rólegheita kvöld heima með
fjölskyldunni eða að hitta
félaga og vini yfir góðum
kvöldverði. Égermikill
matmaður og nýt þess að
borða góðan mat.
Hvað bók er á náttborðinu
þínu? -Það hefúr gengið lítið
að lesa undafarið nema
einhver skjöl, skýrslur og
pappíra. Á náttborðinu eru
Waiter Rent eftir the Waiter og
Þúsund bjartar sólir, Khaled
Hosseini.
Hvaða geisladisk hefur þú í
bílnum? -Mugison, Hraun,
KK, grænlenski trúbatorinn
Rasmus Lybert, Björk, Svíinn
David Strömback o.fl.
Hvaða bíómynd er í mestu
uppáhaldi hjá þér? -Hef
gaman af rómantískum
myndum sem og
sakamálamyndum. Sásíðast
Viltu vinna milljarð, mjög góð
mynd.
Átt þú gæludýr? -Nei, en er
mikill aðdáandi hunda og
hesta. í barnæsku voru kindur
á mínu heimili og ég kom oft
seint í skóla þegar ég tafðist við
að klappa lömbunum á vorin.
Lumar þú ekki á góðri sögu
úr baráttunni? -Það gengur á
ýmsu í baráttunni en oftast eru
þetta sögur augnabliksins. Ég
var þess heiðurs aðnjótandi að
vera viðstaddur eina af
myndarlegum vígslum nýrra
róbótafjósa í Skagafirðinum í
aðdraganda síðustu kosninga.
Þar þekkti fólk mig ekki vel,
heilsaði og spurði hver ég væri.
Einn kom þar og spurði hvort
ég væri frambjóðandi
Samfylkingarinnar, sem ég
játti. Það kom smá þögn en
síðan sagði hann
hreinskilningslega „þú ert
miklu ljótari en á myndum1.
Það er alltaf gaman að hitta
fólk sem ræðir hispurslaust við
okkur stjórnmálamennina.
Hefur þú alltaf kosið sama
flokkinn? -Kaus alltaf
Alþýðubandalagið en gerðist
stofnandi Samfylkingarinnar
og treysti á að sá flokkur leiði
áfram þjóðina út úr ógöngum
undir öruggri stjórn Jóhönnu
Sigurðardóttur. Ég er stoltur
að vera í þessu liði og um leið
þjónn almennings.
Ef þú værir forsætisráðherra
einn dag hvað myndir þú
gera? -Bara að
forsætisráðherra gæti á einum
degi töfrað fram úrræði til
bjargar landi og þjóð. Ég veit
betur. Starf forsætisráðherra
er gríðarleg vinna, krefst
öflugrar verkstjórnar en um
leið auðmýktar og virðingar
fyrir fólkinu í landinu. Ætli ég
myndi ekki heimsækja
kjördæmið mitt og heilsa upp
á fólk og leita samstarfs um
lausnir.
Jón Bjarnason vinstrihreyfingin - grænt framboð
Með norðlenska kóra í bílnum
Nafn? -Jón Bjarnason.
Aldur: -65 ára.
Staða: -Alþingismaður,
fyrrverandi skólastjóri á
Hólum í Hjaltadal og bóndi í
Bjarnarhöfn.
Fjölskylda: -Ingibjörg Sólveig
Kolka Bergsteinsdóttir,
þroskaþjálfi. Við eigum sex
börn: Bjarna, Ásgeir,
Ingibjörgu Kolka, Laufeyju
Erlu, Katrínu Kolka og Pál V.
Kolka. Auk þess eigum við
fimm indæl barnabörn.
Áhugamál: -Útvist og íslensk
náttúra, sögur, sagnir og
ættfræði.
Af hverju ert þú í
stjórnmálum?- Ég berst fyrir
hugsjónum félagshyggju,
jafnaðar og náttúruvemdar. Ég
vil sjálfstætt ísland með
blómlega byggð til sjávar og
sveita og leggja krafta mín
fram í þágu þessara mála.
Hvað finnst þér skemmti-
legast að gera þegar þú gefúr
pólitíkinni frí?- Heimsækja
fólk, fara í gönguferðir um kær
svæði, fara á hestbak og dansa
við frúna vals, ræl og polka.
Hver er þín uppskrift að
góðu laugardagskvöldi?
Kvöldmatur og notaleg
samverustund með öllum
börnunum mínum og
fjölskyldum þeirra.
Hvað bók er á náttborðinu
þínu?- Skagfirðingabók 2008,
Húnavöka, Pálsættin á
Ströndum og Föðurtún.
Snúður og Snælda fyrir yngstu
barnabörnin.
Hvaða geisladisk hefur þú í
bílnum? -Karlakórinn Heimi,
Rökkurkórinn, Lóuþræla,
Karlakór
Bólstaðarhlíðarhrepps,
Álftgerðisbræður og fleiri góða
kóra. Dýrin í Hálsaskógi þegar
barnabörnin eru með í för.
Hvaða bíómynd er í mestu
uppáhaldi hjá þér? - Mér
finnst alltaf gaman að sjá
íslenskar myndir, t.d. Börn
náttúrunnar. Björgunin við
Látrabjarg var fyrsta
bíómyndin sem ég sá og hún
líður mér ekki úr minni.
Draumalandið hans Andra
Snæs er mynd sem allir ættu
að sjá. Hún fjallar um
virkjana- og stóriðjuæðið og
græðgina sem því fylgdi.
Átt þú gæludýr? -Ég á hesta.
Lumar þú ekki á góðri sögu
úr baráttunni? -Við hjónin
fórum að sjá leikritið Þið
munið hann Jörund á
Hólmavík sem var afar
skemmtilegt. Það sprakk á bíl
félaga okkar og við leituðum
til kunningja að gera við
snemma á sunnudagsmorgni.
Þá kemur vinur minn
Guðmundur frá Stakkanesi og
segir: „Þið verðið að koma í
kaffi og Sissa er búin að baka
pönnukökur“.„Hvað?“ segi ég,
„svona eldsnemma á
sunnudagsmorgni?" „Já,“ segir
hann, „við eigum eiginlega
von á ykkur.“ Mér þótti þetta
forvitnilegt og við þáðum
boðið í dýrindis kaffi og
góðgerðir.
„Ég skal segja þér það, Jón, að
ég var vakinn með traustu
banki á hurðina snemma í
morgun. Við heyrðum það
bæði hjónin. Ég fór fram á
skörina og kallaði og fór síðan
út en enginn var fyrir utan. Þá
vissi ég að það myndu koma
gestir sem okkur hjónum
þætti gaman að fá í heimsókn.
Sissa fór að baka pönnukökur
og ég fann ykkur og verið þið
hjartanlega velkomin."
Þetta var góð stund.
Hefiir þú alltaf kosið sama
flokkinn? -Ég kaus
Alþýðubandalagið uns það
leið undir lok en hef síðan
alltaf kosið Vinstri græna.
Ef þú værir forsætisráðherra
einn dag hvað myndir þú
gera? -Kalla ríkisstjórnina á
morgunbæn í Hóladómkirkju.
Friðlýsa Jökulsárnar í
Skagafirði fyrir virkjunum.
Knýja fram lækkun vaxta og
afnám verðtryggingar og
henda matvælafrumvarpi ESB
út í hafsauga.