Feykir


Feykir - 14.05.2009, Qupperneq 7

Feykir - 14.05.2009, Qupperneq 7
19/2009 Feykir 7' Mynd: PéturJónsson. Ferðamenn, bæði innlendir og erlendir sem og heimamenn á Norðurlandi vestra fá notið þessarar sýningar sem styrkt er af Menningarráði Norðurlands vestra. Verkefnið hlaut kr. 250.000 sem gerði útslagið með að það fór af stað, en sækja þurfti um viðbótarstyrki til annarra aðila, vegna kynningarefnis o.fl. Þetta erfysta verkefni Hagfélagsins með listamönnunum. Lagt afstað i söngferðalag. Jarðböðin í Mývatnssveit skoðuð. Sungið sér til skemmtunar. Inda, Sitia Gunna, Beggi á gítar og Hermann á har- moniku. Fyrir aftan sitja þeir Garðar Guðjóns og Sverrir Pálsson. Eini öruggasti bindindismað- urinn í hópnum veitti vín af rausnarskap til að lífga mannskapinn. Hefur Garðar höföingslund, hellir víni í liðið, er herðirþrótt hjá hal ogsprund, horfið þið yftr sviðið. KH Heldur þótti okkur vegir slæmir á Vestfjörðum. Þar sem við höfðum æft lagið Gullvagninn, hvarflaði að sumum efi á því að hann myndi reynast vel á slíkum vegi. Efa stóran á því tel, að því treysta megi, að Gullni vagninn gefist vel á grýttum malar vegi. Bílstjórinn okkar reyndist afburða vel og vann sér óðara hylli farþeganna eins og þessar vísur sanna. Hefursanna höföings lund, hennar mrgir njóta. Um stýrið heldur styrkri mund, störfhans blessun hljóta. SH í fyrri ferðum okkar höfðum við bílstjóra er Guðmundur hét og söknuðu hans margir, þó við fengjum ekki síðri. Þökk máttu þiggja í Ijóði, með þér alltafferðast ég vil. Við söknurn þín Guðmundur góði, þú gafst marga ástæðu til. MH Sœvar er alveg sérstakur, sýnirþað með snilli. Ekur vegi öruggur, allra vinnur hylli. MH Og ein enn. Virðingu og vinsemd jók, en vandamálin eigi, sá sem vagni öruggt ók illa gerða vegi. ( MENNINGARUMFIÖLLUN Feykis) Tjarnarsalur Ráöhússins í Reykjavík Ljósmyndasýning Húnvetninga Sanna metum söngvaraust, er sálar veitir hlýju. Sjáumst aftur heil í haust og hefjum söng að nýju. Nú í vikunni hófst Ijósmynda- og útskurðasýning húnvetnskra listamanna sem sett var upp í Tjarnarsal Ráðhússins í Reykjavík. Það er Menningarráð Norðurlands vestra og Sparisjóður Hvammstanga sem styrkja þessa sýningu. Sýningin stendur til sunnudagsins 24. maí og er opin á opnunartíma ráðhússins. Ljósmyndarar em fjórir: Þeir Pétur Jónsson frá Súluvöllum á Vatnsnesi, Jón Eiríksson bóndi á Búrfelli, Jón Sigurðsson Blönduósi og Bjarni Freyr Björnsson frá Húnsstöðum. Útskurðamenn eru tveir, þeir Helgi Björnsson bóndi í Huppahlíð og Ásgeir Júlíus Ásgeirsson Víðigerði. Listamennimir og Hagfélagið standa að uppsetningunni en Óli Arnar Brynjarsson á Sauðárkróki var fenginn til að velja myndirnar og setja í samhengi. Sýningin er á besta tíma en Listahátíð Reykjavíkur stendur yfir þá daga sem Ljósmyndasýning Húnvetn- inga stendur uppi. í sumar er ætlunin að sýningin verði sett upp norðanlands og árið 2012 þegar verkefninu er lokið þá verði búið að setja hana upp í öllum sýslum á Norðurlandi vestra. Hugmyndin að verkinu kviknaði upphaflega með það markmið að eiga gott safn af fallegum og fróðlegum Ijósmyndum, til að nota við ýmis tækifæri, eins og hátíðir, sérsýningar o.fl. og verða aðgengilegt fólki. Frá ferð Sönghópsins tii Egiisstaða 2007. Að lokum kveðjuorðin er leiðir skildu í Varmahlíð. Við brunuðumfram hjá byggð ogfjöllum, blessun vorsins kyssti kinn. Nú þakka ég bæði konu og körlum, og kveð að sinni hópinn minn. SH Höfundar: SHStefán Haraldsson SG Sveinn Gíslason HJ Hermann Jónsson SJ Svavar Jónsson KÞ Kári Þorsteinsson MH María Helgadóttrir KHKristín Helgadóttir Ómerktar vísur eru höfundar Með þökkfyrirgóðanfélagsskap. Jói í Stapa Mynd: Bjarni Freyr Björnsson.

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.