Feykir - 14.05.2009, Side 9
19/2009 Feykir 9
HESTAUMFJÖLLUN FEYKIS
Magnúsi Braga Magnússyni á íbishóli finnst ekkert
gaman aó ríóa út á leióinlegum hrossum og leggur
mikla áherslu á aó rækta hross meó húmor.
íbishóll
Adrenalínió á fullri ferö
Eins og allir vita sem talað
hafa við Magnús Braga fer
þar mikill húmoristi og
leggur hann sig í líma við að
falla ekki í þá gryfju og vera
eins og allir aðrir.
Þegar blaðamaður spyr hvað
hann sé með margt á húsi,
spyr hann á móti. -Hvað viltu?
Ég er með 21 hross en ef ég á
að segja alveg satt eru þau
eitthvað fleiri.
Mörg góð hross hafa komið
upp í ræktun Magnúsar og má
fyrstan telja Feng frá íbishóli
sem sló rækilega í gegn bæði
hér heima og erlendis. -Svo
átti ég í fyrravetur eina
rauðlitförótta graðhestinn í
heiminum með fyrstu verð-
laun og fæ ég undan honum
nú í vor. En ég seldi hann til
Noregs því mig vantaði
pening, segir Magnús eða
Maggi Magg eins og hann er
oftast kallaður.
Um þátttöku í keppnum
segist hann stefna á Fjórðungs-
mót og skeiðleika hjá Skeið-
félaginu Kjarval. -Þetta félag
er gríðarleg lyftistöng fyrir
skeiðhesta og hefði þurft að
koma fyrir löngu. Við þurfum
aðhlúabeturaðskeiðhestunum
og við erum með öflugasta
skeiðhreiðrið hér í Skagafirði,
segir Magnús og finnst mjög
skemmtilegt að byrja keppni
úr startbás-unum.
-Þetta er „axjón". Adrena-
línið er á fúllri ferð. Aðspurður
um hvaða vísu hann fari oftast
með þegar hann er á baki,
hugsar Magnús sig í stutta
stund en segir svo:
Farðu hægt meðfolann minn,
fáum hann reynist þœgur.
Hann er eins og heimurinn,
hrekkjóttur ogslœgur.
Dimmalimm á Þingeyrum_
Meö tvö folöld
Að Þingeyrum átti sér stað á
mánudag sá sjaldgæfi
atburður að hryssa kastaði
tveimur folöldum.
Á vef Hestaffétta er ffásögn
Helgu Thoroddsen á Þing-
eyrum af atburðinum en þar
segir: Þegar farið var að gá að
folaldshryssum hér á bæ um
hádegið í gær þá kom í ljós að
Dimmalimm frá Breiðavaði var
að byrja að kasta. Það kom svo
sem engum á óvart þar sem
tíminn var kominn en þegar eitt
folald var komið stóð hryssan
ekki upp heldur fæddi annað
öllum að óvörum. Það var
heppni að við skildum taka eftir
þessu þar sem óvíst er að bæði
hefðu lifað án smá aðstoðar til
að byrja með. Þetta eru hryssa
og hestur undan Blæ frá Hesti
og braggast bæði vel. Hryssan
er agnarlítil en spræk og bæði
eru þau komin á spena. Hryssan
var 14 kíló við fæðingu og
hesturinn 24 þannig að saman
eru þau rúmlega meðalþyngd
venjulegs folalds.
Það er gaman að segja frá því
að það gekk mjög illa að koma
folaldi í Dimmalimm fyrst
þegar til stóð að halda henni
enda var hún þá orðin 14. vetra.
í fyrra kom svo fyrsta folaldið,
hestur undan Stála frá Kjarri
sem til varð við sæðingu og
núna er sú gamla heldur betur
búin að bæta okkur upp biðina
með því að koma í þetta sinnið
með 2 stykki, ffísk og snotur
folöld.
Pálína Hraundal í léttu Feykisspjalli
Markaóssetning
sem skilar árangri
Félag ferðaþjónustunnar í
Skagafirði vann um helgina
önnur verðfaun fyrir bás sinn
á sýningunni Ferðalög og
fnstundir sem fram fór f
Laugardagshöllinni.
Verkefnastjórar verkefnisins
fyrir hönd Skagfirðinga
voru ferðamálafræðingamir
Pálína Ósk Hraundal og
Þórður Ingi Bjamason.
Básinn var innblásinn af sögu
og afþreyingarmöguleikum
Skagafjarðar og með það fyrir
augum hófust þau Pálína og
Þórður handa við að skapa
frumlegan en jafnframt ódýran
bás. -Reiðhöllin lánaði okkur
baklandið á básnum, framhlið
af gömlum bæ sem skapaði
skemmtilega stemmingu. Við
ákváðum íframhaldinu aðsmíða
endurgerð af Nýja bæ á Hólum
en þar fékk ég til liðs við mig
listamennina sem voru meðvetk
á sýningunni Litbrigði samfélags.
Bærinn var málaður á þann
hátt að hann endurspeglaði þá
veðrun og þennan gamla anda
sem viðvildum ná ígegn, útskýrir
Pálína Ósk.
Auk hússins fengu þau
lánaðan bát hjá Ævintýraferðum
aukhnakksogreiðhjálms. -Síðan
lögðum við upp með að vera öll
í búningum sem endurspegluðu
það sem við vorum að kynna.
Sjálf var ég í reiðfötum, Þórður
var í þjóðbúningi, Selma
á Miklagarði, Jóhanna á
Steinsstöðum og Sigurður á
tjaldstæðinu í Varmahlíð voru
í göngufötum, Helga Rós í
lopapeysu og Þórhildur kokkur á
Hótel Varmahlið í kokkabúningi.
Þá var líka með okkur Bikash
Gurung, leiðsögumaður í rafting
ogvar hann sportlega klæddur.
Tilgangur ferðarinnar suður
var að markaðssetja Skagafjörð
sem áfangastað í ferðalögum
innanlands og vill Pálína meina
að markmiðinu hafi verið náð.
-Þama kom ótrúlegur fjöldi
fólks sem var að kynna sér það
sem í boði er hér innan lands
og allir sem komu á sýninguna
gerðu það með opnum hug. Það
komu í það minnsta sex aðilar
til mín sem voru að skipuleggja
hópferðir fyrir sumarið og ég
Eins og sjé mé var bérinn glæsilegur.
Stoltir verketnastjórar með verðlaunin.
Verðlaunaafhenóingin.
setti saman fyrir þá skemmtiferð
í Skagafjörð. Þannig að það er
ekki spuming að þetta skilaði
árangri, segir Pálína.
I rökstuðningi dómnefndar
segir um bás Skagfirðinga;
-Bás Skagafjarðar, sem hreppti
annað sætið, endurspeglaði vel
Skagafjörðinn, var þjóðlegur,
búningar fallegir, kynningarefni
vel sýnilegt, skemmtilegir sýn-
ingarmunir og hrossakjötið
einstaklega bragðgott.
Annasamt sumar
framundan
Pálína hefur verið ötul við að
kynna Skagafjörð, skipuleggja
ferðir og halda utan um viðburði.
En hvað skyldi vera framundan
hjá þessari athafnasömu ungu
konu?
-Núna er það aðallega ferð
með ferðafélaginu í Glerhallavík
núna um helgina. Síðan er ég
verkefnastjóri yfir Gönguvikum á
Norðuriandi ísumaraukþesssem
ég verð með útivistamámskeið
fyrir böm í SumarTlM. Síðan verð
ég á Grænlandi í sumar þar sem
égmun verða leiðsögumaður fyrir
íslenska hópa sem þangað koma.
Síðan kem égheim í nokkra daga
áður en við fjölskyldan flytjum til
Noregs en þar er ég að
fara í mastersnám í útinámi, segir
Pálína að lokum.