Feykir


Feykir - 14.05.2009, Blaðsíða 12

Feykir - 14.05.2009, Blaðsíða 12
Ertu með fréttaskot? Hafðu samband! feykh@feykir.is ogsími 455 7176 / 898 2597 / 861 9842 Dægurmálablaðið á Norðurlandi vestra 14. maí 2009 :: 19. tölublað :: 29. árgangur Óskar og stelpurnar á góðum nótum. Söngvararnir stóðu sig frábærlega. Oskar af Alftagerði klikkar sjaldnast. Mikió líf í Menningarhúsinu Miðgarði Sönglög í Sæluviku Það var hátíðarstemning í Varmahlíð í byrjun Sæluviku þegar félagsheimilið Miðgarður var tekið í notkun að nýju eftir mjög svo tímabærar endurbætur og viðhald. Þetta glæsilega hús, sem margar vinnufúsar hendur eyddu ótöldum vinnustundum í að byggja fyrir rúmum fjörutíu árum og eða gáfu til þess með öðrum hætti, hefur skipað stóran sess í vitund Skagfirðinga og skemmtanalífi þeirra og nú eru tímamót. Því var ekki laust við því talið var í og svörin fengust að það gætti verulegrar eftirvæntingar ef ekki óþreyju meðal tónleikagesta sem fylltu Miðgarð fimmtudagskvöldið 30.apríl þegar hljómsveit Stefáns Gíslasonar ásamt úrvali söngvara gekk fram á sviðið. Hvernig virkar húsið fyrir svona tónlist? Hvernig er hljóðkerflð? Lengra komust menn ekki í hugrenningunum jafnharðan. Hvert lagið á fætur öðru hljómaði undur vel í flutningi þessa frábæra listafólks sem við höíum á að skipa nánast á hverjum bæ. Pétur Pétursson sem öðrum betur kann þá list að vera skemmtilegur kynnir var síðan óborganlegur á milli laga í umfjöllun sinni um flytjendur og uppruna þeirra. Fyrri hlutinn var borinn uppi af gömlum dægurperlum í flutningi Sigurlaugar Vordísar, Dúa og Óskars P, en eftir hlé tóku ABBA mágkonurnar úr Blönduhlíðinni þær Kolla og Lína öll völd og sýndu svo um munaði að það er alveg óþarfi að hóa gamla ABBA flokknum saman á ný. Sönglög í Sæluviku er hugar- fóstur Stefáns Gíslasonar og Einars Þorvaldssonar tónlistar- kennara sem af þekktum dugnaði og færni komu á laggirnar þessari skemmtun. En það er ekki nóg að fá hugmyndir, að framkvæma þær er annað. Með koflega sínum úr tónlistarskólanum Jóa trommara og að ógleymdum Sigga í Ketu á bassa var hljóm- sveitin gríðargóð og nýja hljóðkerfið í Miðgarði fékk sína eldskírn. Strákar... og sólóin í Vegir liggja til allra átta voru ekkert smá flott. Þetta kvöld var meira en skemmtilegt, það var viðburður sem sýndi okkur og sannaði fyrir það fyrsta að breytingarnar eru vel heppnaðar, en ekki síður að vatnið er bara betra hémamegin við lækinn. Hafið þökk fyrir! Gunnar Rögnvaldsson Kristján Búi og Sigurlaug Vordís. Sigurlaug Vordís, Sigurlfna og Kolbrún sungu afinnlifun. Úrbi.syínahryggur Svínalæri 498 Svínalundir 1698 Svínahnakkirúrb. 898 Purusteik 598 Svína kótilettu r 798 Svínagúllas 998 Svínasnitsel 978 Svínabógur 359, Sfcaqfii-.ðinqahúð-

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.