Feykir - 09.07.2009, Blaðsíða 6
6 Feykir 26/2009
Góð byrjun á einhverju meiru
Skagfiróingar tóku vel
á móti Lummudögum
Fyrsta Lummuhelgin af
mörgum fór fram í
Skagafirði helgina 26. - 28.
júní og er skemmst frá því
að segja að Skagfirðingar
tóku vel í hugmyndina,
skreyttu bæ og sveit og þorp,
hátt og lágt. Lummukeppni
var haldin, keppt var um
skreytingar auk þess sem að
á íþróttavellinum fór fram
Landsbankamót Tindastóls
þar sem 600 stúlkur öttu
kappi í knattspyrnu.
Formlega hófst dagskráin
með kvöldvöku við hinn nýja
Suðurgarð á Sauðárkróki
föstudagskvöldið 26. júní.
Lummulagið var sungið við
varðeld auk þess sem félagar
úr leikfélaginu gengu á milli
áhorfenda með gjörninga og
Fúsi og Helgi sungu nokkur
lög.
Á laugardeginum stóð
síðan dagskrá frá morgni til
kvölds víða um fjörð. í
Varmahlíð var heilmikil
dagskrá sem hófst með ratleik
þar sem um 50 manns tóku
þátt, fólk á öllum aldri og jafnt
þorpsbúar sem ferðamenn af
tjaldstæðinu. Ratleikurinn dró
hópana inn í Kaupfélag að
athuga verð á spaghettí, suður
á leikskóla þar sem mála átti
börnin, inn í skóg þar sem
yrkja þurfti vísu, upp á
fótboltavöll þar sem skora
þurfti mörk og að lokum niður
að Hótel Varmahlíð þar sem
allir gæddu sér á lummum og
drykkjarföngum.
Þegar fólk hafði svalað
þorstanum og mett magann
voru veitt verðlaun í hinum
ýmsu flokkum og m.a. fyrir
bestu vísuna. Þau verðlaun
fékk hópur af fólki sem var
tjaldsvæðinu og hljómar vísan
svo:
Lummur eru gómsœtar
Skagfirðingar bjóða
með sultu og rjóma vel œtar
hlátrasköllin hljóma.
Þess má geta að allir hópar
þurftu að syngja vísuna sína í
verðlaunaafhendingunni og
við lagið Fljúga hvítu fiðrildin.
Að dagskrá lokinni héldu
Varmhlíðingar sumir hverjir í
hópferð inn á Krók en um
kvöldið var grillveisla.
Á Sauðárkróki var boðið
upp á fjölbreytta dagskrá í
Aðalgötunni. Maddömurbuðu
upp á lummur, götumarkaður
var haldinn. lummukeppni,
götulistamenn og ullarlest
Söguseturs íslenska hestsins
var á ferðinni og svona mætti
áfram telja. Um kvöldið voru
síðan götugrill út um allan
fjörð. Formlegri dagskrá lauk
með kvöldvöku í Grænuklauf á
laugardagskvöldið. Lummu-
dögum var svo slitið í Sauðár-
krókskirku á sunnudagskvöld.
Þar sungu þær Sigurlaug Vordís
og Sólveig Fjólmunds auk þess
sem ]ón Karlsson fór með sögu
kirkjunnar.
Það er skemmst frá því að
segja að öll dagskrá tókst
einstaklega vel og eru menn
því sammála um að endurtaka
leikinn að ári.
Myndir: Pálina Hraundal
"\T1h^ LISTAMIÐSTÖÐ
1 \ LulJ ARTIST RESIDENCY
Velkomin á
SOLITUDE
LANDSCAPE OPENING UP
LANDSLAG í UMRÓTI
AINAVA MAINÍBÁ
Samsýning frá íslandi - Lettlandi - og Þýskalandi
Laugardaginn 11. júlí 2009 í Gamla Kaupfélaginu
Kl. 15:00
opnun sýningarinnar
Ræður og kynning á myndlistarmönnum:
• Adolf Berndsen, oddviti Skagastrandar
• Guðrún Helgadóttir, formaður Menningarráðs Norðurlands
vestra.
• Gerllnde Creutzburg, forstöðumaður listamiðstöðvarinnar
Kiinstlerhaus Lukas í Þýskalandi.
Kl. 15:30
[airjappearance - uppákoma
Ljós - hljóð - gjörningur
Monika B. Beyer með myndband
og Lilian von HauBen með gjörning
Sýningin stendur frá 11. júlí til 30. ágúst 2009 | Opin um helgar frá 13:00-17:00 og virka daga eftir
samkomulagi.
Sýningln er styrkt af Fisk Seafood á Sauðárkróki, Menningarráði Norðulands vestra og Minningarsjóði um hjónin frá
Garði og Vindhæli.
Nes listamiðstöð | Fjörubraut 8 | 545 Skagaströnd | sími: +354 452 2816 | gsm: + 354 864 0053 | nesigineslist.is
( UPPSKRIFTIR )
aÆiaklMaíMiíDíiJiíD
Siguruppskrift Ásdísar Guómundsdóttir
í Lummukeppni Lummudaga
1 dl. spelt hveiti
V2 dl. hveiti
V2 dl. haframjöl
1 msk. hrásykur
legg
2 dl. súrmjólk
V2 dl. ólívu olía
2-3 msk. súkkulaðirúsínur
2 dl. ristaðar furuhnetur
Spelt hveiti, hveiti, haframjöli
og hrásykri er blandað saman
í skál. Eggi og mjólk hrært
út í. Olíunni hellt út í og öllu
hrært vel saman. Að lokum
er súkkulaðirúsínur settar út í
deigið.
Deigið er látið með skeið á heita
pönnu og lummumar bakaðar
Ijósbrúnar.
Þeim er raðað á fat og hrásykri
stráð yfir.
. • ,
• »,..T
* ■ •.
m ; 5
Lummukeppni við Sauðárkróksbakarí. Asdís sigurvegari lengst til hægri.
Ungir tónlistarmenn léku listir sínar í Aðalgötu.
Hestaleikhús Söguseturs íslenska héstsins stóð fyrír kaupstaðarferð.
Fúsaieg Helgi spilðuðu á Aðalgötunni lummuleg lög... eða þannigt?