Feykir


Feykir - 31.07.2009, Blaðsíða 9

Feykir - 31.07.2009, Blaðsíða 9
MENNING 28/2009 Feykir 9 Ævintýradaqur , i \ asloð Helgi Hannesar., Agnar á Miklabæ, Sara Valdimars., Kristín Jónsd. og Sigurður Hansen. Björg Baldursdóttir kennari á Hólum, með leiðsögn á Örlygsstöðum. Verkefnið Á Sturlungaslóð fór af stað á vordögum og er skemmst frá því að segja að verkefnið hefur farið vel af stað og stígandi aukning ferðamanna sem koma við og kikja á Sturlungaslóð. Laugardaginn 15. ágúst stendur síðan mikið til þá er ætlunin að vera með svo kallaðan viðburðardag og verðu dagskrá allan daginn vítt og breytt um Skagafjörð. Sérstakur gestur dagsins er Einar Kárason rithöfundur en bækur hans Ofsi og Óvinafagnaður fjalla um Sturlungaöldina. -Kristín Jónsdóttir hefur í sumar séð um verkefnastjórn verkefnisins. -Mitt hlutverk er að koma verkefninu á framfæri og halda utan um það frá a - ö. Ég sem flesta texta sem frá okkur fara og sé um auglýsingar og kynningu ferða, segir Kristín. Hverjir eru að koma þessar ferðir? -Það er bara alls konar fólk. Mest hafa heimamenn verið að koma en ferðirnar eru líka farnar að spyrjast út í næstu héruð en við höfum fengið Eyfirðingana aðeins í heimsókn til okkar. Eins kom hópurfráhöfuðborgarsvæðinu um síðustu helgi. Hvernig byggjast ferðirnar upp? -Við bjóðum bæði upp á rútuferðir og gönguferðir með leiðsögn og síðan er alltaf boðið upp á hressingar. Á Flugumýri hefur Anna boðið gestum upp á kaffi og heimabakkelsi og síðan höfum við líka verið bæði í Hótel Varmahlíð og Áskaffi. Þannig að hressingin er ekki alltaf á sama stað enda eru ferðirnar á svo mörgum stöðum. I vikunni var hópurinn sem að verkefninu stendur að hlaða vörðu á Róðugrund en þar er ætlunin að setja upp róðukross. Þar var áður róðukross reistur eftir að Brandur Kolbeinsson foringi Ásbirninga var tekinn af lífi eftir Haugsnesbardaga. Hvað með þennan viðburða- dag verður hann eitthvað frábrugðin öðrum ferðum á ykkar vegum? -Jú, hann er frábrugðin að því leyti að það er dagskrá allan daginn sem byggist upp bæði á fræðslu og skemmtun. Dagskráin hefst klukkan 10 um morguninn þar sem Einar Kárason verður með inngang að Sturlungu fyrir þá sem ekki þekkja vel til sögunnar. Um leið hefst skemmtileg dagskrá fyrir börnin en hún verður frá kl. 10 - 12. Klukkan 11 verður síðan farið að Víðimýri þar verður dagsla-á um Kolbein Tumason og söngur. Meðal annars syngur Helga Rós ljóð Kolbeins Tumasonar Heyr Himnasmiður og Sirrý í Glaumbæ verður með pistil um Kolbein. í hádeginu verður síðan boðið upp á súpu í Hótel Varmahlið. Klukkan hálf tvö verðum við aftur farin af stað en þá verður athöfn á Róðugrund þar sem krossinn verður vígður. Síðan verður gönguferð með leiðsögn, fyrir þá sem vilja, yfir að Flugumýri. Á leiðinni þangað verður komið við á Haugsnesgrundum þar sem Sigurður Hansen er byrjaður að stilla upp grjóther, einn hnullungur fýrir hvern mann sem þátt tók í Haugsnes- bardaga. Síðan geta þeir sem vilja gengið áfram frá Flugumýri og upp á Virkishól en þar eru friðlýstar fornminjar sem taldar eru verið leifar af virki Kolbeins unga. Um kvöldið verður siðan skemmtun í Miðgarði. Þar verður boðið upp á mat að hætti Sturlunga undir öruggri og án efa skemmtilegri veislustjórn Eyþórs Árnasonar frá Uppsölum. Einar Kárason verður með erindi, Agnar á Miklabæ verður með pistil auk þess sem boðið verður upp á fróðleik um matar- menningu miðalda. Rúsínan í pylsuendanum eru síðan Voces Thule sem syngja vísur og ljóð úr Sturlungu. Dagurinn er styrktur af Menningarráði og er dagskráin yfir daginn fólki að kostnaðarlausu en síðan þarf fólk að borga sig inn á skemmtunina um kvöldið. Hvað með dagskránna og gönguferðirnar eru þær við allra hæfi eða þarf fólk að vera í gönguformi? -Gönguleiðin er tiltölulega létt, gengið verður eftir grundum að Flugumýri og þau sem vilja geta síðan fengið sér lengri gönguferð upp á sjálfan hólinn, segir Kristín að lokum. I 2 Ifl Hlenningarráð mm Æ ■ MnrAurlanHc x/ncfra Unglingalandamót UMFÍ Ómar Bragi Stefánsson framkvæmdastjóri landsmóta UMFÍ. Búist vió mjög stóru móti Unglingalandsmótið verður sett á morgun föstudag en keppni hefst strax klukkan 8 í fyrramálið. Ómar Bragi Stefánsson á Sauðárkróki er framkvæmdastjóri lands- mótanna. Hann hefur haft í nógu að snúast þessa dagana enda innan við mánuður frá stórglæsilegu landsmóti á Akureyri. Hvað ætlið þið að bjóða okkur upp á? -Við ætlum fyrst og fremst að bjóða upp á skemmtilega og fjölbreytta dagskrá fyrir alla fjölskylduna enda segjum við að þetta sé íþrótta og fjölskylduhátíð. íþróttakeppni krakka 11-18 ára er það sem er í fyrirrúmi og tekur kannski mesta tímann en mikil dagskrá er í boði fyrir bæði þá sem yngri eru og eins fyrir foreldra. Við getum tekið sem dæmi yngri börnin sem geta farið í listasmiðjur, leiki, söngkeppni og svona gæti ég talið endalaust. Fyrir foreldra er boðið upp á gönguferðir og að taka þátt í hinum ýmsu verkefnum og er fólk hvatt til þess að lesa dagskránna sem kom f Sjónhorninu þar sem má sjá alla dagskránna. Verða einhverjar stjörnur á svæðinu? -Já, fullt af stjörnum því að á unglingalandsmótum eru krakkarnir stjörnur og það eru þau sem við byggjum í kringum og það eru þau sem eiga að njóta þess. Hins vegar verðum við með ýmislegt skemmtilegt á kvöldvökum og fjölbreytt dagskrá. Hara systur koma með nýja söngleik fyrir þau yngstu. Spútnik verður á svæðinu, Bróðir Svartúlfs, Von og fleiri heimahljómsveitir. Við eigum svo mikið af flottu listafólki að það er lítil ástæða til þess að leita út fyrir svæðið. Hvernig gekk að manna sjálfboðaliðið? -íþróttakeppnirnar þurfa mikið af fólki og það hefur gengið ágætlega að manna það. Eins er búið að manna í allar lykilstöður sem við þurfum að hafa til þess að mótið gangi. Kemur forsetinn? -Já hann verður hér á setningarhátíðinni sem haldin verður klukkan 20:15 á föstudagskvöldið á íþróttavellinum. Ég vil nota þetta tækifæri til þess að hvetja alla heimamenn, nær og fjær til þess að fjölmenna á setningarathöfnina svo öll umgjörð verði sem glæsilegust og mótið okkur til sóma. Eins langar okkur að hvetja til þess að flagga heima við mótsdagana og taka þannig vel á móti gestum okkar en við búumst við mjög stóru móti. Áttþú skemmti- lega mynd? Sendu hana! Netfang: feykir@feykir.is Síminn er 455 7176

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.