Feykir - 03.09.2009, Side 9
32/2009 Feykir 9
Ásbjörg Ýr Einarsdóttir opnaði í byrjun ágúst snyrtistofuna
Wanitu á neöri hæö heimili síns í Birkihlíö 6 á Sauóárkróki.
Á snyrtistofunni sinnir Ásbjörg Ýr viöskiptavinum sínum auk
þess aö selja ótrúlega ódýrar snyrtivörur.
FYRIRTÆKI VIKUNNAR: Snyrtistofan Wanita
Lét gamlan
draum rætast
Ásbjörg Ýr, eða Obba eins og
hún er alltaf kölluð, er frá
Kúskerpi í Blönduhlíð.
Sannkölluð sveitastelpa sem
þó hafði ofnæmi fyrir mörgu
í sveitalífinu og hafði meira
gaman að því að vera inni að
snyrta sig en vera úti í
sveitastörfunum. Það má því
segja að áhugi hennar á
snyrtifræðum hafi snemma
kviknað.
-Systkini mín búa öll í
sveitinni, eldri bróðir minn er
bóndi og yngri bróðir minn
stefnir á það líka og var að
útskrifast sem búfræðingur en
systir mín er íþróttakennari í
Varmahlíð og býr í sveitinni.
Ég skipti algjörlega um kúrs og
skellti mér í snyrtifræðina,
segir Obba og hlær.
Árið 2007 skellti Obba sér í
nám í Snyrtiakademíunni í
Kópavogi en námið er þriggja
anna nám sem tekið er á einu
ári. Síðan tekur við 10 mánaða
nemasamningur sem Obba
tók á snyrtistofunni Hrund í
Kópavogi.
Eftir námið flutti Obba
affur norður á Sauðárkrók þar
semhúnbýrásamtkærastanum
sínum, Benedikt Rúnari
Egilssyni. Saman áttu þau íbúð
í Grenihlíð en í sumar keyptu
þau Birkihlíð 6, æskuheimili
Benedikts. -Það voru foreldar
hans sem áttu hugmyndina að
því að ég myndi bara setja
stofúna upp hérna í
kjaUaranum enda var það
húsnæði sem í boði var fyrir
stofu annars staðar í bænum
bæði óhentugt og eins þurfti
að leggja mikla peninga í að
gera það hæft rekstri sem
þessum. Við enduðum því hér
í miðju íbúðarhverfi, útskýrir
Obba og hlær.
Snyrtistofuna opnaði Obba
síðan þriðjudag eftir verslun-
armannahelgi og segir hún að
viðtökur hafi verið framar
vonum. -Það er búið að vera
fullbókað síðan ég opnaði svo
ég þarf ekki að kvarta.
En skyldi ekki vera erfitt
að labba inn í banka og fá lán
til þess að stofna fýrirtæki
svona í miðri kreppu? -Nei,
nei ekki svo. Ég byrjaði strax
að safna mér þeim tækjum
sem þarf þegar ég byrjaði í
skólanum en þetta er svosem
ekki alveg gefins að gera þetta
en með góðri hjálp vina og
ættingja slapp þetta til, án
þeirra hefði þetta verið erfitt.
Á snyrtistofunni bíður
Obba upp á alla almenna
snyrtingu, andlitsböð, vax, lit
og plokk auk förðunar,
húðhreinsunar og svona
mætti áfram telja. Eins bíður
hún upp á augnhárapermanet
sem hefur hlotið góðar
viðtökur. -Ég er líka að bjóða
upp á lúxusmeðferðir bæði
andlits, fót og handa þannig
að það er um að gera fyrir
rómantíska eiginmenn eða
vinahópa að skella í gjafabréf
handa þeim sem þau telja að
það eigi skilið.
Síðan býð ég líka upp á
snyrtivörur frá Sothys,
Alessandro og Golden Rose
og síðast nefnda merkið er
með mjög ódýra og góða
vöru. Verð sem ég get fullyrt
að komi á óvart, segir Obba.
Svo þú ert bara bjartsýn á
framhaldið? -Já, ég get ekki
verið annað. Viðtökur hafa
verið góðar og aðstaðan sem
ég hef komið hér upp er mjög
góð. Síðan get ég bara skellt
mér upp og verið komin
heim ef rólegt er sem er gott,
segir Obba að lokum.
Blaðamaður þakkar fyrir sig
og endar á að panta sér tíma í
litun og plokk enda eiga allar
konur slíkt dekur skilið
annað slagið.
Láta fkh
stojppa sg
Hann ívar Eli kom að máli
við blaðamann í berjamó
sl. sunnudag en ívar og
Helga Júlíana, tvíburasystir
hans voru í berjamó ásamt
mömmu sinni og tveimur
yngri systkinum.
Ástæða þess að ívar koma að
máli við blaðamann var sú
að þá hafði rignt í góðar 20
mínútur og ívar og fjölskylda
ákváðu að láta veðrið ekki
stoppa sig heldur tína áfram
enda var verið að safna í
dýrindis krækiberjahlaup.
Feykir þakkar Ivari fyrir að
hugsa til sín og skorar á fleiri
börn að senda myndir og smá
fréttir af daglegum afrekum
sínum.
VótCi/yieJIur v
cx QfZ/yi/óL /yiátaw1 *'
1 glas rjómi
1 glas mjólk
100 gr. smjörliki
Allt sett í pott og soðið í rúmlega 1/2
klst. eða þartil karamellan harðnar undir
rennandi vatni. Síðan er sniðugt að hella
þessu á bökunarpappír og láta harðna
og klippa svo niður. Ef ykkur langar í
súkkulaðikaramellur þá er sniðugt að
bæta 1 tsk kakó út í alveg undir lokin.
Það getur lika verið gott að setja smá
vanilludropa alveg í lokin. Krakkar, munið
bara að karamellan verður svakalega
heit og sýður auðveldlega upp úr. Það er
því nauðsynlegt að fá leyfi hjá mömmu
og pabba og aðstoð í fyrsta sinn sem
karamella ersoðin.
Lt/a Lú/x/útújhcá/ry 4
Mamma: Af hverju setur þú
bangsann þinn inn í frysti?
Halli: Af því mig langar í
ísbjörn.
Einn fimm ára við vin sinn:
Ef ég erfi ömmu mína þá veit ég
ekki hvað ég á að gera við hana
Pabbinn: Hvar er nýja,
vatnshelda, höggþétta og
óbrjótanlega úrið sem ég gaf
þér f afmælisgjöf?
Stebbi: Ég týndi þvi.
Krajktarl Endi/e^a Sejvdi^ syryndir-, -frᣣit')
Uppskri-ftil' e&a bsc& Se/*i ykkut' dettuf i /}UQ £1/
/ey/jis á n&£far)Qf$i fa///irtSf*///ih Js
/yiet/(£ Barna/iotn. Ef/ii^ ykkar Vertut síhar Ait£
vi& fyts£a £ceklfceti.
(SUDOKO )
1 6 2 4 5
8 5 1 7
4 3 9
5 8 2 6 1 3
6 7 9 8 5 4
3 7 4
4 5 6 2
7 2 9 3 8