Feykir - 03.09.2009, Qupperneq 11
32/2009 Feykir 11
„Gengur undir nafninu
svarti kjúklingurinn
á okkar heimili//
( MATGÆÐINGAR VIKUNNAR )
Kristín og Valur kokka
Kristín Jóna Sigurðadóttir kennari við Húnavallaskóla
og Valur Kristján Valsson bílstjóri hjá Sorphreinsun VH
eru matgæðingar vikunnar að þessu sinni.
Þau búa á Blönduósi, ásamt dætrunum Þóru Karen 11 ára
og Völu Berglindi 8 ára. Kristín og Valur ákváðu að sleppa
forréttinum en láta þess í stað uppskrift af krækiberjahlaupi
sem heppnaðist einstaklega vel á þeirra heimili. Selma
Svavarsdóttir ökukennari á Blönduósi og synir hennar fá
áskorun Kristínar og Vals um að koma með næstu uppskriftir
í Feyki.
FORRÉTTUR
Krœkiberjahlaup
2 kg. krœkiber
500 ml. vatn
1,2 kg. sykur
Sultuhleypir
Berin skoluð og sett í pott ásamt
vatni. Hitað að suðu og látið
malla í 20 mín. Þá er öllu hellt í
gegn um sigti og safinn pressaður
úr berjunum.
Safinn settur í hreinan pott og
sykri bætt við. Látið malla í 20
mín.
Sultuhleypi blandað við 2
teskeiðar sykur og sáldrað í
pottinn og látið malla í
2 mín. Sultunni hellt í krukkur.
AÐALRÉTTUR
Barbecue kjúklingur
(gengur undir nafninu svarti
kjúklingurinn á okkar heimili)
8 kjúklingalæri
Sósa:
1 dl. barbecuesósa
1 dlCaip grillsósa
(8 hymdflaska)
1 dl soja sósa
1 dl. apríkósusulta
100 gr.púðursykur
Setjið kjúklinginn í eldfast mót.
Sósuefhið sett í pott og suðan látin
koma upp. Sósunni hellt yfir lærin
( gott að geyma hluta til að bera
ffam með kjúklingnum). Bakið
í ofhi við 200 gráður í 60 mín.
Berið fram með hrísgrjónum og
góðu salati.
EFTIRRÉTTUR
Makkarónukökurnar muldar og
settar í skál. Súkkulaðið saxað og
stráð yfir.
Ávextirnir settir næst og að lokum
þeyttur rjómi. Skreyta svo með
ávöxtum.
Dásamlegt dúndur
150 gr. makkarónukökur
2 Snickers
2 Mars
Verði ykkur að góðu!
‘A l rjómi
< GUÐMUNDUR VALTÝSSON
Vísnaþáttur 505
Heilir og sælir lesendur góðir.
Það er Rannveig Guðnadóttir sem á
fyrstu vfsuna að þessu sinni. Mun hún
hafa ort hana á efri árum.
Æskanjafnt ogEllifœr
óskipt mál að vonum,
aðgeta tendrað glceðurnar
frá gömlu minningonum
Næstu visu á hagyrðingur sem heitir
Magnús Ólafsson. Veit ekki nánari deili
á honum.
Útþráin og cevintýr
œskumanninn seiðir.
Ellin sínar byggir brýr
til baka áfornar leiðir.
Þá hafa mér borist þær upplýsingar að
vísa sem ég birti í síðasta þætti og taldi
vera eftir Ingvar Pálsson á Balaskarði
muni vera eftir annan bónda í Laxárdal,
Kristján Sigurðsson frá Hvammi. Bið ég
lesendur um upplýsingar ef þeir telja sig
kannast við málið.
Þá er tilvalið að fá næst tvær vísur eftir
Halldór Snæhólm sem einnig var bóndi í
Laxárdal, nánar tiltekið á Sneis.
Óþarfleg er öfundin
út má henni blœða.
Horna á milli heimurinn
hefur nœgtir gœða.
í gleðskap verður þessi til.
Flýg ég laus viðfár ogsút
fjarri öllu þrasi.
I drottins nafni drekk svo út
drjúgan teigúrglasi.
Það mum hafa verið Hólmfríður
Jónasdóttir frá Hofdölum sem orti þessar
fallegu haustvísur.
Húmið sígur hœgt um lönd
hallar degi glöðum.
Geisladrottninggrœði á hönd
gengur skrefum hröðum.
Hnígur sól við sœvarrönd
sumargeislar dvína.
Nóttin yftr lög og lönd
leggur blessun sína.
Hinn kunni kvæðamaður og góði félagi
í Iðunni, Ormur Ólafsson mun hafa ort
þessar um ástarævintýri í vonum.
Við ég brá er Siggu sá
svona er að þrá og langa.
En ekki má ég minnast á
meirafá en vanga.
Mitt ergengið gœfu stig
gefast engar bœtur.
Ó, égfengi aðfaðma þig
fast og lengi nœtur.
Trúlega er næsta vísa mörgum kunn, að
minnsta kosti Skagfirðingum. Höfundur
er Hjalti Jónsson áður bóndi i Víðiholti.
Misjaft auði út er býtt
ýmsa nauðirfanga.
Yfir hauður hart oggrýtt
hlýt ég snauður ganga.
Önnur vísa kemur hér eftir Hjalta.
Timans straumur burtu ber
blöð affeysknum viðum.
Gömlum háttum glötum vér
gleymumfornum siðum.
Snæbjörn Kristjánsson bóndi í Hergilsey
var kunnur hagyrðingur á sinni tíð.
Eitt sinn er hann dvaldi á eyju sem var
í eyði á Breiðafirði við fjárgæslu, orti
hann nokkrar vísur. Ekki hafði hann þar
ritföng og lítur þessi vísa hans að því.
Hér er hvorki blek né blað
böl er til að vita,
stökur gleymast að því að
ekki er hœgt að rita.
Á efri árum mun Snæbjörn hafa ort
þessa skrítnu vísu.
Mér er best að beita þögn
bröttum lífs á sviðum.
Þótt égfinni að römmust rögn
reiki að báðum hliðum.
Við andlát Kjarvals mun Ágúst
Guðbrandsson hafa ort svo.
Skyldifógur lita list
líða út í bláinn.
Við höfum snilling mikinn misst
meistari Kjarval dáinn.
Eitt sinn er sjómannadagur var
haldinn hátíðlegur á Sauðárkróki, flutti
gráskeggjaður maður aðal ræðuna. Effir
að hafa hlýtt á það guðspjall orti Erlendur
Hansen svo.
Nú siglir hann út á sjóinn
seglbúinnfyrir nes.
Ekki er hann grasi gróinn
garpurínn Sókrates.
Trúlega getum við mörg tekið undir með
Ella, er hann veltir fyrir sér lífshlaupinu í
næstu vísu.
Á göngu lífsins sótti að mér sopinn
égsinnti honurn eins oggerist best.
Við stundaglasið steininn holar dropinn.
Við Strönguhvísl erferja fyrirgest.
Hart norðaustan veður með ausandi
rigningu og vondri hríð til fjalla gekk
yfir hér norðaustanlands 20.-21. ágúst
síðastliðinn. Kannski hefúr Ingólfur
Ómar haft það í huga er hann orti þessa
ágætu vísu.
Falla lauf ogfólna blóm
fól á brá er jörðin.
Norðan gjóstur nöprum róm
nístir gróður svörðinn.
Verið þar með
sœl að sinni.
Guðmundur
Valtýsson
Eiríksstöðum
541 Blönduósi
Sími 452 7154