Feykir - 08.10.2009, Qupperneq 2
2 Feykir 37/2009
Heilbrigðisstofhunin Sauðárkróki_
100 milljón króna
niðurskurður
Samkvæmt fjárlagafrum-
varpi ber Heilbrigdisstofn-
uninni á Sauðárkróki ad
skera niður f rekstri sínum
um 100 milljónir eða um á
milli 11 -12 % á milli ára.
Aðsögn HafsteinsSæmunds-
sonar, framkvæmdastjóra, er
þetta þungt högg en 75% af
útgjöldum stofnunarinnar eru
launaliðir.
-Reksturinn er góður og við
eigum eftir þetta ár 25 mifljónir í
afgang af rekstri þessa árs og
höfúm fengið munnlegt loforð
þess efnis að sá afgangur fari upp
í niðurskurð næsta árs. Engu að
síður standa þá 75 milljónir eftir
og ljóst að við þurfúm að fara í
frekari aðhaldsaðgerðir.
Við höfúm ekki verið að ráða
í lausar stöður síðustu mánuði
og gætt mikils aðhalds. Nú þarf
eins og ég sagði að skoða frekari
leiðir til sparnaðar og munum
við leita allra leiða áður en við
grípum til uppsagna, segir
Hafsteinn.
Leiðari
Guð blessi landsbyggðina
Það hefur vakið athygli mínafrá því aðfjárlagafrumvai'p
ríkisstjómar íslands leit dagsins Ijósfyrir viku síðan hefur
ekki heyrst múkk í sveitarstjórnarmönnum á Norðurlandi
vestra að undan skyldumfélögum í VG í Skagafirði og
Húnavatnssýslum sem sendu frá sér harðorða ályktun
um aðfór að landsbyggðinni.
Sjálfhefég fyllst mikilli gremju við þann takmarkaða
lestur sem ég heflagt í. Niðurskurður sá sem við verðum
fyrir er hrikalegur og gerir lítið annað en draga úr okkur
þær baráttutennur sem við vomm þó komin með.
Skera á niður um hundrað milljónir á Heilbrigðisstofn-
uninni á Sauðárkróki og hlutfallslega lenda aðrar heil-
brigðisstofiianir í því sama.
Fækka á sýslumannsembættum á landinu í sjö og
einungis á að vera einn héraðsdómur.
Byggðastofnun er í órekstrarhæfu ástandi og rekin á
undanþágufrá Fjármálaeftirlid. ■
Skera á niðurfjárframlög til vaxtarsamnings og eins til
menningarsamnings á NV.
A sama tíma á að eyða 300 milljónum á þremur árum
í kynningum á menningu og listum á bókamessu í
Frankfurth.
Er ég ein um að sjá eitthvað bogið og rangt viðþessi
fjárlög? Ég geri mér grein fyrir aðþað þarfað spara en
fyrr má nú vera. Ég óska eftirþví að sveitarstjórnarmenn
á Norðurlandi vestra vakni úr dvala og fari að berjast
Jyrir okkar svæði. Fyrirþað voru þeir kosnir.
Efekki á að snúa þessu á einhvern hátt til baka geri ég orð
Geirs að mínum: Megi guð blessa landsbyggðina.
Guöný Jóhannesdóttir
ritstjóri Feykis
Ohaö fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fírnmtudogum 1
Feykir
Útgefandi: Ritstjórí & ábyrgdannadun Áskriftarverð:
Nýprent ehf. Guðný Jóhannesdóttir 275 krónur hvert tölublað
Borgarflöt 1 Sauðárkróki feykir@nyprent.is ® 455 7176 með vsk.
Póstfang Feykis: Blaðamenn: Lausasöluverð:
Box 4,550 Sauðárkrókur Páll Friðriksson 325krónurmeð vsk.
palli@nyprentis <0 8619842
Blaðstjórn: Óli Amar Brynjarsson Áskrift og dreifing
Árni Gunnarsson, oli@nyprent.is Nýprent ehf.
Áskell Heiðar Ásgeirsson, Lausapenni: Sími 4557171
Herdís Sæmundardóttir,
Ólafur Sigmarsson og Páll Örn Þórarinsson. Umbrot og prentun:
Dagbjartsson. Prófarkalestur: Karl Jónsson Nýprent ehf.
Skagafjörður____________
Viðræður ym við-
byggingu Arskóla
Sveitarstjórn Skagafjarðar
ákvað á fundi sfnum f gær
med átta atkvæðum að
ganga til viðræðna við
Kaupfélag Skagfiróinga á
grundvelli tilboð þess um
fjármögnun á lokaáfanga
Árskóla á Sauðárkróki.
Bjarni Jónsson, sat hjá við
atkvæðagreiðsluna.
Tillagan sem samþykkt var
eftir viðbótartillögu frá
sjálfstæðismönnum gerir ráð
fyrir að leitað verði til hagdeildar
Sambands íslenskarsveitarfélaga
og Lánasjóðs sveitarfélaga um
mat á verkefninu s.s. lána-
möguleikum og ffekari hagspá
á grundvelli skýrslu sem KPMG
vann fyrir Sveitarfélagið Skaga-
íjörð um máið.
Bjarni Jónsson óskaði bókað
að hann teldi í ljósi skýrslu
KPMG að sveitarfélagið ráði
ekki við þær fjárskuldbindingar
nú sem stækkun Árskóla fæli í
sér. Slík skuldsetning ásamt
neikvæðri rekstrarniðurstöðu
sveitarfélagsins gæti að óbreyttu
orðið því ofviða og leitt til mikils
niðurskurðar í þjónustu og
torveldað möguleika á að sinna
örðum verkefnum. Þá lofaði
Bjarni ffumkvæði Kaupfélags
Skagfirðinga og taldi athugandi
að félagið kæmi til samstarfs
við sveitarfélagið í smærri og
viðráðanlegri verkefnum eins
og t.d. viðhaldi mannvirkja í
eigu sveitarfélagsins.
Vinstri græn á Norðurlandi vestra
Sóknaráætlun gegn lands-
byggðinni mótmælt
Svæðisfélög Vinstrihreyfingarinnar græns
framboðs í Húnavatnssýslum og Skagafirði
hafá sent frá sér ályktun þar sem þau harma
framgöngu forystumanna stjórnarflokkanna
gagnvart landsbyggðinni og Norðurlandi
vestra sérstaklega.
í ályktuninni segir; - Um leið og það er
viðurkennt að allir þurfi að taka á sig auknar
byrðar nú er þvi mótmælt að vegið sé að einum
landshluta umfram aðra með þeim tillögum að
niðurskurði sem kynntar hafa verið.
Á meðan nota á lífeyri landsmanna til að
fjármagna fjölda stórframkvæmda á suðvestur-
horni landsins verður ekki boðinn út vegspotti í
landshlutanum á næsta ári eða viðhaldið þeirri
lágmarks snjómokstursþjónustu sem þarf til að
tengja saman atvinnusvæði.
Áform eru um niðurskurð á opinberri
þjónustu langt umfram þau viðmið sem boðuð
hafa verið á landsvísu og flutning verkefna og
starfa til höfuðborgarsvæðisins, svo sem með
niðurlagningu sýslumannsembætta og héraðs-
dómstóls án þess að haldbær rök hafi verið færð
fyrir sparnaði af slíkum tilflutningi.
Tillögur sem fela í sér upplausn stjórnkerfisins,
aukna embættismannavæðingu og miðstýringu
frá höfuðborgarsvæðinu eru að auki til þess fallnar
að rjúfa tengsl við gnmnatvinnuvegi þjóðarinnar
og takmarka möguleika landsbyggðarinnar til að
nýta auðlindir sínar og mannauð.
Af sama toga eru hugmyndir forkólfa
svokallaðrar sóknarnefndar forsætisráðherra. Ef
þær ná fram að ganga verður ennfremur einn
landshluti, Norðurland vestra, eitt gömlu
kjördæmanna skilinn eftir þegar skilgreind verða
stjórnsýslu og vaxtarsvæði landsins. Að óbreyttu
er verið að boða sóknaráætlun gegn lands-
byggðinni.
Skagafjörður_________________________________
10% af innkomu rennur
til Þuríðar Hörpu
Þær Þórdís Ósk
Rúnarsdóttir og
Auður Sif Arnardóttir
á hárgreiðslustofunni
Capello á
Sauðárkróki hafa
ákveðið að láta 10%
af allri innkomu
stofunnar í október
renna til Þunðar
Hörpu Sigurðardóttur.
Aðspurð segist Þórdís
hafa fýlgst með ferðalagj
Þuríðar Hörpu til
Indlands og þeim hafi
langað til þess að leggja
sitt af mörkum til þess að
Þuríður geti haldið áffarn
og klárað þá stofnffumumeðferð sem hún gengst undir á nokkurra
mánaða ffesti næstu þrjú árin.
-Margt smátt gerir eitt stórt og þetta er okkar ffamlag til Þuríðar,
segir Þórdís.
Húnaþing vestra
Fýluferð
til Reykja-
víkur
Fulltrúar Húnaþings
vestra héldu f sfðustu
viku sem leið lá suður til
Reykjavíkur en þar höfðu
þau verið boðuð á fund
Qármálanefndar
Alþingis.
Fundurinn hafði heima-
fyrir verið vel undirbúinn
en þegar á reyndi reyndist
ferðalag fulltrúanna
hálfgerð fýluferð því mikið
annríki var í alþingishúsinu
og enginn mátti vera að því
að sinna sveitarstjórnarfólki
að norðan.
Ekkihefurveriðboðaður
nýr fúndur sveitarstjórnar-
fólks með nefndinni.