Feykir


Feykir - 08.10.2009, Blaðsíða 3

Feykir - 08.10.2009, Blaðsíða 3
37/2009 Feykir 3 Blönduós Áhugi á söngleik í leiklistarvali r -%{ J ■f * i i ■ ju * ■ ; 1 * Óvitinn segir frá því að leiklistarvalið í Grunnskólanum á Blönduósi sé eins og undanfarin ár kennt af Jófríði Jónsdóttur og er aðal markmið kennslunnar að nemendur fái þjálfun í að koma fram, gefa þeim sýnishorn af þvf um hvað leiklist snýst og hafa gaman. í viðtali við Jófríði kemur fram að ekki sé búið að ákveða hvernig árshátíðarleikritið í ár verður en henni sýnist flestir hafi áhuga á söngleik. Leiklistarhópurinn er mjög hæfileikaríkur og segir Jófríður að hægt sé að setja markið hátt. Jólaleikrit er ekkert á dagskránni en ef nemendur leiklistarvalsins hafi áhuga megi auðvitað skoða það. Jófríður er mjög vongóð um veturinn og hlakkar mikið til komandi leiklistarárs. Óskar (arrnar frá vinstri) ásamt bræórum sínum frá Álftagerði. Menning_______________ Óskar frá Álfta- gerði með disk Út er kominn nýr geisladiskur sem nefnist “Altt sem ég er”. Aðals- öngvarinn á diskinum er Óskar Pétursson en með honum syngja í nokkmm lögum, Björgvin Halldórsson, Guðrún Gunnarsdóttir og Guðjón Davíð Karisson (Gói). Þetta er fjórði diskurinn sem Óskar sendir frá sér sem sjálfstæður söngvari, en eins og alþjóð veit, þá er Óskar einn Álftagerðis- bræðra. Óskar hefúr átt farsælan feril sem söngvari og sungið ýmist einn síns liðs eða ásamt bræðrum sínum á tónleikum og við ýmis tæki- færi víðsvegar um allt land. Tónlistin á diskinum er eftir Björgvin Þ. Valdimarsson, en um útsetningar sá Karl Olgeirsson. Björgvin og Óskar hafa starfað mikið saman og hefúr Óskar ásamt bræðrum sínum sungið þó nokkuð af lögum Björgvins. Þar á meðal er lagið Undir Dalanna sól, sem Álfta- gerðisbræður gerðu vinsælt. Meðal textahöfúnda má nefna Ragnar Inga Aðal- steinsson, Kristján Hreinss- on, Davíð Stefánsson, Bjarna Stefán Konráðsson, Halldór Laxness, Guðmund Kr. Sigurðsson og Sigurbjörn Einarsson. Eigendur miða með eftirfarandi númer hafa hlotið vinning: Óska“b"Lkat""“«m* r^etenium ega fyrir stuðninginn. puríðurHarpa Flug fyrir 2 frá Erni og gisting fyrir 2 á hóteli í Reykjavík - Miði nr: 372 Rafting ferð frá Ævintýraferðum fyrir átta - Miði nr: 411 Gisting á Hótel Tindastól fyrir 2 - Miði nr: 606 Gisting á Hótel Tindastól fyrir 2 - Miði nr: 285 Gjafabréf á Villibráðahlaðborð Hótel Varmahlíð f. Tvo - Miði nr: 773 Gjafabréf á Jólahlaðborð Hótel Varmahlíð f. Tvo - Miði nr: 014 Folatollur undan Hnokka frá Þúfum - Miði nr: 760 Folatollur undan Heljari - Miði nr: 915 Folatollur undir Vöxt - Miði nr: 943 Gjafabréf frá Önnu á Hjaltastöðum - Miði nr: 684 Mynd frá Sigrúnu á Stórhóli - Miði nr: 115 Matarkarfa frá Skagfirðingabúð - Miði nr: 308 Ostakarfa frá KS mjólkursamlagi - Miði nr: 970 Gjafabréf frá Sauðárkróksbakaríi - Miði nr: 047 Gjafabréf frá KS kjötafurðastöð - Miði nr: 937 Gjafabréf frá KS Eyri - Miði nr: 667 og taumur ásamt dvd mynd Lífland - Miði nr: 104 Hægt er að nálgast vinningana í afgreiðslu Nýprents Happdrættismiðanum skal framvísað þegar vinningurinn er sóttur ITlTTTTTTpTTTrTTTT^r? Dömulegir dekurdagar á Akureyri 9.-11. október Spennandi tilboð og kynningar, gleði og gaman og spákonnp sem skyggnast inn í framtíðina. Kíktu á dagskrain.is og sjáðu hvaða freistingum þú vilt falla fyrir.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.