Feykir


Feykir - 08.10.2009, Page 5

Feykir - 08.10.2009, Page 5
37/2009 Feyklr 5 Skagaljörður_______________ Sjúkrahússparnaður í bókamessu í Frankfurth Á sama tíma og Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki er gert að spara 100 milljónir á árinu 2010 eða á milli 11 og 12 % af rekstrarfé sfnu ætlar Menntamálaráðuneytið að ráðstafa 100 milljónum í bókamessu í Frankfurth. I frétt á Feyki.is um niðurskurð á Heilbrigðisstofh- uninni sl fimmtudag kom fram að þetta stór niðurskurður komi til með að þýða umtalsverða þjónustu-skerðingu fyrir notendur stofnunarinnar auk þess sem ekki sé hægt að lofa að svona stór niðurskurður geti átt sér stað án þess að komi til uppsagna starfsfólks. En hvað skyldi bókamessa í Frankfurth vera? Jú, að sögn Sigtryggs Magnasonar, hjá Menntamálaráðuneyti, er þetta verkefni sem áveðið var að ráðast í árið 2007. íslandi var þá boðið að verða heiðursgestur á bókamessu árið 2011. Af þvf tilefni var ákveðið að eyða 100 milljónum á ári í þrjú ár til verkefnisins eða alls 300 milljónum. -Á bókamessu munum við kynna íslenska menningu bæði bókmenntir og myndlist. Það er okkar mat að um góða landkynningu sé að ræða og þarna muni verða vakin sérstök athygli á íslandi sem komi íslenskri ferða- þjónustu og menningu til góða, segir Sigtryggur. Samstarf BioPol ehf, Sero ehfog Háskólans á Akureyri Til kynningar á Vísindavöku Rannís Frá vinstri: Hjörleifur Einarsson, Sigurður Baldursson og Halldór G. Ólafsson. Samstarf Háskólansá Akureyri vió fyrirtæki í nýsköpun var þemað á bás skólans á Vísindavöku Ranru's sem haldin var föstudaginn 25.september. „Lifandi lýsispillurj matalím úr grásleppuhvelju, sérvirk íblöndunarefni úr sjávarfangi og bragðkjarnar úr þangi var meðal þess sem almenningur gat barið augum á bás Háskólans á Akureyri á Vísindavöku Rannís 2009. Allt eru þetta dæmi um verkefni á sviði nýsköpunar sem sprottið hafa upp í kjölfar samstarfs skólans við Sero ehf og BioPol Sjávarlíftæknisetur á Skaga- strönd. Vísindavaka er árlegur viðburður þar sem almenningi gefst kostur á að kynnast viðfangsefnum visindamanna í hinum ýmsu vísindagreinum. I ár heimsóttu tæplega 3000 gestir Vísindavökuna og hafa þeir aldrei verið fleiri. Fjölmargir gestir komu við á bás Háskólans á Akureyri og spurðu vísindamenn spjörun- um úr. Mesta athygli vöktu það sem kallaðar voru „lifandi lýsispillur" en þar gafst fólki kostur á að skoða í smásjá ófrumbjarga þörunga úr sjó sem eru meðal frumfram- leiðanda á omega-3 fitu í hafinu. Undanfarin misseri hefur Sigurður Baldursson, starfs- maður háskólans og BioPol á Skagaströnd, unnið að ræktun og einangrun þessara lífvera. Markmið rannsóknanna er að kanna eiginleika þeirra til framleiðslu á hágæða fiskiolíum til hagnýtingar í matvæla-, lyfja- og fóðuriðnaði. Hofsós Rakelarhátíð á sunnudag Rakelarhát'óin verður haldin í Höfðaborg Hofsósi sunnudaginn 11. október næstkomandi kl. 14 og er fólk hvatt til að fjölmenna. Bjöm Bjömsson fýrrverandi skólastjóri flytur ávarp og nemendur Grunnskólans á Hofsósi sjá um fjölbreytt skemmtiatriði. Rakel Bryndís Gísladóttir flytur hugleiðingu um nöfnu sína í máli og myndum og hinn ffábæri söngvari Eyþór Ingi Gunnlaugsson syngur nokkur lög. Kaffiveitingar verða að skemmtun lokinni. Kynnir á hátíðinni verður Rögnvaldur Bragi Rögnvaldsson. Húnaþing vestra Vantar þig góðan áburð ? Nú stendur yfir hreinsun í hænsnahúsinu á Tjöm á Vatnsnesi og leggst mikið til að spónum sem em blandaðar driti úr hænun- um. Þetta er afskaplega góður áburður, þurr og léttur og auðveldur f meðfömm. Á vef landnámshænunnar er að finna fróðleik frá Júlíusi bónda en þar segir að spænimar séu Jirein náttúmafúrð og að hænsnadrit sá besti áburður sem hægt er að fá og hugsa sér og hentar mjög vel á allan gróður eins og td. tré, runna, blómabeð og ekki hvað síst í matjurtagarðinn. Sem dæmi nefnir Júlíus að hann hafi fengið um 200 kg kartöfluuppskeru í haust en sett vom niður 12 kg af útsæði. MITT LIÐ Mikill West Ham að- dáandi rétt á meóan ég kláraói glasió Nafn: Marteinn Jónsson. Heimili: Barmahlíð4. Starf: Framkvæmdastjóri Kjarnans. Hvert er uppáhaldsliðið þitt í enska boltanum og af hverju? -Man.Utd vegna þess að þeir eru lang bestir. Ég byrjaði að halda með þeim þegar að Stefán Logi frændi gaf mér treyju þegar ég var 7 ára og hef ekki villst af réttri braut síðan. Hefur þú einhverntímann lent í deilum vegna aðdáunar þinnar á umræddu liði? -Já flesta daga við vini og vinnufélaga, svo er ég í fótboltaklúbbi Dodda Málara (Old Field High) þar sem að meirihluti meðlima halda með Arsenal. Það er eins og að vera í golfklúbb þar sem meirihlutinn heldur því fram að Orri Hreinsa sé besti kylfingur í heimi. Hver er uppáhaldsleikmaðurinn fyrr og síðar? -Ryan Joseph Giggs hann er búinn að vera frábærfrá því að hann var kjörinn efnilegastur árið 1992, svo skoraði hann frábært mark á móti Arsenal í bikarnum sem braut sófann á mínu heimili en ég var nú snöggur að fyrirgefa honum það. Hann er frábær fyrirmynd á velli og utan hans og á eftirsvona sjö góð ár hjá United :). Hefur þú farið á leik með liðinu þínu? -Já ég fór á Arsenal - ManUutd árið 2001 man ekki hvemig sá leikur fór, en Barthez gaf þeim eitthvað af mörkum, við vorum á móti vindi allan leikinn og dómarinn var ekki á okkar bandi og allt það. 2007 fór ég á Man. Utd- Charlton á Old Trafford og sá mína menn valta yfir Hermann Hreiðars og félaga. Áttu einhvern hlut sem tengist liðinu? -Já eitthvað af treyjum, myndum, smádóti og United sjónvarp sem Rúnar á N1 neitar að horfa á með mér. Hvernig gengur að ala aðra fjölskyldumeðlimi upp í stuðningi við liðið? -Dagmar og Jón Gabríel halda með Man. Utd en Nótt og Mikael halda með Liverpool og Barcelona. Ég er að vinna í þessu, verður klárt eftir nokkur ár. Hefur þú einhvern tímann skipt um uppáhalds félag? -Já þegar ég var spurður að því með hvaða liði ég héldi á West Ham barnum á leikdegi með þrjátíu tannlausa Breta hjá mér og ný búið að henda einum Liverpool manni út. Ég var mikill West Ham aðdáandi rétt á meðan ég kláraði glasið. Þetta var rétt áður en íslenska ríkið eða Steingrímur J. eignaðist West Ham. Uppáhalds málsháttur? "Aldrei kemur góður dagur of snemma". Spurning til þín frá Jóni Óskari Pétursyni - Ég myndi vilja spyrja hvort hann telji að hann muni vinna vodkaveðmálið við Sævar Birgisson enn eitt árið? -Já ég er vissum aðégvinnivodkaflöskuna þetta árið eins og öll hin. Ég og Sævar veðjum á hverju ári hvort Liverpool eða Man. Utd verði ofar í ensku. Ég er oftast búinn að ráðstafa þessari flösku áður en leiktíðin byrjar. Fyrir þrem árum var Sævar orðinn leiður á þessu tapi og bætti við rommflösku fyrir það lið sem kemst lengra í Meistaradeildinni, þetta endaði svo með því að hann réði sig í vinnu hjá ÁTVR í Hveragerði, tilviljun eða hvað?? Hvern viltu sjá svara þessum spurningum? -Kristmar Geir Björnsson málara og efnilegasta leikmann Tindastóls í knattspyrnu fyrrog síðar. Hvaða spurningu viltu lauma að viðkomandi? -Heldur þú að kaupin á Owen séu kaup tímabilsins?

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.