Feykir - 08.10.2009, Síða 5
37/2009 Feyklr 5
Skagaljörður_______________
Sjúkrahússparnaður í
bókamessu í Frankfurth
Á sama tíma og
Heilbrigðisstofnuninni á
Sauðárkróki er gert að
spara 100 milljónir á árinu
2010 eða á milli 11 og 12
% af rekstrarfé sfnu ætlar
Menntamálaráðuneytið að
ráðstafa 100 milljónum í
bókamessu í Frankfurth.
I frétt á Feyki.is um
niðurskurð á Heilbrigðisstofh-
uninni sl fimmtudag kom fram
að þetta stór niðurskurður komi
til með að þýða umtalsverða
þjónustu-skerðingu fyrir
notendur stofnunarinnar auk
þess sem ekki sé hægt að lofa að
svona stór niðurskurður geti átt
sér stað án þess að komi til
uppsagna starfsfólks.
En hvað skyldi bókamessa í
Frankfurth vera? Jú, að sögn
Sigtryggs Magnasonar, hjá
Menntamálaráðuneyti, er þetta
verkefni sem áveðið var að
ráðast í árið 2007. íslandi var þá
boðið að verða heiðursgestur á
bókamessu árið 2011. Af þvf
tilefni var ákveðið að eyða 100
milljónum á ári í þrjú ár til
verkefnisins eða alls 300
milljónum. -Á bókamessu
munum við kynna íslenska
menningu bæði bókmenntir og
myndlist. Það er okkar mat að
um góða landkynningu sé að
ræða og þarna muni verða
vakin sérstök athygli á íslandi
sem komi íslenskri ferða-
þjónustu og menningu til góða,
segir Sigtryggur.
Samstarf BioPol ehf, Sero ehfog Háskólans á Akureyri
Til kynningar á
Vísindavöku Rannís
Frá vinstri: Hjörleifur Einarsson, Sigurður Baldursson og Halldór G. Ólafsson.
Samstarf Háskólansá
Akureyri vió fyrirtæki í
nýsköpun var þemað á bás
skólans á Vísindavöku
Ranru's sem haldin var
föstudaginn 25.september.
„Lifandi lýsispillurj matalím
úr grásleppuhvelju, sérvirk
íblöndunarefni úr sjávarfangi
og bragðkjarnar úr þangi var
meðal þess sem almenningur
gat barið augum á bás Háskólans
á Akureyri á Vísindavöku
Rannís 2009. Allt eru þetta
dæmi um verkefni á sviði
nýsköpunar sem sprottið hafa
upp í kjölfar samstarfs skólans
við Sero ehf og BioPol
Sjávarlíftæknisetur á Skaga-
strönd.
Vísindavaka er árlegur
viðburður þar sem almenningi
gefst kostur á að kynnast
viðfangsefnum visindamanna í
hinum ýmsu vísindagreinum. I
ár heimsóttu tæplega 3000
gestir Vísindavökuna og hafa
þeir aldrei verið fleiri.
Fjölmargir gestir komu við á
bás Háskólans á Akureyri og
spurðu vísindamenn spjörun-
um úr. Mesta athygli vöktu það
sem kallaðar voru „lifandi
lýsispillur" en þar gafst fólki
kostur á að skoða í smásjá
ófrumbjarga þörunga úr sjó
sem eru meðal frumfram-
leiðanda á omega-3 fitu í
hafinu.
Undanfarin misseri hefur
Sigurður Baldursson, starfs-
maður háskólans og BioPol á
Skagaströnd, unnið að ræktun
og einangrun þessara lífvera.
Markmið rannsóknanna er að
kanna eiginleika þeirra til
framleiðslu á hágæða fiskiolíum
til hagnýtingar í matvæla-,
lyfja- og fóðuriðnaði.
Hofsós
Rakelarhátíð á
sunnudag
Rakelarhát'óin verður haldin í Höfðaborg
Hofsósi sunnudaginn 11. október
næstkomandi kl. 14 og er fólk hvatt til að
fjölmenna.
Bjöm Bjömsson fýrrverandi skólastjóri flytur
ávarp og nemendur Grunnskólans á Hofsósi sjá
um fjölbreytt skemmtiatriði. Rakel Bryndís
Gísladóttir flytur hugleiðingu um nöfnu sína í máli
og myndum og hinn ffábæri söngvari Eyþór Ingi
Gunnlaugsson syngur nokkur lög.
Kaffiveitingar verða að skemmtun lokinni.
Kynnir á hátíðinni verður Rögnvaldur Bragi
Rögnvaldsson.
Húnaþing vestra
Vantar þig góðan
áburð ?
Nú stendur yfir hreinsun í hænsnahúsinu á
Tjöm á Vatnsnesi og leggst mikið til að
spónum sem em blandaðar driti úr hænun-
um. Þetta er afskaplega góður áburður, þurr
og léttur og auðveldur f meðfömm.
Á vef landnámshænunnar er að finna fróðleik
frá Júlíusi bónda en þar segir að spænimar séu Jirein
náttúmafúrð og að hænsnadrit sá besti áburður sem
hægt er að fá og hugsa sér og hentar mjög vel á allan
gróður eins og td. tré, runna, blómabeð og ekki
hvað síst í matjurtagarðinn. Sem dæmi nefnir Júlíus
að hann hafi fengið um 200 kg kartöfluuppskeru í
haust en sett vom niður 12 kg af útsæði.
MITT LIÐ
Mikill West Ham að-
dáandi rétt á meóan
ég kláraói glasió
Nafn: Marteinn Jónsson.
Heimili: Barmahlíð4.
Starf: Framkvæmdastjóri
Kjarnans.
Hvert er uppáhaldsliðið þitt í
enska boltanum og af hverju?
-Man.Utd vegna þess að þeir eru
lang bestir. Ég byrjaði að halda
með þeim þegar að Stefán Logi
frændi gaf mér treyju þegar ég
var 7 ára og hef ekki villst af réttri
braut síðan.
Hefur þú einhverntímann lent í
deilum vegna aðdáunar þinnar
á umræddu liði? -Já flesta daga
við vini og vinnufélaga, svo er ég í
fótboltaklúbbi Dodda Málara (Old
Field High) þar sem að meirihluti
meðlima halda með Arsenal. Það
er eins og að vera í golfklúbb þar
sem meirihlutinn heldur því fram
að Orri Hreinsa sé besti kylfingur
í heimi.
Hver er uppáhaldsleikmaðurinn
fyrr og síðar? -Ryan Joseph
Giggs hann er búinn að vera
frábærfrá því að hann var kjörinn
efnilegastur árið 1992, svo
skoraði hann frábært mark á móti
Arsenal í bikarnum sem braut
sófann á mínu heimili en ég var
nú snöggur að fyrirgefa honum
það. Hann er frábær fyrirmynd á
velli og utan hans og á eftirsvona
sjö góð ár hjá United :).
Hefur þú farið á leik með liðinu
þínu? -Já ég fór á Arsenal -
ManUutd árið 2001 man ekki
hvemig sá leikur fór, en Barthez
gaf þeim eitthvað af mörkum, við
vorum á móti vindi allan leikinn og
dómarinn var ekki á okkar bandi
og allt það. 2007 fór ég á Man.
Utd- Charlton á Old Trafford og
sá mína menn valta yfir Hermann
Hreiðars og félaga.
Áttu einhvern hlut sem tengist
liðinu? -Já eitthvað af treyjum,
myndum, smádóti og United
sjónvarp sem Rúnar á N1 neitar
að horfa á með mér.
Hvernig gengur að ala aðra
fjölskyldumeðlimi upp í
stuðningi við liðið? -Dagmar
og Jón Gabríel halda með Man.
Utd en Nótt og Mikael halda með
Liverpool og Barcelona. Ég er að
vinna í þessu, verður klárt eftir
nokkur ár.
Hefur þú einhvern tímann skipt
um uppáhalds félag? -Já þegar
ég var spurður að því með hvaða
liði ég héldi á West Ham barnum
á leikdegi með þrjátíu tannlausa
Breta hjá mér og ný búið að
henda einum Liverpool manni út.
Ég var mikill West Ham aðdáandi
rétt á meðan ég kláraði glasið.
Þetta var rétt áður en íslenska
ríkið eða Steingrímur J. eignaðist
West Ham.
Uppáhalds málsháttur? "Aldrei
kemur góður dagur of snemma".
Spurning til þín frá Jóni Óskari
Pétursyni - Ég myndi vilja spyrja
hvort hann telji að hann muni
vinna vodkaveðmálið við Sævar
Birgisson enn eitt árið? -Já ég er
vissum aðégvinnivodkaflöskuna
þetta árið eins og öll hin. Ég og
Sævar veðjum á hverju ári hvort
Liverpool eða Man. Utd verði ofar
í ensku. Ég er oftast búinn að
ráðstafa þessari flösku áður en
leiktíðin byrjar. Fyrir þrem árum
var Sævar orðinn leiður á þessu
tapi og bætti við rommflösku
fyrir það lið sem kemst lengra í
Meistaradeildinni, þetta endaði
svo með því að hann réði sig
í vinnu hjá ÁTVR í Hveragerði,
tilviljun eða hvað??
Hvern viltu sjá svara þessum
spurningum? -Kristmar Geir
Björnsson málara og efnilegasta
leikmann Tindastóls í knattspyrnu
fyrrog síðar.
Hvaða spurningu viltu lauma
að viðkomandi? -Heldur þú
að kaupin á Owen séu kaup
tímabilsins?