Feykir - 08.10.2009, Blaðsíða 6
6 Feylcir 37/2009
Fred býr tit bestu fiskibollur á landinu.
Fred Ulriksen flutti til íslands frá Noregi
og steikir nú fiskibollur
í Noregi heföi ég fengið
nóga styrki og lán meö
heilbrigöum vöxtum
Fred Ulriksen, norskur
sjómaður, flutti til íslands
fyrir nokkrum árum til að
vera með íslenskri konu sinni
og tveimur börnum og hefur
upplifað íslenska efnahags-
undrið frá báðum endum.
Hann hefur undanfarna
mánuði verið að koma á fót
litlu sprotafyrirtæki í
fullvinnslu á fiskiréttum.
Fred þekkir sjómannslífið vel.
I mörg ár vann hann á hinum
ýmsu skipum, m.a. á fraktskipi
sem sigldi milli Þýskalands og
Bandaríkjanna, olíuflutninga-
skipi sem sigldi um öll
heimsins höf auk þess sem
hann starfaði sem yfírbáts-
maður á skemmtiferðaskipi.
Eitt sinn er hann kom heim
í sumarfrí fannst honum sem
komið væri nóg af þessu líferni
og sagði stopp. Fred fékk sér
15 tonna bát og gerði út frá
Öksfjörd í Norður Noregi og
veiddi á línu og net í ein 18 ár
eða þar til hann varð að hætta
vegna þess að öxlin varð ónýt,
eins og hann segir sjálfur. í
Öksfjörd hitti Fred íslenska
konu sem þá var að vinna hjá
systur sinni og endaði það
með því að þau tóku saman og
eiga þau tvö börn, dreng og
stúlku. Fred segir barnsmóður
sína hafa langað til að flytja
aftur til Islands og prófa að
búa þar með fjölskylduna en
hann skildi ekki hvað væri
eftirsóknarvert við það. I
Noregi eru lífsgæði mun betri.
Fred segir að fyrst hafi hann
verið eins og túristi, komið í
heimsókn í sumar- og jóla-
fríum. En svo kom að því að
hann flutti alfarið á landið bláa
árið 2007 eftir að hann hafði
selt bátinn í Noregi. Fred fann
sér verkefni í því að beita fyrir
sjómenn í Skagafirði og á
Skagaströnd en svo af tilviljun
einni lenti hann á þeirri braut
sem hann er að feta núna en
það er að stofna og reka lítið
sprotafyrirtæki. -Ég eldaði
fiskibollur og gaf með mér og
það spurðist fljótlega út hversu
góðar þær væru, þannig að ég
fór að elda fiskibollur fyrir
aðra, segir Fred þegar hann er
spurður að því hvernig
fiskibolluverkefnið byrjaði hjá
honum. -Fólk fór að hvetja
mig til að koma þeim á
markað, svo ég fór að vinna í
því. Fred leitaði lengi að
húsnæði á Sauðárkróki sem
gæti hentað undir fiskibollu-
framleiðslu og eftir langa leit
fékk hann inni í syðri endanum
á Hafnarhúsinu á Króknum
og þar hefur hann innréttað
vinnslu og er kominn með
starfsleyfi. -Fiskibollurnar eru
þær bestu á markaðnum enda
nota ég bara nýjan fisk frá
Skagaströnd í þær, segir Fred
og bætir við að allt hráefni
sem hann notar sé náttúru-
legt.
Erfitt aó koma litlu
fyrirtæki á laggirnar
Vörulínan stækkar óðum hjá
Fred sem framleiðir vörur
sínar undir heitinu Freddy
bollur og nú eru á boðstólnum
steiktar og soðnar fiskibollur,
bollur í karrý, partýbollur og
heilsubollur sem eru gluten-
fríar og með soya mjólk, bollur
blandaðar fiski og kartöflum
og svo er líka fiskibúðingur á
listanum. Framleiðsluna selur
hann í Skagfirðingabúð og í
nokkra leikskóla í Skagafirði
og á Skagaströnd. -Krökk-
unum finnst þetta svo góðar
bollur að þau borða þær upp
til agna. Kokkarnir eru himin-
lifandi með það hvað krakk-
arnir borða þetta vel.
Eins og fyrr er greint frá
leitaði Fred lengi að húsnæði
undir starfsemina á Sauðár-
króki og var ekki um auðugan
garð að gresja í þeim málum
en Fisk Seafood sá aumur á
frumkvöðlinum og leigir
honum syðri hlutann af
Hafnarhúsinu og þó plássið sé
ekki mikið þá fer þarna fram
starfsemi sem skapar einum
manni atvinnu.
En hvernig er að setja á
stofn fyrirtæki á íslandi miðað
við sem gerist í Noregi. -Það
er mikill munur, segir Fred.
-Það er verst að fá ekki neina
styrki til að koma þessu á fót. í
Noregi hefði ég fengið nóga
styrki og lán með heilbrigðum
vöxtum. Lánin eru þannig að
ekki þarf að greiða af þeim
fýrstu fimm árin og þau lækka <
eftir því sem greitt er af þeim '
en hækka ekki eins og gerist
hér. —Og vextirnir eru allt of '
háir hér, segir Fred.
Aðspurður hvort hann
haldi að íslendingum væri
betur borgið innan Evrópu-
sambandsins segir hann svo
ekki vera. -Það bjargar ekki
íslandi að ganga í ESB. íslend-
ingar ættu frekar að gera eins
og Frakkar að mótmæla
kröftuglega og stokka allt upp
í stjórnkerfinu og ættu ekki að
borga Icesave reikningana.
Noregur og ísland ættu að fara
í ríkjabandalag með allan
þennan fisk og þá olíu sem
líklega er að finna á Dreka-
svæðinu. Við gætum misst
veiðiheimildir til annarra
landa, segir Fred og er niðri
fyrir hvernig komið er fyrir
okkur. -Það er bara ekki hægt
að ísland fari í ESB.
En þrátt fyrir kreppu og
erfiðleika í íslensku efnahags-
lífi er Fred jákvæður og bjart- i
sýnn á sinn litla rekstur og J
skorar á alla að smakka. -Þetta
eru bestu bollurnar á landinu,
segir Fred og blaðamaður
getur svikalaust tekið undir
það.
Fiskibollurnar stikna á pönnunni.
Freddy-bollur sóma sér vel i kjötborðinu ÍSkaffó.
Hráefnið er fyrsta flokks o£ bragðið eftir því.