Feykir - 08.10.2009, Qupperneq 8
8 Feykír 37/2009
( TÖLVUPÓSTURINN )
Hvað er nú að frétta frá Hofsósi?
Það er allt gott að frétta frá
Hofsósi eftir því sem ég best veit.
Hér gengur allt sinn vanagang.
Það bíða allir í ofvæni eftir
sundlauginni góðu, sem nú er
óðum að verða tilbúin. Það verður
gott að geta byrjað daginn á því
að setjast í heita pottinn.
En af þér sjálfum? -Ljómandi
gott, þakka þér fyrir. Ég er í
fæðingarorlofi sem stendur og
nýt þess að vera heima með 10
mánaða gömlum syni mínum.
Þú ert formaður Skagafjarðar-
deildar Rauða krossins. Hvernig
er að starfa á þeim vettvangi?
-Það er mjög lærdómsríkt og
gefandi. Innan deildarinnar starfar
margt gott og reynslumikið fólk og
er frábært að fá að starfa við hlið
þess. Það hefur í alla staði verið
ánægjulegt að fá að kynnast og
taka þátt í starfi Rauða krossins
á því rúma ári sem ég hef verið
formaður.
Gunnar Jóhannesson, sóknarprestur á
Hofsósi, er fqrmaöur Skagafjarðardeildar
Rauóa kross íslands. Rauói krossinn
stendur fyrir kynningarviku vikuna
12.-17. október en þá vikuna ætlar
Skagafjaróardeildin aó standa fyrir
nnargs konar uppákomunn til þess
aó kynna starfsemi sína. Feykir sendi
Gunnari tölvupóst og forvitnaóist um
starfsemina.
Lærdómsríkt og
gefandi starf
Hver eru helstu verkefni deildar-
innar? -Þau eru margvísleg. Hin
sístæðu verkefni deilarinnar lúta
að neyðarvörnum, skyndihjálp og
sálrænum stuðningi. Af öðrum má
t.d. nefna heimsóknarvini, sem er
kærleiksþjónusta í samstarfi við
kirkjuna er miðar að því að rjúfa
félagslega einangrun fólks. Þá er
starfræktur prjónahópur á vegum
deildarinnar sem hittist reglulega
og prjónar til góðs með því að
gefa afraksturinn til þeirra sem
þurfa hans með. Einnig heldur
deildin úti fatamarkaði. Þá lætur
deildin sig málefni innflytjenda
varða og hefur m.a. efnt til sk.
þjóðakvölds undarfarin ár, en þar
hafa innflytjendur komið saman,
kynnt heimaland sitt og átt saman
góða kvöldstund. Þá eru ótalin
ýmiskonar námskeið og fræðsla,
m.a. skyndihjálparnámskeið, opið
hús, starf með fötluðum o.fl.
Hvaða verkefni eru framundan?-
Nú stendur fyrir dyrum
kynningarvika Rauða krossins
sem fram fer annað hvert ár á
landsvísu. Kynningarvikan verður
12.-17. október og þá ætlar
Skagafjarðardeildin að láta vita
af sér og starfi sínu. Þann 14.
okt. verður opið hús í húsnæði
deildarinnar að Aðalgötu lOb
frá 20-22. Það verður heitt á
könunni og fólk getur kynnt sér
starf deildarinnar, hitt stjórnina
og annað starfsfólk - en þess
má geta að deildin hefur fengið
til sín nýjan starfsmann, Sigríði
Ólafsdóttur frá Hólum í Hjaltadal.
Föstudaginn 16. okt. verðum
Gunnar ásamt Örvari og Hákoni tombóludrengjum.
við svo í Skagfirðingabúð frá kl.
16-19 og kynnum deildina. Karl
Lúðviksson, sem er sérfræðingur
deildarinnar í skyndihjálp, verður
á staðnum. Hann mun kynna
skyndihjálp og leyfa fólki að
spreyta sig á skyndihjálpardúkku
á staðnum. Svo má ekki gleyma
myndatökunni á laugardeginum
17. okt. Þá er ætlunin að kalla
til eins marga og hægt er að
koma í rauðum fötum og mynda
í sameiningu stóran kross.
Ljósmydari mun vera í körfubíl
slökkviliðsins og taka mynd af
krossinum. Það verða myndaðir
svona krossar víða um land - en
við stefnum auðvitað að flottasta
krossinum. Myndin verður síðan
sett á jólakort sem fólk getur
keypt og sent ættingjum og styrkt
um leið Rauða krossinn. Vonandi
sjá sem flestir sér fært að taka
þátt í þessu með okkur.
Er nægjanleg nýliðun innan
Rauða krossins? -Það er ótrúlegt
hve margir eru tilbúnir til að
leggja lóð sín á vogarskálarnar.
Hver og einn skiptir máli.
Skagafjarðardeildin hefur marga
sjálfboðaliða innan sinna raða. En
auðvitað er alltaf þörf fyrir fleiri.
Eftir því sem fleiri taka höndum
saman þeim mun öflugra verður
starfsemin. Þess má geta að hægt
er að skrá sig sem sjálfboðaliða
á heimasíðu deildarinnar. Einnig
verður hægt að skrá sig á opnu
húsi sem og í Skagfirðingabúð í
kynningarvikunni.
Er mikið leitað til Rauða kross-
ins í því ástandi sem nú ríkir í
þjóðfélaginu? -Já. Það er ekki
síst í ástandi sem þessu að þörfin
fyrir starfsemi Rauða krossins
kemur í Ijós. Neyðaraðstoð
Rauða krossins hefur komið
fram með margvíslegum hætti,
m.a. í gegnum námskeið, fata-
úthlutun, sálrænan stuðning,
peningasöfnun, opin hús o.fl.
Þá hafa einstaka deildir víða
brugðist við kreppunni í samstarfi
við stofnanir á sínu heimasvæði.
Snætt í Söluskálanum Hörpu
Lífleg hádegi
Hörður Gylfason hefur frá því
um áramót staðið vaktina
á bak við búðarborðið f
Söluskálanum Hörpu á
Hvammstanga. í hádeginu
er jafnan mikið líf í Hörpu
þar sem boðið er upp á
heimilismat samhliða þvf
sem heimsmálin eru gjarnan
leyst.
Blaðamenn Feykis koma
gjarnan við í Hörpu þegar
komið er á Hvammstanga,
fá sér að borða og ná
um leið að setja fingur á
púlsinn sem slær af krafti
í fjörugum umræðum
yfir hádegissteikinni nú
eða djúsí hamborgara.
Aðspurður segir Hörður
að í Hörpu komi yfir árið
þessi fasti kjarni 10 karla
sem komi og fái sér að
borði í hádeginu, en í sumar
hafi verið líflegra þar sem
verktaki hafi verið að vinna
á Hvammstanga og því hafi
allt að 30 manns borðið í
hádeginu með tilheyrandi
fjöri. -Ég sest oft niður
hérna í hádeginu til þess að
hlusta á karlana og ekki síst
þeirra sýn á þjóðfélagsmálin
því allir eru þeir með réttu
lausnirnar þó svo að oft séu
lausnirnar líka jafn margar
og hausarnir hér inni, segir
Hörður og hlær.
Hörður byrjaði að vinna
í Hörpu um sl. áramót en
þar áður hafði hann verið
að vinna við smíðar hjá
Tveimur smiðum. -Þetta
er fínt, þægileg og þrifaleg
innivinna. Hér hittir maður
alla og hefur nóg að spjalla.
Við hér í sjoppunni erum
alltaf með það á hreinu hvað
er að gerast í bænum, segir
Hörður og hlær.
Er sjoppan þá svona
hjartað í smábæjarlífinu?
-Já, og nei. Hingað kemur
ákveðinn kjarni og ræðir
málin en gömlu karlarnir
hafa þann sið að hittast í
Kaupfélaginu á morgnanna
og þar eru heimsmálin
ekki síður leyst. Ætli þeir
myndu nokkuð samþykkja
að hér væri hjartað. í þeirra
augum er Kaupfélagið nafni
alheimsins, svarar Hörður
glettnislega um leið og hann
stendur upp. Það er beðið
eftir afgreiðslu og skyldan
kallar. Við rennum niður
síðasta bitaum og þökkum
fyrir okkur þangað til næst.
Þaó er oft líflegt ihádeginu.