Feykir - 22.10.2009, Blaðsíða 11
39/2009 Feykir 11
( MATGÆOINGAR VIKUNNAR )
Elvar og Sigríöur kokka
Humarfyllt nauta-
lund í byrjun vetrar
Að þessu sinni eru það Elvar Már Jóhannsson og Signður
Ósk Bjarnadóttir á Sauðárkróki sem koma með uppskriftir
vikunnar. Humarfyllt nautalund og Daim ostakaka er á
boðstólnum.
Elvar og Sigríður skora á Björgvin Jónsson og Gyðu Mjöll
Níelsdóttir Waage, Brekkugötu 5 á Sauðárkróki, að koma með
næstu uppskrift
AÐALRÉTTUR
Humarfyllt
nautalund
1 nautalund
6 til 12 humarhalar
1 chili
2 msk. maískom
10 gr. graslaukur
Salt ogpipar
Aðferð: Saxið humarinn í
grófa bita en finsaxið graslauk
og chili. Hrærið saman ásamt
maískornunum. Skerið í
lundina langsum og fyllið með
humarblöndunni. Gott er að binda
utan um lundina og loka sárinu.
Steikið lundina eða grillið.
EFTIRRÉTTUR
Daim ostakaka
16 stk. Haust hafrakexkökur
125 gr. brœttsmjör
400 gr. rjómaostur
120 gr. flórsykur
250gr. Daim kúlur eða Daim
súkkulaði (brytjað)
'A l rjómiþeyttur
Aðferð: Hrærið haffakexið og
smjörið saman, setjið í lausbotna
form og þjappið kexinu vel í
botninn og út í kantana. Látið
kólna í u.þ.b. 30 mín. Hrærið
saman rjómaostinum og
flórsykrinum, bætið þeytta
rjómanum út í og síðan Daim
kúlunum. Þessu er hellt yfir
botninn. Gott er að láta kökuna
bíða í smá stund í ísskáp eða á
köldum stað fyrir ff amreiðslu.
Verði ykkur að góðu!
Dagur atvinnulífsins á Blönduósi
Kraftinn þarf aó virkja
Frumkvöðlakraftur og hugmynda-
flug einkenndi vel heppnaðan Dag
atvinnulífsins sem haldin var á
Blönduósi í síðustu viku. Sérstakir
gestir voru Þorsteinn Sigfússon
hjá Nýsköpunarmiðstöð og Einar
Bárðarson, hugmyndasmiður og
athafnamaður. Þá var Léttitækni á
Blönduósi veitt verðlaun við þetta
tækifæri sem fýrirtæki ársins á
Norðurlandi vestra.
Dagskráin hófst á ávarpi
formanns SSNV og af því loknu tók
Guðrún Helgadóttir, deiidarstjóri
Ferðamáladeildar Háskólans á
Hólum við stjórn fundarins.
Fyrirtækin ísaumur, Vilkó,
Léttitæki, Nes listamiðstöð og
saumastofan Þing voru tilnefnd
til Hvatningarverðlauna SSNV
atvinnuþróunar. Fyrirtækin kynntu
starfsemisínaogforsvarsmennþeirra
fóru yfir stöðu og framtíðarhorfur.
Þorsteinn Ingi Sigfusson forstjóri
Nýsköpunarmiðstöðvar flutti erindi
sem bar yfirskriftina "Nýsköpun á
krepputímum". í erindi sínu kom
Þorsteinn víða við um hlutverk
og gildi nýsköpunar og varpaði
fram skemmtilegum hugmyndum
um nýja atvinnustarfsemi í
Húnavatnssýslum og Skagafirði.
Einar Bárðarson "Umboðsmaður
íslands" og ímyndarsmiður flutti
erindi um uppbygginu ímyndar
og tók skemmtileg dæmi úr
eigin reynslubanka og tengdi við
viðfangsefnið.
Að loknum framsögum voru
pallborðsumræður undir stjórn
Líneyar Árnadóttur, forstöðumanns
Vinnumálastofnunar á Norður-
landi vestra. I pallborði sátu
auk frummælenda, Aldolf H.
Berndsen oddviti á Skagaströnd
og framkvæmdastjóri Marska,
Hugmyndaþingið var vel sótt.
Elín Lindal, formaður stjórnar SSNV og Jakob Jónsson
hjá Léttitækni.
Arnar Þór Sævarsson, bæjarstjóri
á Blönduósi og stjórnarformaður
Vaxtarsamnings Norðurlands vestra
og Elín R. Líndal formaður stjórnar
SSNV og framkvæmdastjóri For-
svars á Hvammstanga. Líflegar
umræður urðu um atvinnumál og
nýsköpun á Norðurlandi vestra.
Voru fundarmenn sammála um að
það sem kannski vantaði einna helst
upp á hér á svæðinu væri aukinn
Vikló ojjPrima kynntu breiða vörulinu fyrirtækisins..
kraítur í markaðssetningu þess sem
vel er gert. Virkja betur þann mikla
frumkvöðlakraft sem þó er að finna
á svæðinu.
Að lokum voru Hvatningarverð-
laun SSNV atvinnuþróunar árið
2009 afhent en verðlaunin hlaut
Léttitækni á Blönduósi.. Fyrirtækið
er í eigu Jakobs Jónssonar og
Katrínar Líndal á Blönduósi og er
stofnað árið 1995.
Léttitækni sérhæfir sig í framleiðslu
og innflutningi á tækjum til að létta
dagleg störf og auka afköst, allt frá
léttum vögnum og trillum upp í
stóra sérhæíða lyftara. Fyrirtækið
hefur frá upphafi haft það að megin
markmiði að framleiða og flytja
inn vörur til að létta störf og auka
afköst starfsmanna í íslenskum
fyrirtækjum. Þessi tæki eru
nefnd "léttitæki" og af því er nafn
fyrirtækisins dregið. Þá er fyrirtækið
umsvifamikið í framleiðslu og
uppsetningu hillukerfa.
Léttitækni hefur sýnt fram á að
fyrirtæki í sérhæfðri framleiðslu geta
náð góðum árangri með starfsemi
á landsbyggðinni. Forsvarsmenn
fyrirtækisins hafa lagt áherslu á
vöruþróun með það að markmiði
að mæta síbreytilegum þörfum
markaðarins. Fyrirtækið hefur vaxið
mildð síðustu misseri ekki síst vegna
opnunar söludeildar í Reykjavík og
aukinnar áherslu á innflutning.
Fékk Jakob af þessu tilefni
afhentan verðlaunagrip sem að
þessu sinni er tréskurðarverk gert
af Hrefnu Aradóttir handverks- og
listakonu á Blönduósi. Gripurinn er
skorinn út í Húnvetnskan alaskavíði
á fæti úr lerkisneið.
Hvatningatverðfaun SSNV hafa áður verið
veitt eftirtöldum aðiium:
Árið 2008 - Sjávarleður á Sauðárkróki.
Árið 2007 - Siglufjarðar Seigur - bátasmiðja.
Árið 2006 - Forsvar ehf á Hvammstanga.
Árið 2004 - Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi.
Árið 2003 - Háskólinn á Hólum.
Árið 2002 - Síldarminjasafnið á Siglufirði.
Árið 2001 - Hestamiðstöðin Gauksmýri.
Árið 2000 - Vesturfarasetrið á Hofsósi.
Árið 1999 - Kántrýbær á Skagaströnd.
Á milli 60-70 manns sóttu Dag
atvinnulí fsins og vilj a fulltrúar SSN V
kom á framfæri þakklæti til allra
þeim sem komu að undirbúningi á
einn eða annan hátt og vonast til að
sjá sem flesta að ári liðnu.