Feykir


Feykir - 26.11.2009, Síða 29

Feykir - 26.11.2009, Síða 29
★ ■ »■•***-**. * JðMMRH M Vestfirskar hveitikökur Góöar meö hangikjötinu Gróa Haraldsdóttir eða Gógó eins og hún er alltaf kölluð, er fædd og uppalin á Flateyri við Önundarfjörð en þar borða menn vest- firskar hveitikökur á jólum í stað hins hefðbundna laufabrauðs sem við Norð- lendingar þekkjum. -Einu sinni var þetta bara bakað fyrir jólin og kynslóðin íyrir ofan mig drýgði þær með kartöflum en ég geri það ekki mömmu minni til mikillar gleði, segir Gógó og hlær. -Eru þær eins mjúkar, spyr hún alltaf með áhyggjutón, bætir hún við. Hveitikökurnar eru lagðar á kaffiborðið innan um smá- kökurnar og terturnar og má segja að þær séu mitt á milli soðna brauðsins og flatkökunnar. Hveitikökur eru bornar fram annað hvort með smjöri og osti en jólalegastar eru þær með hangikjöti, eins líka er gott að hafa reyktan lax eða silung. Gógó bakar alltaf hveiti- kökur úr kilói af hveiti. Vestfirskar hveitikökur 1 kg. hveiti 8 tsk. lyftiduft 2 msk. sykur 2 tsk. salt 150 gr. smjörlíki 7 dl. súrmjólk 2egg Fimm hundruð grömm af hveiti fara í vélina auk alls hins og er það hrært saman. Hin fimm hundruð grömmin eru sett á borðið og hnoðuð saman við grunndeigið. Úr þessu verða 15-17 kökur. Byrjað er á því að skipta deiginu upp og það siðan flatt út og kökur mótaðar með millistórum disk. Þvi næst þarf að stinga þær vel með gaffli og síðan eru þær steiktar á þurri pönnunni en ég tek engan tíma heldur baka þær sitt hvorum megin þar til þær eru farnar að taka góðan lit. Fyrir þá sem ekki þekkja hveitikökur má benda á að þær eru ekkert ósvipaðar Nanbrauði í útliti. Aðspurð segist Gógó ekki verða vör við að jólaundir- búningur sé með öðru sniði á Sauðárkróki en á Flateyri. -Fyrir utan hveitikökurnar er þetta allt mjög svipað, segir hún. Þau Gógó og Pétur Björns- son eiginmaður hennar hafa búið á Sauðárkróki í eitt og hálft ár en nú er svo komið að þau missa núverandi húsnæði sitt um áramót og eru ekki enn komin með þak yfir höfúðið. -Við kunnum öll rosalega vel við okkur hér og viljum gjarnan vera áffam þannig að ef einhver veit um húsnæði handa lögregluvarðstjóra og fjölskyldu hans þá má viðkomandi sko alveg hafa samband, segir Gógó að lokum og hlær. ^H Er með vörur frá Georg Jensen, Rosendahl, Ritzenhoff og Cult, sem er handunnin sænsk vara. Saltkristalslampa, keramik, glervörur, skartgripi o.m.fl. 10% afsláttur fyrir eldri borgara. Verslum íheimabyggð BLÓM & GJAFAVARA Blönduósi - Sími:452 4643 - Gsm:895 8325 Pöickum frábærar viðtöbur Vantar ykkur hressa og ferska rafvirkja Nýlagnirjoftnet, tölvulagnir og viðgerðir á heimilstækjum. Allt milli himins og jarðar til sjávar og sveita Erum með heildarlausnir í öryggismyndavélakerfum. Einnig GSM vélarnarvinsælu. Gerumföstverðtilboð. PARDUS : Hofsósi : C 453 7380 / 863 1288 : Netfang rafmagn(g)pardusehf STOЙ VERKFRÆÐISTOFA í 20 ár AÐALGÖTU21•550 SAUÐÁRKRÓKI SÍMI 453 5050 • FAX 453 6021 www.stodehf.is stod@stodehf.is KÆRLEIKSKULAN 2009 Kærleikskúlan verður til sölu í Blóma- og gjafabúðinni fró 5. - 19. des. /Vy/ Starfsfólk Blóma- og gjafabúðarinnar opið frá kl. 11. Mikið úrval af fallegri gjafavöru ngum

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.