Tölvumál - 01.11.2011, Page 37

Tölvumál - 01.11.2011, Page 37
T Ö LV U M Á L | 3 7 Mjög mikilvægt er að upplýsingaflæði í neyðarþjónustu gangi hnökralaust fyrir sig. Þegar einhver hefur samband við neyðarlínuna og óskar eftir aðstoð Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins (SHS ) getur þurft að koma miklu magni af upplýsingum til þeirra sem eiga að sinna útkallinu. Oftast eru upplýsingar um útkallið að uppfærast á meðan SHS er á leið á útkallsstað því er mikilvægt að koma þeim jafn óðum til skila. Fram til þessa hefur mest verið stuðst við talstöðvarsamskipti milli neyðarvarða og áhafna útkallsbíla. Þetta þýðir að áhafnarmeðlimir þurfa að leggja upplýsingarnar á minnið og eða skrifa á miða úti í bíl, einnig kallar þetta á mikil samskipti í talstöðvum og hefur í för með sér mikið áreiti því allir heyra í öllum sem eru á sömu rás (talhóp). Ekki er nóg að geta komið upplýsingum til áhafna útkallsbíla heldur þurfa neyðarverðir að gera sér grein fyrir staðsetningu og stöðu þeirra svo þeir geti fylgst með stöðu flotans og nýting verði sem best. Með því að vita hvar útkallstæki eru staðsett og verkefnastöðu þeirra er auðveldara að finna þann bíl sem næstur er útkallstað og þannig stytta viðbragðstímann. Síðastliðin 15 ár hefur verið ör þróun á fjarskiptabúnaði útkallstækja og sérstaklega með tilkomu Tetra fjarskiptakerfisins (e. Terrestial Trunked Radio). Það hefur gefið fleiri möguleika til flotastýringar og greiningu á rekstri SHS. Það að geta safnað gögnum gefur skýrari ákvarðanatöku og hefur leitt til þess að SHS sér hag sinn í því að halda áfram að tæknivæða starfsemi sína. Verkefnið Greinahöfundar unnu lokaverkefni í tölvunarfræði við Háskólann í Reykjavík í samstarfi við Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins bs. (SHS) vorið 2011. Markmið verkefnisins var að gera bestun á hvaða útkallstæki sé fljótast á vettvang þegar útkall verður hjá SHS. Ferilvöktun og sending gagna í rauntíma fyrir slökkvi- og sjúkrabíla Ólafur Kr. Ragnarsson, forritari hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðsisn bs. (SHS) og nemandi í kerfisfræði við HR Ómar Traustason, framleiðslustjóri Nimblegen og tölvunarfræðingur frá HR Karl Helgason, hugbúnaðarprófari hjá Sabre Airline Solutions og nemandi í tölvunarfræði við HR Verkefnið fólst í að taka á móti skilaboðum frá útkallstækjum SHS um staðsetningu þeirra og verkefnastöðu og birta þær upplýsingar á korti í rauntíma. Þegar svo útkall verður á hugbúnaðurinn að geta nýta sér þekkingu á staðsetningu útkallstækja til þess að finna eftir ákveðnum skilyrðum hvaða tæki sé næst vettvangi í tíma. Einnig að þróa hugbúnað fyrir útkallsbíla sem sér um að senda skilaboð með upplýsingum um staðsetningu og verkefnastöðu. Einnig að taka á móti skilaboðum frá neyðarlínu með upplýsingum um verkefni og birta á skjá. Notast var við SDS (e. Short Data Service) samskiptastaðalinn í Tetra kerfinu sem samskiptaleið fyrir gagnasendingar. SDS samskiptastaðlinum má líkja við SMS staðalinn í GSM kerfinu. Útfærsla verkefnisins Til þess að geta uppfyllt kröfur verkefnisins var því skipt upp í þrjá þætti með yfirskriftinni Viti. • Viti bílar sem var hugsaður sem hugbúnaður í bílum SHS þar sem áhafnarmeðlimir geta skráð verkefnastöðu og forritið sendir sjálfkrafa ferilvöktunarskeyti og upplýsingar um stöðu ökutækis. Einnig er hægt að taka á móti skilaboðum með upplýsingum um útkall fyrir áhafnarmeðlimi. Samskiptin fara fram í gegnum Tetra kerfið. • Viti þjónn var hugsaður sem hugbúnaður sem miðlar upplýsingum til og frá Tetra kerfinu yfir á staðarnet (e. local network) SHS svo hægt sé að vinna með þær. • Viti ferilvöktun var hugsaður sem hugbúnaður sem heldur utan um bíla SHS. Viti ferilvöktun birtir staðsetningu, stöðu og stefnu bíla í rauntíma á korti, sýnir lista af bílum og verkefnastöðu þeirra og hefur möguleikann á að reikna hvaða bílar eru næst ákveðinni staðsetningu í tíma og vegalengd.

x

Tölvumál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.