Jón á Bægisá - 01.12.2005, Blaðsíða 33
Tengsl listaskdldsins góða og Ijóta andarungans
eins og fífillinn. Bæði ævintýrin gerast úti í náttúrunni. Sólin kyssir bæði
grenitréð og fífilinn. Tréð lifði í mörg ár en fífillinn bara eitt sumar.
Jónas er við sama heygarðshornið í verki sínu „Fífillinn og hunangs-
flugan“ og í ævintýrinu „Leggur og skel“. Hann ber lof á iðni hunangsflug-
unnar sem dregur björg í bú og farnast vel. Draumóraveran upplifir ógn
næturinnar og getur ekkert gert sjálf eins og grenitré H.C. Andersens.
Jónas er hér sjálfum sér og Fjölnismönnum samkvæmur, setur fegurðina,
nytsemina, sannleikann og það sem er gott og siðsamlegt á oddinn í þessu
ævintýri sínu.
Fodreise og „Salthólmsferð“
Arið 1829 kom út í Kaupmannahöfn bókin Fodreisefra Holmens Canal til
0stpynten afAmager iAarene 1828 og 182(1 eftir H.C. Andersen. Þegar lesin
er frásögn Jónasar, „Salthólmsferð. Sendibréf herra Jónasar Hallgrímssonar
til sinna samferðamanna", kemur strax í hugann frásögn H.C. Andersens.
Jónas skrifar ferðasögu sína sumarið 1836 eins og sjá má í textanum, þ.e.
nokkrum árum á eftir hinni ferðasögunni. Páll Valsson ræðir frásögn
Jónasar í ævisögu sinni um Jónas. Páll dagsetur þar hvenær Jónas lagði upp
í gönguferð sína, þ.e. 26. júlí 1836 (1999: bls. 147). Textatengsl eru mikil
milli frásagnar Jónasar og ferðasögu H.C. Andersens. Þetta eru hvor
tveggja ferðasögur frá Sjálandi. Jónas fer aldrei í ferð sinni til Salthólma,
heldur gengur í þveröfuga átt, norður á bóginn. Sögupersóna Andersens
ferðast um svæðið við brýrnar Langebro og Knippelsbro í
Kaupmannahöfn, fer um Christianshavn og yfir á Amager. Ferðin endar
þar sem hún stendur á strönd Amager og horfir út á Salthólmann:
Þá uppgötvaði ég bát nálægt mér ... og gerði mér ferð yfir á Salthólmann, það
gæti verið mjög spennandi að enda á sjávarævintýri (Þýðing mín).
Da opdagede jeg en Baad i Nærheden. ... <og gjorde en Reise over til Saltholm,
det kunde jo være ganske interessant at ende med et S0e-Eventyr> (Fodreise
2003: bls. 101).
En H.C. Andersen fer ekki heldur yfir á Salthólmann í frásögn sinni.
Það sem er líktr.
Báðar eru ferðasögur á Sjálandi
Hvorugur fer út á Salthólma.
á-.Flrrydíá — TlL ÞESS ÞARF SKROKK!
31