Hagskýrslur um manntöl - 01.01.1937, Blaðsíða 16
14
Mannlalið 1930
Neskaupstað og Vestmannaeyjum (3V2—4°/o), töluvert minni á ísafirði
(um 2V2°/o), en lítil á Seyðisfirði (3/4°/o).
f sýslunum var mannfjöldinn við manntalið 1930 alls 62 766. Hafði
hann lækkað um 2098 manns síðan 1920, þó að Neshreppur í Suður-
Múlasýslu sé ekki meðtalinn 1920. .Að eins í 6 sýslum hefur fólki eitt-
hvað fjölgað á þessu tímabili, en fjölgunin er allsstaðar lítil, nema í Gull-
bringu- og Kjósarsýslu. En þar stafar fjölgunin mestmegnis frá vexti
verslunarstaðanna í sýslunni. A þessu límabili hefur mannfjöldinn í allri
sýslunni vaxið um 1015, en í Keflavík og Skildinganesi hefur hann vaxið
samtals um 841. í 12 sýslum hefur fólki fækkað á þessu tímabili, tiltölu-
lega mest í Dalasýslu (um 14 °/o á öllu tímabilinu), en þar næst í Arnes-
sýslu (um 13 °/o) og ísafjarðarsýslu (um 12°/o).
3. Mannfjöldi í bæjum og sveit.
Population urbaine et rurale.
í sveitarstjórnarlögunum frá 1905 var svo ákveðið, að hver verslun-
arstaður, sem hefur yfir 300 íbúa, hafi rétt til að vera hreppur út af
fyrir sig, og hafa ýmsir verslunarstaðir notað sér þá heimild og gerst
sérstök sveitarfélög. Þetta er ástæðan til þess, að komist hefur á sú
venja hér á landi, að telja verslunarstaði með yfir 300 íbúa til bæja, en
þá sem minni eru til sveita. Við tvö síðustu manntöl hefur mannfjöld-
inn samkvæmt því skifst þannig milli bæja og sveita.
Ðeinar tölur Hlutfallstölur
1920 1930 1920 1930
Reykjavlk 17 679 28 304 18.7 o/o 26.0 o/o
Aðrir kaupstaðir 11 377 17 791 12.6 — 16.3 —
Verslunarstaðir (með yfir300 íbúa) 11 389 13 289 12.0 — 12.2 —
Bæir samtals 40 445 59 384 42.6 % 54.5 o/o
Sveitir 54 245 49 477 57.3 — 45.5 —
Alt landið 94 690 108 861 lOO.o o/o lOO.o o/o
í töflu VII og VIII (bls. 22 og 23) er nánari sundurliðun á íbúa-
tölunni í bæjum og sveitum við manntalið 1930. 1920 voru kaupstaðirnir
ekki nema 6 fyrir utan Reykjavík, en 1930 voru þeir 7, því að Nes-
kaupstaður bættist við árið 1929. Við manntalið 1920 var hann því tal-
inn með verslunarstöðum. Auk Neskauptúns í Norðfirði voru 21 verslunar-
staðir með yfir 300 íbúa 1920, en 1930 voru þeir orðnir 24, svo að
4 verslunarstaðir hafa komist upp yfir 300 á áratugnum. Þessir versl-
unarstaðir voru Skildinganes, Bíldudalur, Hrísey og Búðareyri í Reyð-
arfirði.