Hagskýrslur um manntöl - 01.01.1937, Blaðsíða 41
Mannfaliö 1930
39’
minst í Reykjavík. Sama máli gegnir um meðaltölu barna innan 14 ára
á hvert heimili.
í töflu XVII (bls. 68—71) er yfirlit um skiftingu þjóðarinnar eftir
stöðu á heimili í sambandi við stærð heimilanna. En heimilisstaðan er þar
ekki sundurliðuð eins mikið eins og í 15. og 16. yfirliti.
F. Skifting þjóðarinnar eftir atvinnu.
Population par profession.
1. Aðalyfirlit.
Apevfu général.
í töflu XIX (bls. 74—79) er aðalyfirlit um skiftingu þjóðarinnar
eftir atvinnu í bæjum og sveitum og á öllu landinu. Utdráttur úr þeirri
töflu er í 17. yfirliti (bls. 40*). Er þar einnig tekin til samanburðar atvinnu-
skifting þjóðarinnar við manntalið 1920. Til hverrar atvinnu eru taldir allir,
sem þá atvinnu stunda sem aðalatvinnu, ásamt konum þeirra og öðru
skylduliði, sem er á þeirra framfæri, en innanhúshjú eru talin sem sér*
stakur atvinnuflokkur. Undir liðinn »01íkamleg atvinna* fellur ýmiskonar
opinber starfsemi, svo sem við kirkjumál, kenslumál, umboðsstjórn, dóms-
mál og heilbrigðismál, svo og starfsemi við bókmentir og listir. Ostarf-
andi teljast þeir, sem lifa á eftirlaunum, ellistyrk eða sveitarstyrk, svo
og þeir, sem lifa af eignum sínum.
Rúftilega þriðjungur landsmanna lifir á landbúnaði, rúmlega fimti
hluti á fiskveiðum og sjöundi hluti á iðnaði. Verslun og samgöngur
standa jafnfætis með 7ty2°/o af landsmönnum hvor fyrir sig, þá koma
heimilishjú 5°/o, ólíkamleg atvinna 4V2°/o og óstarfandi fólk 3V2°/o af
landsmönnum.
Á samanburði við árið 1920 sést, að fólki við landbúnað hefur
fækkað á síðastliðnum áratug um 4°/o, og innanhúshjúum enn meir, en
allir aðrir atvinnuflokkar hafa vaxið. Tiltölulega mest hefur fjölgunin ver-
ið í iðnaði, 47 °/o, svo og í verslun og samgöngum og ólíkamlegri atvinnu,
um 40 °/o, en fiskveiðar hafa hækkað um 30°/o. Fækkunin á innanhús-
hjuunum stafar líklega af mismunandi úrvinslu úr skýrslunum, því að
greiningin á milli innanhúshjúa og atvinnuhjúa er oft vafasöm, einkan-
lega í landbúnaðinum.
Á 17. yfirliti sést, hvernig mannfjöldinn í bæjum og sveitum skiftist
á atvinnuvegina, og er það líka sýnt með hlutfallstölum í síðari hluta yfir-