Hagskýrslur um manntöl - 01.01.1937, Blaðsíða 43
Manntalið 1930
41
af vinnukonum í sveitum felst til landbúnaðar) og líku máli er að gegna
um óstarfandi fólk (eftirlauna- og eignafólk, styrkþega o. fl).
í töflunum eru, eins og áður segir, innanhúshjú talin sem sérstak-
ur atvinnuflokkur, en þar sem kaup þeirra er tekið af afrakstrinum af
atvinnu húsbænda þeirra, má líka segja, að þau lifi á þeim atvinnuvegi
alveg eins og húsmæður og annað skyldulið, sem vinnur að heimilis-
störfum. Ef ráðskonum og innanhúshjú\im hjá einstökum mönnum er
bæft við atvinnuflokk húsbænda þeirra, þá verður tala allra þeirra, sem
lifa á hverjum atvinnuvegi þannig:
Landbúnaður ................ 40 381 37.1 °/o
Fiskveiðar.................. 24 336 22.4 —
Iðnaður .................... 16 451 15.í —
Verslun ..................... 8 912 8.2 —
Samgöngur ................... 8 517 7.8 —
Olíkamleg atvinna ........... 5 246 4 8 —
Ræstingakonur o. fl....... 723 0.7 —
Óstarfandi fólk ............. 4 121 3.8 —
Ótilgreind alvinna ....... 174 0.1 —
Samtals 108 861 100.0 %
2. Framfaerendur og framfaerðir.
Soutiens et nourris.
Þegar taldir eru allir þeir, sem lifa á einhverri afvinnu, eins og
gert er í 17. yfirliti, þá er aðeins nokkur hluti þeirra starfandi að at-
vinnunni, en allir hinir eru framfærðir af þeim, sem að atvinnunni starfa.
Hvernig fólk í ýmsum afvinnugreinum skiftist eftir framfærslu sést í XIX
— XXI. töflu (bls. 74—121). Hafa allir verið taldir framfærendur, sem
algjörlega sjá fyrir sjálfum sér, að svo miklu leyti sem það var sýnilegt
á manntalsskránum, eða að minsta kosti ekki hafa að neinu leyti getað
talist framfærðir af öðrum einstaklingum. Þeir, sem njóta styrks af al-
mannafé eða lifa á eftirlaunum, hafa því verið taldir framfærendur, ef
styrkurinn eða eftirlaunin eru veitt þeim sjálfum, en skyldulið þeirra,
konur og börn, talið framfært af þeim. Framfærðir hafa verið taldir gift-
ar konur, börn og annað skyldulið, sem ekki hefur tilgreint neina at-
vinnu. Ðörn innan 14 ára hafa alment verið talin sem framfærð, nema
sérstök ástæða hafi verið til að breyta frá því.
{ 18. yfirliti (bls. 42*) sést, hvernig mannfjöldanum var skift eftir
framfærslu við manntalið 1930 og til samanburðar teknar tölur frá 1920.
Tæpur helmingur landsmanna (eða 46°/o) eru þannig faldir fram-
færendur, 46 °/o af körlum, en 29°/o af konum. Að framfærendur meðal
kvenna eru svo miklu færri heldur en meðal karla, stafar auðvitað fyrst
t