Hagskýrslur um manntöl - 01.01.1937, Blaðsíða 52
50
Manntaliö 1930
sem þar hefðu átt að teljast, hafi lent annarsstaðar og talan, sem hér er
tilfærð fyrir árið 1920, sé því of lág.
Heimilishjú. I þeim flokki töldust alls við manntalið 1930 5612
manns eða rúml. 5 °/o af landsmönnum. Er það lægra hlutfall heldur en
við næsta manntal á undan, sem sjálfsagt stafar af mismunandi úrvinslu
manntalanna. Skifting framfærenda í þessum flokki er þannig.
1930 1920
Ráðskonur ................................ 1614 687
Innanhúshjú hjá einstaklingum............. 3275 5157
Innanhúshjú í stofnunum.................... 197 116
Ræstinga- og þvottakonur................... 383 77
Miðstöðvakyndarar o. fl..................... 16 8
5485 6045
Töluverð vandkvæði eru á því að ákveða rétt tölu innanhúshjúa í
sveitum, vegna þess, að það er oft ekki skýrlega tekið fram í skýrslun-
um og margar vinnukonur starfa þar bæði að innanhússtörfum og at-
vinnurekstrinum, svo að það verður oft að fara eftir ágiskun um það, hvort
þær skuli teljast innanhúshjú eða atvinnuhjú. Við manntalið 1930 var
farið miklu varlegar í það heldur en 1920 að telja vinnukonur í sveitum
innanhúshjú, ef ekki voru skýrar upplýsingar um það. Hefur því alveg
snúist við hlutfallið milli innanhúshjúa og alvinnuhjúa í sveitum, svo sem
eftirfarandi tölur sýna.
Vinnukonur bænda og húsmanna í sveif, 1920 1930
taldar atvinnuhjú................. 1536 3215
Innanhúshjú í sveit................. 3058 1036
Samtals 4594 4251
Vinnukonum í sveitum hefur þannig heldur fækkað 1920—30, en
hvergi nærri eins mikið eins og ætla mætti af samanburði á tölu innan-
húshjúanna eingöngu.
Hin mikla fjölgun á ráðskonum frá 1920 til 1930 stafar líka senni-
lega mest frá mismunandi úrvinslu á manntölunum. 1930 munu hafa
verið taldar margar ráðskonur, sem við næsta manntal á undan höfðu
verið taldar innanhúshjú.
í töflu XXIK (bls. 160) hefur innanhúshjúum og ráðskonum verið
skift eftir atvinnu húsbóndans. Ef menn vilja gera sér grein fyrir, í
hvaða atvinnuvegum er mest um innanhúshjú, virðist réttast að bera
tölu þeirra saman við tölu framfærenda í hverjum atvinnuvegi, sem eru
fjölskyldumenn. Á hvert 100 fjölskyldumanna í hverjum atvinnuvegi og
hverri vinnustétt komu svo mörg innanhúshjú (að meðtöldum ráðskon-
um) sem hér segir.