Hagskýrslur um manntöl - 01.01.1937, Blaðsíða 55
Manntalið 1930
53
meðal verkafólksins stafar einkum af heimilishjúunum, sem eru næstum
tómt kvenfólk, en auk þess er mikið af kvenfólki við landbúnaðarstörf
og töluvert við fiskverkun. Meðal verkafólks í iðnaði eru konur fjöl-
mennastar við fataiðnað og búningsstörf (einkum saumakonur). Meðal
starfsfólks eru konur langfjöimennastar við verslunarstörf, 40.7 °/o, af starfs-
fólki þar. Við afgreiðslustörf í búðum eru jafnvel töluvert fleiri konur
en karlar. Allmargt af kvenfólki er líka starfsfólk við ólíkamlega atvinnu,
einkum kenslukonur og hjúkrunarfólk, og við samgöngustörf (póst og
síma). Það er ekki mjög títt, að konur séu sjálfstæðir atvinnurekendur.
Flestar eru þær við landbúnað, en þó aðeins mjög lítill hluti af bænd-
um. I iðnaði gætir þeirra meira og er rúml. Vs sjálfstæðra iðnrekenda
konur. Mest ber á því í fataiðnaði og eru sjálfstæðar saumakonur marg-
falt fleiri heldur en karlmenn, sem reka klæðskeraiðn, en hins vegar
eru þær langflestar einyrkjar og hafa ekki annað fólk í vinnu.
Eftirfarandi yfirlit sýnir, hvernig starfandi framfærendur skiftust eftir
aldri, karlar og konur hvort í sínu lagi.
Hluffallstölur
Karlar Konur Karlar Konur
Innan 16 ára ........ 1 513 880 4.6 % 6.1 %
16-20 ára .......... 4 385 3 162 13.2 — 22.1 —
21—24 — ............ 3 534 1 969 10.6 — 13.8 —
24-29 — ............ 4 192 1 685 12.6 — ll.s —
30-44 — ........... 10 108 3 090 30 4 — 21.6 —
45—59 — ............. 5 962 2 094 17.9 — 14.6 —
60-69 —.............. 2 620 961 7.9 — 6.7 —
70 ára og eldri ..... 859 427 2.6 — 3.0 —
Ótilgr. aldur ....... 72 46 0.2 — 0.3 —
Samtals 33 245 14 314 lOO.o % lOO.o %
Allur þorri karla og kvenna, sem við atvinnustörf fást, eru á
hinum svokallaða framleiðslualdri, 20—60 ára, en þó tiltölulega færra
af konum en körlum. Aftur á móti eru þær tiltölulega fleiri innan
við tvítugt. Stafar þetta af því, að giftar konur teljast ekki framfær-
endur. Margar konur vinna að atvinnustörfum á unga aldri t. d. sem
hjú, búðar- eða skrifstofustúlkur, en hverfa úr tölu framfærenda, þegar
þær giftast.
Á 20. yfirliti (bls. 54* —55*) sést, hvernig framfærendur (karlar og
konur sér í lagi) í hverjum aldursflokki skiftust á atvinnuflokkana.