Hagskýrslur um manntöl - 01.01.1937, Blaðsíða 65
Mannfalið 1930 63*
Atvinnu- Starfs- Verka-
rekendur fólk fólk Alts
Landbúnaður 11.4 °/o 3.4 °/o 3.7 % 6.6 %
Fiskveiðar 0. fl. .. 21.5 — 6.4 — 8.0 — 9.0 —
Iðnaður 10.2 — 4.3 — 59 — 6.8 —
Verslun 15.6 — 2.7 — 2.2 — 5.5 —
Samgöngur 2.4 — 8.1 — 5.2 — 5.5 —
Olíkamleg atvinna . 7.1 — 17.2 — 5.4 — 14.8 —
Heimilishjú - — - — 4.1 — 4.1 —
Óstarfandi fólk . . . - — - — - — 4.5 —
Af þessu sést, að það er tiltölulega tíðast, að þeir sem ólíkamlega
atvinnu stunda, hafi aðra atvinnu að auki. Er það aðallega starfsfólkið í
þeim flokki, sem því veldur, en í aðalatvinnuflokkunum (landbúnaði, fisk-
veiðum, iðnaði og verslun) er það miklu tíðara, að sjálfstæðir atvinnu-
rekendur hafi aukatvinnu heldur en starfsfólk og verkafólk.
Rúmlega 1/3 af öllum, sem tilgreindu fleiri en eina atvinnu, höfðu
landbúnað að aðalatvinnu, en rúml. 1/4 tilgreindi landbúnað sem auka-
atvinnu. Aftur á móti voru fiskveiðar oftast tilfærðar sem aukaatvinna (af
tæpl. !/3 og þar næst landbúnaður (af tæpl. ^k). En eins og áður er
sagt, getur oft verið álitamál, hvort telja beri landbúnað eða fiskveiðar
aðalatvinnuna, þegar hvorttveggja fer saman.
í töflu XXVII eru einnig tilfærðar nokkrar einstakar atvinnugrein-
ar, sem hafa oftast verið tilgreindar aðalatvinna eða aukatvinna.
Giftar konur eru sjálfar aðeins taldar framfærendur, ef sýnilegt er,
að maðurinn er óstarfhæfur eða hefur enga atvinnu, t. d. vegna veikinda,
eða hjónin búa ekki saman eða konan gegnir ekki húsmóðurstörfum.
Giftar konur, sem eru húsmæður, eru yfirleitt taldar framfærðar af at-
vinnu mannsins. Þær hafa þó stundum sjálfstæða atvinnu jafnhliða hús-
móðurstörfunum og átti að geta um það í manntalsskránum. í töflu XXVIII
(bls. 159) er yfirlit um þessi störf, en líklega hafa þó ekki öll kurl kom-
ið til grafar. Alls hafa það verið 542 giftar konur, eða 3.4 °/o af öllum
giftum konum, sem taldar hafa haft slík aukastörf með höndum. í töflu
XXVIII er þeim skift bæði eftir sínu eigin starfi og eftir atvinnu manns-
ins. Mest er um slík aukastörf í kaupstöðum og verslunarstöðum, aðal-
lega við fiskverkun. Allmargar giftar konur hafa opinber störf að auka-
atvinnu og eru það einkum ljósmæður (92) og kennarar (21).