Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.08.2015, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.8. 2015
Ákvæði hegningarlaga um bann við guð-lasti var afnumið á alþingi í sumar.Ákvæðið hljóðaði svo: Hver, sem op-
inberlega dregur dár að eða smánar trúar-
kenningar eða guðsdýrkun löglegs trúar-
bragðafélags, sem er hér á landi, skal sæta
sektum eða fangelsi allt að 3 mánuðum. Mál
skal ekki höfða, nema að fyrirlagi saksóknara.
Þetta ákvæði þótti orðið „á skjön við ríkjandi
viðhorf til mannréttinda hér á landi“; eins og
það var orðað í lagafrumvarpinu sem þingmað-
ur Pírata lagði fram. Í umræðum um málið var
á það bent að ákvæðið stangaðist á við tjáning-
arfrelsi manna. Þessu var ég sammála og
greiddi atkvæði með því að fella niður bannið
við guðlasti. Hins vegar tók ég eftir áhuga-
verðum tvískinnungi í málflutningi þeirra sem
ákafastir voru að fella niður guðlastsbannið.
Eftir stendur nefnilega óraskað í hegning-
arlögum ákvæði 233. gr. um bann við því að
hæðast að og smána fólk með ummælum vegna
tiltekinna þátta í þeirra fari. Ákvæðið 233. gr.
er svohljóðandi: Hver sem opinberlega hæðist
að, rógber, smánar eða ógnar manni eða hópi
manna með ummælum eða annars konar tján-
ingu, svo sem með myndum eða táknum, vegna
þjóðernis, litarháttar, kynþáttar, trúarbragða,
kynhneigðar eða kynvitundar, eða breiðir slíkt
út, skal sæta sektum eða fangelsi allt að 2 ár-
um. Því hefur verið haldið fram 233. gr. sé ætl-
að að stemma stigu við hvers kyns haturs-
orðræðu. Á alþingi kom fram sú skoðun að
grundvallarmunur væri á þessu ákvæði og því
sem laut að banni við guðlasti. Ekki var það þó
rökstutt nánar eða útskýrt í hverju sá grund-
vallarmunur fólst. Af hverju kom það ekki til
skoðunar að afnema líka 233. gr. hegning-
arlaga? Tvennt tel ég umhugsunarvert í þessu
sambandi.
Annars vegar það að mörkin á milli guðs-
lasts og þess sem áfram er bannað eru óljós.
Er blaðagrein sem lýsir guðhræddu og kirkju-
ræknu fólki sem barnalegum einfeldningum
leyfilegt guðlast eða ólögmæt hatursorðræða?
Er teikning sem sýnir íslenska múslima biðja
til guðs síns með rassinn upp í loft og fing-
urinn einnig en framan í samkynhneigða boð-
leg mynd að lögum eða ekki? Hvort er hér ver-
ið að hæðast að trúarkenningunni eða
fylgisspektinni og fylgjendunum?
Hitt er svo það, sem meira máli skiptir að
mínu mati, að þegar menn hafa, góðu heilli,
viðurkennt tjáningarfrelsið er einkennilegt að
ætla að takmarka það með þeim hætti sem 233.
gr. gerir. Það er létt verk og löðurmannlegt að
vera umburðarlyndur í garð skoðana sem
hreyfa ekki við manni. Tjáningarfrelsið nær
hins vegar líka til þeirra sem hafa and-
styggilegar skoðanir.
Bann við guðlasti mögulega enn í lögum
* Það er einkennilegtef barátta fyrir tján-ingarfrelsi á að takmark-
ast við guðlast.
ÚR ÓLÍKUM ÁTTUM
Sigríður Ásthildur
Andersen
sigga@sigridur.is
Mikil umræða hefur verið um
stefnu Amnesty International um
að afglæpavæða vændi.
Bryndís Ísfold Hlöðvers-
dóttir skrifaði á
Facebook: „Það
væri áhugavert að
vita hvað hafa
margir vina minna
sagt sig úr Íslands-
deild Amnesty International síð-
ustu daga? (svona í ljósi þess að
formaðurinn segir afsagnir ekki
fleiri en aðra daga en þrátt fyrir
það hef ég hef lesið tugi yfirlýsinga
hér á Facebook um að fólk sé að
yfirgefa samtökin).“
Hannes
Hólmsteinn
Gissurarson lét
líka skoðun sína í
ljós þar: „Aðal-
atriðið um vændi
er, hvort upplýst samþykki beggja
liggi fyrir. Ef svo er, þá er auðvitað
ekkert á móti því, að þóknun komi
fyrir blíðu. Mér er ekki alveg ljóst,
hvers vegna kvenfrelsissinnar eru á
móti því, að konur noti þetta at-
vinnutækifæri, sé hvergi nein nauð-
ung á ferð. Er þetta ekki dæmi um,
að sumar konur séu á móti öðrum
konum, frekar en að konur séu al-
mennt á móti körlum?“
Bragi Valdimar Skúlason
svaraði á sama vettvangi: „Ekki má
gleyma því að vændi getur verið
stórkostlegt atvinnutækifæri fyrir
háskólaprófessora.“
Leikstjórinn Dagur Kári
Pétursson virðist
vera nýjasti aðdá-
andi bandarísku
leikkonunnar Amy
Schumer. „Hjálp,
tók inn of stóran
skammt af Amy Schumer. Er kom-
inn með kaldhæðniseitrun. Held ég
þurfi að fá einlægni í æð. #consch-
umer.“
Einhverjir kunna ráð við þessu,
en Snorri Sturluson svarar: „Jafn-
stór skammtur af Kevin Costner er
Perfect antidót“ og Óttar M.
Norðfjörð stingur upp á bíómynd-
um frá áttunda áratugnum.
AF NETINU
Aðdáendur hinna sígildu þátta Bay-
watch hafa tilefni til að gleðjast, en
Zac Efron og Dwayne Johnson, eða
The Rock, ætla að klæðast rauðu
sundskýlunum í væntanlegri kvik-
mynd um strandverðina í Kaliforníu.
Myndin hefur verið mörg ár í bígerð
en nú loks virðist ætla að verða af
henni og nýlega var upplýst að Seth
Gordon myndi leikstýra myndinni, en
hann leikstýrði Horrible Bosses. Eftir
að Efron bættist í hópinn er líklegt að
málin komist á skrið og tökur hefjist í
febrúar 2016, að sögn Hollywood
Reporter.
Myndin segir frá strandverði sem tekur starf sitt og sjálfan sig mjög alvarlega (Johnson), en
neyðist til þess að vinna með ungum og uppreisnargjörnum manni (Efron) í þeim tilgangi að
forða ströndinni þeirra frá bráðri eyðileggingu af völdum olíurisa.
Efron hefur verið á leið upp á við að undanförnu eftir að hafa tekist ágætlega til í kvikmynd-
inni Neighbors, þar sem hann lék á móti Seth Rogan.
Zac Efron fór úr að ofan í myndinni Neighbors.
Zac Efron verður
strandvörður
Vettvangur
Úttekt Vanity Fair á sambandsappinu Tinder
og þar með stefnumótaheiminum og kynlífi
ungmenna í Bandaríkjunum hefur vakið
mikla athygli en greinin birtist í sept-
emberhefti blaðsins og er komin á netið. Í
greininni er talað um Tinder í samhengi við
endalok stefnumótamenningarinnar og rætt
við fólk á þrítugsaldri.
Alex, myndarlegur bankamaður á uppleið,
segir í samtali við tímaritið að þetta sé
keppni. „Þú ert alltaf að leita. Þú gætir talað
við tvær eða þrjár
stelpur á bar og svo
valið þá bestu eða þú
getur skoðað hundruð
á dag, fjöldinn er svo
miklu meiri í appinu.
Það er hægt að stilla
upp tveimur til þremur
Tinder-stefnumótum á
viku og það getur vel
verið að þú sofir hjá öll-
um þeirra og þannig endað á því að sofa hjá
um hundrað stelpum á einu ári,“ sagði Alex
en hann og vinir hans nota Tinder og önnur
stefnumótaforrit mikið.
Alex segir að hann hafi sofið hjá fimm
„Tinderellum“ eins og og hann og vinir hans
kalla stelpurnar á síðustu átta dögum.
„Það er orðið svo auðvelt að redda sér kyn-
lífi,“ segir John, 26 ára New York-búi sem
vinnur í markaðsmálum. „Ég get farið í sím-
ann núna og án efa fundið einhverja sem vill
sofa hjá mér í kvöld,
meira að segja fyrir
miðnætti.“ Hann segist
hafa fengið stefnumót
eftir að hafa aðeins sent
tákn (e. emoji) með
pitsu- og bjórmyndum
„án þess að hafa einu
sinni þurft að eiga sam-
tal, bara samtal með
myndum.“
Ragnarök stefnumótanna
Fólk notar Tinder í símanum til að finna maka.