Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.08.2015, Page 3

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.08.2015, Page 3
gamma er aðalstyrktaraðili Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Við erum stolt af samstarfi okkar við hljómsveitina og ánægð með að geta tekið höndum saman með ástríðufullu fagfólki um þetta mikilvæga starf. www.gamma.is Baksviðs með Sinfóníuhljómsveit Íslands� � Sigrún Eðvaldsdóttir, 1. konsertmeistari, og systir hennar, Sigurlaug Eðvaldsdóttir, eru hluti af fiðlusveitinni. Sigrún: Auðvitað þykir okkur rosalega vænt um fiðluna en þetta er líka stundum svolítið erfitt samband. Hljóðfærið er oft harður húsbóndi. Sigurlaug: Einmitt, en samt er gott samband við góða fiðlu eins og gott ástarsamband, það svarar allt svo vel. Við vitum öll hvað það merkir að stilla saman strengi, en í starfi Sinfóníu- hljómsveitar Íslands er orðtakið notað í bókstaflegri merkingu og í raun er fátt nauðsynlegra. Fagmennska er leiðarstef í öllu starfi hljómsveitarinnar. Sigrún Eðvaldsdóttir er ástríðufullur tónlistarmaður sem gefur allt í flutninginn á milli þess sem hún leikur angurvært á fiðluna. Sigrún hefur leikið víða um lönd og náð góðum árangri í alþjóðlegum fiðlukeppnum. Eldri systir Sigrúnar, Sigurlaug Eðvaldsdóttir, hefur kennt þeirri yngri allt sem hún kann. Framhaldsnám í fiðluleik stunduðu þær báðar fyrir vestan haf, Sigurlaug í New York við Manhattan School of Music en Sigrún við hinn sögufræga Curtis- tónlistarháskóla í Philadelphiu. Fiðlan ber oftar en ekki uppi laglínur tónbókmenntanna, getur fengið hárin til að rísa og á hug þeirra systra allan.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.