Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.08.2015, Blaðsíða 16
M
eð lækkandi sól og
haustlægðum sem bíða
handan við hornið gæti
sumum fundist freist-
andi að viðhalda sumarbrúnkunni og
skella sér í ljósabekk. Það er þó alls
ekki hættulaust því geislarnir í
bekkjunum, eins og sólargeislar,
geta valdið sortuæxlum. Lára G.
Sigurðardóttir, læknir og fræðslu-
stjóri hjá Krabbameinsfélaginu segir
að sortuæxli
sé eitt fárra
lífshættulegra
krabbameina
sem í flestum
tilfellum er
auðvelt að
lækna greinist
það nægilega
snemma. Ef
ekki er brugð-
ist við nógu
snemma getur meinið dreift sér um
líkamann í formi meinvarpa.
Krabbamein kvenna
Fyrstu sólbaðstofurnar opnuðu hér
á landi árið 1980 og á sama tíma
jukust sólarlandaferðirnar. Eftir
1980 fara tilfelli sortuæxla vaxandi
hér á landi og leiða má líkum að því
að tenging sé þar á milli. Sortuæxli
er algengasta krabbameinið hjá ung-
um konum á Íslandi og þriðja al-
gengasta hjá körlum. Mestar líkur
eru á sortuæxlum hjá þeim sem
hafa sögu um húðbruna, annað
hvort frá sólarljósi eða ljósabekkj-
um. Þó að ljósabekkjanotkun sé á
undanhaldi hér á landi er þó enn
fólk sem fer í ljós. Í könnun sem
Húðlæknastöðin lét gera fyrir
nokkrum árum kemur í ljós að mið-
að við önnur lönd virðist
ljósabekkjanotkun á Íslandi vera
mikil meðal ungs fólks, sérstaklega
kvenna og nefna þau í grein sinn að
þetta sé krabbamein unga fólksins.
18 ára aldurstakmark í ljós
Samkvæmt nýlegum könnunum sem
birtar eru á hjá heimasíðu Geisla-
varna ríkisins eru enn 12% þjóð-
arinnar sem sögðust hafa notað
ljósabekki síðasta árið en voru 30%
árið 2004 og má því sjá að verulega
hefur dregið úr ljósabekkjanotkun.
Samstarfsverkefni Krabbameins-
félagsins, Geislavarna Ríkisins,
Embættis Landlæknis og húðlækna
hefur verið í gangi síðan 2004 og
ber yfirskriftina „Hættan er ljós“ en
markmiðið er að upplýsa foreldra
um skaðsemi ljósabekkja en 18 ára
aldurstakmark er í bekkina.
Samkvæmt talningu Geislavarna
ríkisins á fjölda ljósabekkja hefur
þeim fækkað mjög mikið í Reykja-
vík. Fyrir níu árum voru þeir 114 en
eru nú 66. Árið 1988 voru þeir yfir
200.
Tíu látast á ári
Sortuæxli eru alvarlegasta gerð húð-
krabbameina en árlega greinast að
meðaltali um 50 Íslendingar með
sortuæxli og 10 látast. Fjöldi karla
með langt gengin sortuæxli eykst
verulega eftir fimmtugt en það teng-
ist lakari lífshorfum.
Sortuæxli er auðvelt að lækna
greinist það á byrjunarstigi, meðan
það er bundið við efstu lög húð-
arinnar. Ef æxlið hefur fengið tíma
til að vaxa niður í dýpri lög húð-
arinnar og inn í æðar getur það ver-
ið banvænt ef það hefur náð að
dreifa sér útskýrir Lára. Því er mik-
ilvægt að greina sortuæxli meðan
það er á byrjunarstigi og enn
læknanlegt. „Það er sláandi að
sortuæxli eru að greinast hjá ungum
stúlkum. Tíðnin byrjar í raun að
aukast við 15 ára aldur,“ segir Lára.
Tíðni sortuæxla hefur farið vax-
andi á Norðurlöndunum á síðustu 30
árum en er aðeins farin að lækka
hérlendis eftir að hafa verið hér
einna hæst. Líklega má skýra það
að hluta til með minnkandi notkun
ljósabekkja. Ísland varð fyrst Norð-
urlandanna til að setja lög um 18
ára aldurstakmark varðandi ljósa-
bekki en nú hafa Finnland og Nor-
egur bæst í hópinn.
Best að forðast geislana
Í niðurstöðum nýlegra rannsókna
sem birtar voru í grein í The Int-
VARASAMT AÐ LEGGJAST Í LJÓSABEKKI OG SÓLBÖÐ
Krabbamein
unga
fólksins
SORTUÆXLI ER VAXANDI VANDAMÁL HÉR Á LANDI OG
ALGENGASTA KRABBAMEINIÐ HJÁ UNGUM KONUM. ÁR
HVERT LÁTA 10 EINSTAKLINGAR LÍFIÐ VEGNA SORTU-
ÆXLA. LÆKNIR SEGIR SLÁANDI AÐ SJÁ SORTUÆXLI
GREINAST HJÁ STÚLKUM ALLT NIÐUR Í 15 ÁRA ALDUR.
BEIN TENGING ER TALIN VERA MILLI BRUNA Í HÚÐ
VEGNA SÓLAR OG SORTUÆXLA. MEÐ ÞVÍ AÐ STUNDA
LJÓSABEKKI EYKST HÆTTA Á MYNDUN SORTUÆXLA.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23.8. 2015
Heilsa og hreyfing
Sumir geta ekki hugsað sér að vera skjannahvítir og þá er hægt að notast við brúnkukrem eða
jafnvel fara í brúnkusprautun. Brúnkukrem eru borin á húðina og gefa fallegan lit. Passa verð-
ur upp á að nota einnota hanska því annars verða lófarnir nánast appelsínugulir. Eiga þessi
krem að vera skaðlaus húðinni og er notkun þeirra mun betra en að stunda ljósabekki.
Brúnkukrem betri leið til að „tana“
* Sortuæxli er auðvelt að lækna greinist það ábyrjunarstigi, meðan það er bundið við efstu löghúðarinnar. Ef æxlið hefur fengið tíma til að vaxa
niður í dýpri lög húðarinnar og inn í æðar getur það
verið banvænt ef það hefur náð að dreifa sér.
Lára G. Sigurðardóttir
Geislavarnir ríkisins hafa frá 2004
gert árlegar kannanir um ljósa-
bekkjanotkun. Hlutfall Íslendinga,
18 ára og eldri, sem fóru í ljósabekk
síðustu 12 mánuði má sjá á grafinu
hér fyrir neðan en nýjustu tölur
sýna að 12% Íslendinga fara reglu-
lega í ljós. Athyglisvert er að árið
2013 fóru 10% barna undir 18 ára í
ljós og 30% ungmenna á aldrinum
18-23 ára. Væntanlega hafa þessar
tölur lækkað eitthvað á síðustu
tveimur árum.
Konum er sérstaklega hætt við
sortuæxlum. Bláa línan í línuritinu
hér til hliðar sýnir þá gríðarlegu
aukningu sortuæxla í konum sem
hófst á tíunda áratugnum og nær
hámarki um aldamótin. Þessar töl-
ur hafa blessunarlega lækkað en
enn er þessi tegund krabbameins
alengasta krabbamein kvenna og
þriðja alengasta hjá körlum.
TÖLFRÆÐILEGAR STAÐREYNDIR
12% Íslendinga stunda ljósabekki
Nýgengi þriggja tegunda krabbameins hjá konum undir 39 ára á Íslandi
Hlutfall Íslendinga, 18 ára og eldri sem
fóru í ljósabekk síðustu 12 mánuði