Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.08.2015, Side 18
Ferðalög
og flakk
Pakkað fyrir safarí
AFP
*Þegar haldið er í safaríferð til Afríku er gottað vita hverju á að pakka. Sólin getur veriðbrennheit yfir daginn og því nauðsynlegt aðtaka með góð sólgleraugu, nóg af sólarvörnog sprey sem fælir moskító-flugurnar frá þér.Taktu með létt og þægileg föt, góða skó oghatt og ekki gleyma flíspeysu og síðbuxum
fyrir svöl kvöld. Ekki má gleyma lyfjatösku
með nauðsynlegum lyfjum og plástrum.
L
öndin þrjú í Austur-Afríku,
Kenýa, Tansanía og Úg-
anda, hafa geysimargt upp
á að bjóða fyrir þá æv-
intýraþyrstu. Villt dýr finnast þar
í þúsundatali en fátt jafnast á við
að ferðast um á jeppa á sléttunum
og skoða villidýrin í þeirra nátt-
úrulega umhverfi eða að ganga inn
í þéttan regnskóg að skoða
fjallagórillur. Það reyndi blaða-
maður á dögunum og er óhætt að
segja að þær upplifanir gleymast
aldrei.
Strandlíf og Masai-menn
Strandlengjan við Indlandshaf býð-
ur upp á lúxus-letilíf en á Diani
ströndinni í Kenýa er hægt að
njóta þess að láta dekra við sig á
fínu hóteli, fara í bátsferðir, skoða
höfrunga, kafa og skoða kóralrif og
synda í ylvolgum sjónum. Einnig
er hægt að leigja sæþotur, fara í
sjóstangaveiði eða bara prútta við
heimamenn í strákofunum sem
blasa alls staðar við. Gaman er að
heimsækja Masai-þorp en Masaiar
eru þjóðflokkur hirðingja sem búa
aðallega í Kenýa og Tansaníu.
Stóð andspænis silfurbak
Í Úganda er gróðursælt fjalllendi
og ákaflega fallegt. Blaðamaður
lagði leið sína inn í myrkustu frum-
skóga til að skoða sjaldgæfar
fjallagórillur og stóð þar andspænis
stórum silfurbak sem reisti sig upp
og barði á brjóst sér. Sennilega hef
ég ekki komist nær því, hvorki fyrr
né síðar, að fá hjartaáfall.
Suðupottur villidýra
Hinn frægi þjóðgarður Serengeti
sem liggur í Kenýa og Tansaníu er
tilvalinn til safaríferða. Einnig eru
fleiri garðar sem vert er að heim-
sækja eins og Ngorongoro í Tan-
saníu sem er stór gígur, eins konar
suðupottur villtra dýra. Á slétt-
unum má sjá ljón, fíla, gíraffa,
zebrahesta, vísunda, antilópur, apa,
nashyrninga og jafnvel blettatígur
svo eitthvað sé nefnt. Eyjan Zan-
zibar liggur rétt fyrir utan strönd-
ina og mæli ég með ferð þangað á
kryddeyjuna. Eitt er víst að skiln-
ingarvitin fá nýja vídd við heim-
sókn til Austur-Afríku og ferðin
verður stútfull af óvæntum og
ógleymanlegum ævintýrum.Masai-maður á úlfaldabaki.
AUSTUR-AFRÍKA
Ógleymanleg
ævintýri í Afríku
LEIÐANGRAR UM AFRÍKU HAFA ALLTAF VERIÐ SVEIP-
AÐIR RÓMANTÍSKRI DULÚÐ. ÞESSA FRAMANDI VER-
ÖLD MEÐ VILLTUM DÝRUM REIKANDI UM Í STÓR-
BROTINNI NÁTTÚRU ER HÆGT AÐ UPPLIFA Í
HEIMSÓKN TIL KENÝA, ÚGANDA OG TANSANÍU.
Texti og myndir Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Að fara í safaríferð á
jeppum um slétturnar er
ógleymanlega lífsreynsla.
Á Diani-ströndinni í Kenýa er gott að slaka á við sundlaugina eða í hengirúmi á ströndinni.
Hægt er að fara í fylgd Masaia í úlfaldaferð í Kenýa.
Gaman er að kafa með loftpípu í ylvolgum sjón-
um og kíkja á eitt fallegasta kóralrif í heimi.
Fátt jafnast á við að rekast á hóp ljóna. Þó að eitt ljónið á myndinni
virðist vera í miðju ansi illilegu öskri er það í raun bara að geispa!