Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.08.2015, Side 26
T
ómatar eru bæði hollir og bragðgóð-
ir fyrir utan að vera fallegir. Þá er
hægt að nota á einstaklega marga
vegu og hægt að borða þá hráa,
elda þá, þurrka og mauka og þeir eru meira
að segja frábærir ofan á brauð. Af þessu til-
efni tók New York Times saman nokkrar
uppskriftir úr stóru safni sínu af tóm-
ataréttum og verður vitnað í nokkrar þeirra
hér.
GAZPACHO
Julia Moskin á eftirfarandi uppskrift að
hinni köldu tómatasúpu gazpacho. Þetta er í
raun og veru frekar drykkur en súpa og
kjörið að bera fram í kældum glösum. Þessi
uppskrift er frá Sevilla á Spáni og er góð í
hita þegar þarf eitthvað seðjandi, kalt og salt
á sama tíma. Hún er appelsínugul á litinn en
ekki rauð og er það út af ólífuolíunni sem
notuð er.
900 g rauðir og þroskaðir tómatar sem
kjarninn er tekinn úr. Skornir í grófa bita.
1 græn paprika, kjarninn tekinn úr og
skorinn í grófa bita.
1 agúrka, skræld og skorin í bita
1 lítill laukur (hvítur eða rauður) og skorinn
í grófa bita
1 hvítlauksrif
2 teskeiðar sérrí-edik (meira eftir
smekk)
salt
½ bolli extra virgin ólífuolía (meira
eftir smekk)
Setið tómata, papriku, agúrku, lauk
og hvítlauk í blandara. Blandið á háum
hraða, að minnsta kosti í tvær mínútur,
með stuttum hléum til að skrapa niður með
hliðunum með sleikju.
hrærið einstaka sinnum þangað til blandan
hefur náð því að verða eins og þykk sulta.
Þetta tekur um eina klukkustund og fimmtán
mínútur. Bragðið og kryddið eftir smekk.
Kælið og setið í ísskáp. Geymist í að minnsta
kosti viku.
TÓMATAR MEÐ TÚNFISKI
Það er hægt að bera tómata fram með
brauði á fleiri vegu en bara ofan á brauðið.
Þessi réttur kallast „tomato tonnato“ og
passar túnfiskurinn vel með tómötunum.
5 matskeiðar extra virgin ólífuolía
túnfiskdós
¼ bolli majónes
2 tsk. kapers
2 tsk. ferskur sítrónusafi
2 ansjósuflök (má sleppa)
1 stórt hvítlauksrif, skrælt og kramið
2 matskeiðar basillauf, meira til að skreyta
900 g blandaðir tómatar, stórir skornir í
sneiðar, litlir í báta
sjávarsalt
svartur pipar
borið fram með góðu brauði
Blandið saman ólífuolíu, túnfiski,
majónesi, kapers, sítrónusafa, an-
sjósum, hvítlauk og basil og mauk-
ið í blandara þangað til blandan
verður kremkennd.
Dreifið tómötunum á disk og
hellið sósunni yfir. Kryddið með
salti og vel af pipar. Skreytt með ba-
sillaufum. Eins og áður er sagt er
mikilvægt að bera þetta fram með góðu
brauði.
Getty Images/iStockphoto
ÞRJÁR TÓMATAUPPSKRIFTIR
Töfrar með
tómötum
TÓMATAR ERU GOTT HRÁEFNI Í MARGS KONAR MAT
OG NÚNA ER GÓÐUR TÍMI TIL AÐ KAUPA TÓMATA.
ÞÓ AÐ TÓMATAR SÉU RÆKTAÐIR ALLAN ÁRSINS
HRING ER NÁTTÚRULEGUR UPPSKERUTÍMI ÞEIRRA
NÚNA OG ÞEIR SEM RÆKTA ÞÁ SJÁLFIR NJÓTA GÓÐS
AF UPPSKERUNNI UM ÞESSAR MUNDIR.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
að gott jafnvægi á milli hins sæta og súra sé
nauðsynlegt til að búa til góða tómatsultu.
Annars er aðeins verið að gera tómatsósu og
það er annar handleggur. Hann prufaði sig
áfram með sítrónusafa, edik og límónusafa
og endaði á því að nota síðastnefndu sýruna.
700 g vel þroskaðir tómatar, kjarninn
hreinsaður og skornir í grófa bita
1 bolli sykur
2 matskeiðar nýkreistur límónusafi
1 msk. rifið eða skorið engifer
1 tsk. malað cummin
¼ tsk. malaður kanill
1/8 tsk. malaður negull
1 tsk. salt
1 jalapeño eða annar chili-pipar,
fræhreinsaður og skorinn í litla bita.
Í staðinn er hægt að nota cayenne-pipar
eða þurrkaðar chili-flögur.
Blandið öllum innihaldsefnunum saman í
miðlungsstórum potti, náið upp suðu yfir
miðlungshita. Hrærið oft í pottinum.
Minnkið hitann og látið sjóða varlega,
Á meðan blandarinn er í gangi bætið þið
við ediki og tveimur teskeiðum af salti. Hell-
ið ólífuolíunni varlega ofan í. Blandan verður
appelsínugul eða dökkbleik og verður mjúk
og vel blönduð saman. Ef blandan virkar of
vatnsmikil þarf að bæta meiri ólífuolíu við
þar til súpan verður kremuð.
Blandan er síðan sigtuð og hratinu hent.
Hellið súpunni í karöflu, helst kælda, og
kælið þar til súpan er orðin mjög köld, að
minnsta kosti sex tíma eða yfir nótt.
Áður en súpan er borin fram þarf að
krydda með salti og ediki. Ef súpan er mjög
þykk er hægt að blanda nokkrum mat-
skeiðum af ísköldu vatni saman við.
Borið fram í glösum, jafnvel með ísmolum
í. Það getur komið vel út að setja nokkra
dropa af ólífuolíu ofan á.
TÓMATSULTA
Það er sniðugt að gera tómatsultu úr vel
þroskuðum tómötum. Mark Bittman er höf-
undur þessarar uppskriftar. Hann útskýrir
Matur
og drykkir
Matur á priki
AFP
*Bandarískir stjórnmálamenn heimsótturíkishátíð í Iowa í vikunni þar sem boðiðvar upp á meira en 70 mismunandi mat-artegundir á priki. Þeirra á meðal voru JebBush og Hillary Clinton. Flestir borðuðugrillað svínakjöt á priki en enn fremur voruí boði óvenjulegri réttir sem voru bornir
fram á priki, eins og djúpsteiktar brownie-
kökur, eplabaka og harðsoðin egg.