Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.08.2015, Blaðsíða 31
23.8. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31
Mikið er um að vera að venju fyrir fjölskyldur á Menningarnótt, en
dagskrána alla er hægt að skoða á menningarnott.is og flokka þar
með auðveldum hætti viðburði fyrir börn. Til dæmis verða Vísna-
gullstónleikar fyrir börn í fangi á Kjarvalsstöðum klukkan 15.
Margt á Menningarnótt*Nútímabarnið er búið að svara þéráður en þér hefur gefist ráðrúm tilað segja nokkuð.
Laurence J. Peter
„VISTA-helgarinnar“, en það á að
standa fyrir „viðhald og standsetn-
ingu“.
„Markmiðið er að veita staðnum
smá ást með áherslu á húsin okkar
og tjaldsvæðið. Fjöldi verkefna
verður í boði sem og gisting fyrir þá
Síðasta stóra tjaldútileguhelgin er
gengin í garð, að mati þeirra sem
þekkja til á Úlfljótsvatni, en upp úr
þessu ætti verulega að draga úr
tjaldútilegum landans á árinu. Í til-
efni þessa hefur Úlfljótsvatnsfólk
ákveðið að efna til fyrstu svokölluðu
sem það vilja. Hægt er að vera alla
helgina en líka að koma í styttri
heimsóknir. Boðið verður upp á mat
fyrir þátttakendur og það er vel-
komið að taka með börn,“ segir Guð-
mundur Finnbogason forstöðumað-
ur Útilífsmiðstöðvarinnar á
Úlfljótsvatni. Hann segist vonast til
þess að um árlega hefð verði að
ræða, en VISTA-helgin verður hald-
in 28.-30.ágúst.
Öllum er velkomið að taka þátt í
VISTA helginni á Úlfljótsvatni en
óskað er eftir því að áhugasamir
skrái sig og sína með því að senda
tölvupóst á netfangið ulfljots-
vatn@skatar.is
Mikið hefur verið að gera á Úlf-
ljótsvatni í sumar og að sögn Guð-
mundar hefur almenningur í aukn-
um mæli náð þeim skilaboðum að
Úlfljótsvatn sé öllum opið þó skátar
séu stór hluti gesta.
SÍÐASTA STÓRA TJALDÚTILEGUHELGIN
Smá ást í lok ágúst
Kátir skátar á Úlfljótsvatni.
Að laga sig aftur að skólanum,
hversdagsleikanum og skammdeg-
inu krefst mikillar skipulagningar.
Rachel nokkur Rosenthal, sem
hefur skipulag að atvinnu, líkir því
við að búa sig undir orrustu, í
samtali við The Washington Post.
Verkáætlun þurfi að liggja fyrir á
hinum ýmsu sviðum. Hún segir að
gott skipulag í upphafi skólaárs
komi manni líkamlega og andlega
í reglu, en sjálf er hún móðir tví-
bura sem eru að byrja í öðrum
bekk.
Hvaða foreldri kannast ekki við
barn sem kemur askvaðandi inn
eftir skóladaginn, telur sínum
skyldustörfum lokið í bili og fleyg-
ir úlpunni á gólfið til að komast
sem allra fyrst í tölvuspilið? Ef
foreldrar vilja gera athugasemd
við slíka hegðun er þeim ef til vill
hollast að líta fyrst í eigin barm.
Þá gildir að spyrja sig: „Er ég
með reglu á hlutunum í mínu lífi?“
Ef svo er ekki er ef til vill erfitt
að ætlast til þess að barnið sé
skipulagt. Ekki er hægt að ætlast
til þess að barn tíni upp eftir sig
spjarirnar ef foreldrarnir eru
sjálfir með allt á rúi og stúi.
Til að ná sem bestri reglu á
hversdagsleikann gildir að horfa
fram í tímann. Má þar taka hlið-
sjón af stundatöflu og dagatali
skólanna og ná þannig að aðlagast
nýrri rútínu með ró, en ekki
brauki og bramli. Oft eru skólar
búnir að skipuleggja starf sitt
langt fram í tímann og foreldra-
fundir, jólaleiksýningar og frídag-
ar ættu allir að vera kirfilega
merktir. Eins ættu foreldrar sjálf-
ir að vita hvenær barnið er á kór-
æfingu, hjá tannlækni eða á bad-
mintonmóti og laga sína eigin
stundatöflu, stundatöflu lífsins, að
því.
EINS OG AÐ UNDIRBÚA
ORRUSTU
Óreiðan er ef til vill einn versti óvin-
ur hins andlega jafnvægis.
Getty Images/iStockphoto
Skipulagið
kemur
manni langt
VIÐKVÆM HÚÐ?
PRÓFAÐU
ALLA LÍNUNA…
ÞVOTTAEFNI | HREINLÆTISVÖRUR | HÚÐVÖRUR | ANDLITSLÍNA | BARNAVÖRUR
ASTMA- OG OFNÆMISFÉLAG ÍSLANDS
MÆLIR MEÐ VÖRUM FRÁ NEUTRAL
…fyrir heimilið, fjölskylduna og þig.
Neutral er sérstaklega þróað fyrir viðkvæma húð og inniheldur
engin ilmefni, litarefni eða paraben – þannig hjálpar Neutral
þér að vernda húð allra í fjölskyldunni.
Skoðaðu allar Neutral vörurnar í næstu verslun eða kíktu á Neutral.is
ÍS
L
E
N
SK
A
SI
A
.I
S
N
A
T
71
68
2
02
/1
5