Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.08.2015, Side 49
Hrönn Egilsdóttir, Árni Pétur Guðjónsson,
Gígja Hólmgeirsdóttir, Hannes Óli Ágústsson,
Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir, Jórunn Sig-
urðardóttir, Kristjana Skúladóttir, Magnús
Guðmundsson, Orri Huginn Ágústsson, Ólöf
Ingólfsdóttir, Ólafur Steinn Ingunnarson og
Sveinn Ólafur Gunnarsson.
„Flestir leikaranna leika í þremur sýn-
ingum hver, en sumir eru í öllum,“ segir
Steinunn og tekur fram að allir í hópnum
unnar lýkur Ódauðlegu seríunni í ár með
frumsýningu Ódauðlegt verk um ást og ást-
leysi á Lókal. „Í haust fer ég í rannsókn-
arleyfi fram að áramótum og hyggst nota tím-
ann til að skrifa bók um Ódauðlegu verkin,“
segir Steinunn, sem hefur gegnt starfi deild-
arforseta Sviðslistadeildar LHÍ frá 2011.
Sem fyrr segir verða Ódauðlegu verkin
sýnd á þremur stöðum á Lókal. „Þrjú verk-
anna þurfa svart leikrými og tvö þeirra hvít
rými,“ segir Steinunn og tekur fram að
„svörtu“ verkin þrjú verði sýnd í Borgarleik-
húsinu, en þau eru Ódauðlegt verk um ást og
ástleysi, Ódauðlegt verk um stríð og frið og
Ódauðlegt verk um stjórn og stjórnleysi.
Ódauðlegt verk um samhengi hlutanna verður
sýnt í Listasafni Reykjavíkur og Ódauðlegt
verk um draum og veruleika í Tunglinu.
Steinunn reiknar fastlega með því að Ódauð-
legu verkin verði ekki sýnd oftar, enda kom-
inn tími til að setja ákveðinn punkt. En hugs-
anlega verður þó nýjasta verkið sýnt eitthvað
áfram eftir að Lókal lýkur.
„Það hefur verið stórkostlegt að fá tækifæri
til að vinna að sama viðfangsefninu í heil tíu
ár en nú er komið að ákveðnum lokapunkti.
Það er gaman að geta haldið upp á afmælið
með því að sýna öll verkin saman,“ segir
Steinunn og tekur fram að hún sé opin fyrir
nýjum áskorunum.
Ódauðlegt verk um ást og ástleysi verður
frumsýnt á Litla sviði Borgarleikhússins mið-
vikudaginn 26. ágúst kl. 19. Allar nánari upp-
lýsingar um sýningartíma verkanna má finna
á vefnum lokal.is.
vinni hugsjónastarf. „Við erum að reyna að
sniðganga markaðinn og peninga,“ segir
Steinunn og tekur fram að hópurinn hafi þó
þegið listamannalaun árið 2010 til að vinna
seríuna Örverk um áráttur, kenndir og kenjar
sem sýnd voru í beinni vefútsendingu, auk
þess sem unnin var bók um verkin. Hópurinn
er einnig allur á listamannalaunum sem
stendur og með styrk frá leiklistarráði til að
setja upp Ódauðlegu verkin. Að sögn Stein-
Steinunn Knútsdóttir, fyrir miðri mynd, ásamt hluta leikhópsins sem flytur Ódauðlegu verkin.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
23.8. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 49
Ragnar Bjarnason og
Þorgeir Ástvaldsson koma
fram á lokatónleikum
Menningarveislu Sólheima í
Sólheimakirkju í dag, laugardag, kl.
14. Með Menningarveislunni í ár var
því fagnað að Sólheimar eru 85 ára.
Aðgangur er ókeypis.
2
Síðasta sýningarhelgi Sirk-
us Íslands verður á
Klambratúni í dag og á
morgun. Sirkusinn sýnir
þrjár mismunandi sýningar: Fjöl-
skyldusýninguna Heima er best,
krakkasýninguna S.I.R.K.U.S. og full-
orðinskabarettinn Skinnsemi. Sirkus-
inn sýnir í sirkustjaldinu Jöklu sem
tjaldað er á Klambratúni.
4
Nýjasta teiknimyndin úr
smiðju Pixar, Inside Out,
hefur hlotið afbragðsviðtökur
jafnt gagnrýnenda sem kvik-
myndagesta. Myndin þykir allt í seinn
falleg, skemmtilegt og ljúfsár.
5
Kammerkórinn Schola can-
torum kemur fram á loka-
tónleikum Kirkjulistahátíðar í
Hallgrímskirkju á morgun,
sunnudag, kl. 17. Meðal verka á efnis-
skránni er frumflutningur á nýju verki
eftir John Speight, Missa semplice fyrir
kór, sópraneinsöngvara og hörpu,
Miserere Allegri og fleiri kórperlur.
Með kórnum leikur Elísabet Waage.
Stjórnandi er Hörður Áskelsson.
3
Reykjavíkurborg iðar af lífi í
dag, laugardag, þegar Menn-
ingarnótt er haldin í 20.
skiptið. Fastir liðir eins og
Reykjavíkurmaraþon og stórtónleik-
ar á Arnarhóli verða í stóru hlutverki
líkt og áður. Kvöldinu lýkur með flug-
eldasýningu kl. 23.
MÆLT MEÐ
1
dóttir sér um tónlist og Eva Signý Berger
um sviðsmynd og búninga.
Jafnréttisbaráttan á við í dag
„Það kemur kannski svolítið á óvart hversu
mikill texti er í verkinu. Við vinnum þó
meira abstrakt með textann en ef þetta
væri hefðbundin leiksýning. Verkinu er síð-
an skipt niður í fimm kafla og ákveðin
þemu sem tengjast Bríeti eru tekin fyrir í
hverju þeirra,“ segir hún. Anna Kolfinna
segir það jafnframt ljóst að jafnréttisbar-
átta Bríetar eigi vel við í dag.
„Það er að finna rosalega sterka tengingu
við samtímann og margt sem hún sagði eða
skrifaði á vel við umræðuna í dag. Sem
dæmi er hægt að nefna launakjör og hugs-
unarhátt. Bríet barðist náttúrlega mikið fyr-
ir menntunarmöguleikum fyrir konur, að
þær ættu þá möguleika sem þær vildu og
gætu gert það sem þær hefðu hæfileika til.
Þó það eigi kannski ekki jafnmikið við á Ís-
landi nú og það gerði þá, þá er enn verið
að heyja þá baráttu víðsvegar um heiminn,“
kveður hún. Anna Kolfinna bætir við að
lokum að verkið verði sýnt þrisvar að hátíð-
inni lokinni og verða sýningarnar í Tjarn-
arbíói.
Morgunblaðið/Eggert
Bríet Bjarnhéðinsdóttir fæddist árið
1856 á Haukagili í Vatnsdal í Austur-
Húnavatnssýslu. Hún var kosin bæjar-
fulltrúi í bæjarstjórnarkosningunum í
Reykjavík 1908 og bauð sig síðar fram
til Alþingis, fyrst kvenna. Hefði ekki
verið fyrir ný lög um útstrikanir hefði
Bríet orðið fyrsta konan til að taka sæti
á Alþingi.
Bríet hóf snemma að beita sér fyrir
auknum réttindum kvenna. Hún var til
að mynda aðeins sextán ára gömul þeg-
ar hún ritaði greinina „Nokkur orð um
menntun og rjettindi kvenna“, sem birt-
ist í Fjallkonunni árið 1885. Hún var
einn af stofnendum Hins íslenska kven-
félags 1894, hóf útgáfu á Kvennablaðinu
1895 og varð fyrst kvenna til þess að
bjóða sig fram til Alþingis.
„Fyrirlestur um hagi og rjettindi
kvenna“, sem hún flutti í Góðtempl-
arahúsinu í Reykjavík árið 1887, mun
hafa verið fyrsti opinberi fyrirlestur
kvenmanns á Íslandi og var gefinn út á
bók ári síðar. Þar benti Bríet á launa-
mun kynjanna og hvernig konur gætu
bætt stöðu sína í samfélaginu með því
að tryggja sér aukin réttindi til náms og
vinnu. Hægt er að nálgast fyrirlestur
Bríetar í riti Johns Stuarts Mills, Kúgun
kvenna. Eins er hann aðgengilegur á
vefnum bækur.is.
Mannréttinda-
frömuður