Þjóðmál - 01.06.2006, Blaðsíða 77
Þjóðmál SUmAr 2006 75
Í.frásögnum. af. átökum. fyrir. botni.Miðjarðarhafs. er. Ísraelsríkis. sjaldan. að.
góðu. getið .. Þegar. litið. er. nokkra. áratugi.
aftur. í. tímann.blasir.við.allt.önnur.mynd ..
Viðhorf. til. Ísraelsmanna. hafa. breyst.
mikið,. jafnt. á. Íslandi. sem. annars. staðar. á.
Vesturlöndum ..Fróðlegt.er.að.velta.þessar.i.
viðhorfsbreytingu.fyrir.sér,.grafast.fyrir.um.
það.hver. viðhorfin.voru,.hvernig.og.hvers.
vegna.þau.hafa.breyst .
Ljósblettur.í.mannkynssögunni
Ísraelsríki.var.stofnað.að.kvöldi.föstudagsins.14 .. maí. 1948 .. Íslendingar. voru. meðal.
fyrstu.þjóða.til.að.viðurkenna.ríkið.og.þeir.
studdu.baráttu.þess.fyrir.aðild.að.Sameinuðu.
þjóðunum ..Eins.og.kunnugt.er.kom.Thor.
Thors,.sendiherra.í.Washington.og.fulltrúi.
Íslands.hjá.Sameinuðu.þjóðunum,.nokkuð.
við.sögu.í.aðdraganda.þess.að.Ísraelsríki.var.
stofnað ..Sennilega.hefur.Íslendingur.sjaldan.
eða. aldrei. staðið. nær. miðju. í. hringiðu.
alþjóðamála.og.Thor.gerði.á.árunum.1947.
og.1948 ..Hann.vildi.að.Íslendingar.styddu.
dyggilega. við. bakið. á. Ísraelsmönnum. en.
gerði.sér.þó.glögga.grein.fyrir.því.að.deila.
þeirra.við.araba.væri.nokkuð.stór.biti.fyrir.
fámenna. þjóð. eins. og. Íslendinga .. Virtist.
honum. „engin. lausn. vera. framundan“.
og. því. „eðlilegast. að. Ísland. hefði. sig. lítt. í.
frammi. í. þessu. vandræðamáli .“1. Á. næstu.
árum. og. áratugum. reyndust. þó. fáir. eins.
staðfastir. í. stuðningi. sínum. við. Ísraelsríki.
og.Íslendingar .
Umfjöllun. íslenskra. blaða.um. Ísrael. um.
miðja.20 ..öld.markaðist.af.ríkri.samúð.með.
gyðingum .. Þar. var. Þjóðviljinn. fremstur. í.
flokki ..„Ísraelsríki.endurreist.eftir.1878.ár“,.
sagði. í. risafyrirsögn. á. forsíðu. blaðsins. 15 ..
maí.1948 ..Í.greininni.sagði.m .a .:
.
Saga.Gyðingaþjóðarinnar.er.með.endurreisn.
ríkis. hennar. í. Palestínu. orðin. ein. af.
ljósblettunum. í. mannkynssögunni,. lýsandi.
dæmi.um.mannlegan.mátt ..Landflótta,.hæddir,.
fyrirlitnir,. oftast. ofsóttir,. með. samleitunina.
[svo]. eina. að. vopni. hafa. Gyðingar. varðveitt.
og. þroskað. sína. eigin. menningu. og. lagt.
glæsilegan. skerf. til. heimsmenningarinnar ..
Landnám.þeirra.í.Palestínu,.byggt.á.sameign.
og.samvinnu,.hefur.breytt.hálfgerðri.eyðimörk.
í.blómlegustu.byggðir.Mið-Austurlanda .
Fjórum.dögum.síðar.birtist.í.Þjóðviljanum.
ritstjórnargrein. sem. hefst. með. þessum.
orðum:
.
Fáir.munu.það.vera.af.þeim,.sem.unna.frelsi.
og. menningu. og. hafa. einhverja. tilfinningu.
mannúðar,.að.þeir.ekki.samfagni.þeirri.þjóð,.
sem.lengst.hefur.verið.útlagar.á.þessari. jörð,.
er.hún.nú.eignast.föðurland.aftur ..Og.síst.sæti.
á.oss.Íslendingum.að.gleyma.því.að.samfagna.
Ísraelsmönnum .
.
Leiðarahöfundur. bætir. við. að. það. sé.
„siðferðileg.skylda.mannkynsins.að.tryggja.
þeim,.sem.eftir.lifa.af.þjóð.spámannanna.og.
Jesú. frá.Nasareth,.þjóð.Spinoza.og.Heine,.
Gunnar.Þór.Bjarnason
Ísland.og.Ísrael