Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2010, Qupperneq 18
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 4. tbl. 86. árg. 201014
Cecilie Björgvinsdóttir, cissy@hjukrun.is
ÓLÍK RÁÐNINGARFORM HJÚKRUNARFRÆÐINGA
Tímabundnir ráðningarsamningar og tímavinnusamningar hafa verið að ryðja sér
rúms á undanförnum misserum hjá hjúkrunarfræðingum. Cecilie Björgvinsdóttir,
sviðsstjóri kjara og réttindasviðs hjá félaginu, fer hér yfir helstu atriði ólíkra
ráðningarforma hjá ríki, sveitarfélögum og stofnunum sem reknar eru að meiri
hluta fyrir almannafé.
Fastráðning
Fastráðning er enn algengasta ráðningar
formið hjá fyrrgreindum stofnunum
og er það ráðningarform sem á skv.
lögum nr. 70/1996 að bjóða nýráðnum
starfsmönnum. Fyrstu þrjá mánuðina
í starfi er starfsmaðurinn á reynslutíma
nema um annað hafi verið samið. Eftir
þann tíma telst starfsmaðurinn fastráðinn.
Föst mánaðarlaun eru greidd samkvæmt
umsömdum launaflokki og starfshlutfalli.
Dagvinnu má skipuleggja á tímabilinu
kl. 08:00–17:00 frá mánudegi til föstu dags.
Vaktaálag er greitt fyrir vinnu sem unnin er
eftir kl. 17:00 á daginn og um helgar.
Yfirvinna er greidd fyrir vinnu sem fer fram
utan tilskilins daglegs vinnutíma eða vakta til
uppfyllingar vinnuskyldu eða vinna sem innt
er af hendi umfram vikulega vinnuskyldu.
Orlof. Lengd orlofs er háð aldri
einstaklingsins og getur minnst verið 24
dagar en mest verið 30 dagar. Orlofsfé er
greitt af vaktaálagi og yfirvinnu inn á bók og
kemur til greiðslu í maí ár hvert. Orlofsárið
er frá 1. maí – 30. apríl.
Veikindi. Veikindaréttur er háður starfsaldri
starfsmanns í þjónustu ríkis, sveitarfélags
eða stofnunar sem rekin er að meirihluta
fyrir almannafé. Veikindaréttur er minnstur
14 dagar en getur mest orðið 360 dagar á
hverju almanaksári.
Vinnuveitandi greiðir í fjölskyldu og
styrktar sjóð, starfsmenntunarsjóð, orlofs
sjóð og vísindasjóð.
Gagnkvæmur uppsagnartími fastráðinna
er einn mánuður á reynslutímanum og þrír
mánuðir við fastráðningu.
Tímabundin ráðning
Samkvæmt 41. gr. laga nr. 70/1996
skal ráða starfsmenn ríkisins til starfa
ótímabundið með gagnkvæmum upp
sagnar fresti. Þó er heimilt að ráða starfs
menn til starfa tímabundið, það er þá
sérstaklega tekið fram í ráðningarsamningi.
Tímabundin ráðning skal aldrei vara
samfellt lengur en í tvö ár.
Ráðningartími er skilgreindur á ráðningar
samningi með bæði upphafs og loka
dagsetningu. Ráðning fellur sjálfkrafa úr
gildi við lok samningstímans.
Föst mánaðarlaun eru greidd samkvæmt
umsömdum launaflokki og starfshlutfalli.
Dagvinnu má skipuleggja á tímabilinu kl.
08:00–17:00 frá mánudegi til föstudags.
Vaktaálag er greitt fyrir vinnu sem unnin er
eftir kl. 17:00 á daginn og um helgar.
Yfirvinna er greidd fyrir vinnu sem fer
fram utan tilskilins daglegs vinnutíma eða
vakta til uppfyllingar vinnuskyldu, eða vinna
sem innt er af hendi umfram vikulega
vinnuskyldu.
Orlof. Lengd orlofs er háð aldri einstak
l ingsins og getur minnst verið 24 dagar
en mest verið 30 dagar. Orlofsfé er greitt
af vaktaálagi og yfirvinnu inn á bók sem
kemur til greiðslu í maí ár hvert. Orlofsárið
er frá 1. maí – 30. apríl.
Veikindi. Veikindaréttur er háður starfsaldri
starfsmanns í þjónustu ríkis, sveitarfélags
eða stofnunar sem rekin er að meirihluta
fyrir almannafé. Veikindaréttur er minnstur
14 dagar en getur mest orðið 360 dagar á
hverju almanaksári. Laun greiðast þó ekki
lengur en ráðningu er ætlað að standa.
Vinnuveitandi greiðir í fjölskyldu og
styrktar sjóð, starfsmenntunarsjóð, orlofs
sjóð og vísindasjóð.
Tímabundnir ráðningarsamningar eru ekki
uppsegjanlegir nema það sé sérstaklega
tekið fram í samningnum. Þá er gagn kvæmur
uppsagnartími að öllu jöfnu einn mánuður.
Tímavinna
Einungis er heimilt að greiða tímavinnukaup
í eftirfarandi tilfellum:
Starfsmönnum sem ráðnir eru til skamms tíma
vegna sérstakra árvissra álagstíma ýmissa
stofnana, þó ekki lengur en tvo mánuði.
Starfsmönnum sem ráðnir eru til að vinna
að sérhæfðum, afmörkuðum verkefnum.
Starfsmönnum sem starfa óreglubundið
í lengri eða skemmri tíma, þó aðeins í
algjörum undantekningartilvikum.
Við ákvörðun launa námsmanna í náms
hléum skal haft samráð við stéttarfélagið.
Lífeyrisþegum sem vinna hluta úr starfi.
Tímavinnukaup í hverjum launaflokki er
0,615% af mánaðarlaunum starfsmanns.
Dagvinnukaup er greitt kl. 08:00–17:00
mánudaga til föstudaga. Yfirvinnukaup er
greitt fyrir vinnu eftir kl. 17:00 mánudaga til
föstudaga og um helgar.
Orlofsfé er greitt af öllum launum inn á
bók og kemur til greiðslu í maí ár hvert.
Orlofsárið er frá 1. maí – 30. apríl.
Veikindaréttur er háður starfsaldri
starfsmanns í þjónustu ríkis, sveitarfélags
eða stofnunar sem rekin er að meirihluta
fyrir almannafé. Veikindaréttur er minnstur
tveir dagar en getur mest orðið 30 dagar.
Laun greiðast þó ekki lengur en ráðningu
er ætlað að standa. Réttur eftirlaunaþega
skal vera einn mánuður, laun í veikindum
skal miða við meðaltal dagvinnulauna
síðustu þrjá mánuði fyrir veikindi.
Gagnkvæmur uppsagnarfrestur er einn
mánuður.