Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2010, Síða 34
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 4. tbl. 86. árg. 201030
Christer Magnusson, christer@hjukrun.is
NORRÆN SAMVINNA UM
BÖRN OG UNGLINGA
Íslenskir hjúkrunarfræðingar eru duglegir að taka þátt í erlendu samstarfi. Margar
fagdeildir hafa formleg tengsl við systurfélög sín, sérstaklega á Norðurlöndunum.
Ein samtök sem tengjast tveimur fagdeildum eru Norræn samvinna fyrir
hjúkrunarfræðinga sem vinna með börn og unglinga.
Ingrid Svensson er heilsugæsluhjúkrunar
fræðingur og starfar á heilsugæslustöðinni í
Efstaleiti. Ingrid settist í stjórn fag deildarinnar
síðastliðið haust. Vegna tungumálakunnáttu
hennar þótti ákjósanlegt að hún tæki að
sér norrænu samvinnuna. Hún er nú fulltrúi
fag deildar heilsugæsluhjúkrunarfræðinga
í samtökunum Norræn samvinna fyrir
hjúkrunarfræðinga sem vinna með börn
og unglinga.
Í NoSB (Norræn samvinna fyrir hjúkrunar
fræðinga sem vinna með börn og unglinga)
eru bæði barnahjúkrunar fræðingar og
heilsugæslu hjúkrunarfræðingar frá
Dan mörku, Finnlandi, Noregi, Svíþjóð,
Græn landi, Íslandi og Færeyjum. Þessi
samstarfs vettvangur var stofnaður 1994
en fagdeild heilsugæsluhjúkrunarfræðinga
hefur verið í norrænu samstarfi frá 1995.
Fagdeild barnahjúkrunarfræðinga var með
frá byrjun. „Venjan er sú að einn fulltrúi frá
fagdeild heilsugæsluhjúkrunarfræðinga
og einn fulltrúi barnahjúkrunarfræðinga
fari á fundina. Hentugt er að tvær deildir
séu í þessu samstarfi til að geta deilt
kostnaði og skipst á skoðunum,“ segir
Ingrid.
Fulltrúi fagdeildar barnahjúkrunarfræðinga
í NoSB er Guðrún Kristjánsdóttir en hún er
óformlegur alþjóðafulltrúi fagdeildarinnar.
Guðrún hefur tekið þátt í starfi NoSB í
mörg ár en hún var með þegar það hófst
formlega árið 1995. Fulltrúar frá hinum
Norðurlandaþjóðunum hafa samtals verið
níu en Finnland bættist við í ár.
„Markmið samstarfsins er að auka gæði
faglegrar vinnu hjúkrunarfræðinga sem
starfa við heilsugæslu og hjúkrun barna
og unglinga,“ segir Ingrid. „Við viljum líka
vera vettvangur umræðna um mál, bæði
hvað varðar fagið og stjórnun og miðla
upplýsingum um almenn mál, rannsóknir
og þróun milli Norðurlandanna. Fulltrúarnir
halda vinnufundi einu sinni á ári og
skipuleggja ráðstefnur þriðja hvert ár.
Síðasti fundur okkar var í Kaupmannhöfn
í september.“
Á vinnufundinum var meðal annars rætt
um næstu ráðstefnu en hún verður í
Ósló í Noregi í september 2011. Yfirskrift
ráðstefnunar er „Heilsa barna og unglinga
– Þroski, frávik og áskoranir“. NoSB hefur
haldið ráðstefnur síðan 1999 en 2003
var hún haldin á Íslandi. Ráðstefnurnar,
sem áttu að vera í Færeyjum 2007 og í
Svíþjóð 2009, féllu báðar niður en nú eru
menn staðráðnir í að taka upp þráðinn
að ný.
„Dagskráin er í vinnslu í norrænu
nefndinni en ég get nefnt sumt sem
verður á ráðstefnunni. Það verða sam
hliða fundir og pallborðsumræður með
efni eins og fjölskyldur og börn, verki
hjá fyrirburum og eftirfylgni fyrirbura,
heima vitjanir, þunglyndi eftir barnsburð,