Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2010, Blaðsíða 56
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 4. tbl. 86. árg. 201052
Festing á læri með frönskum rennilás kemur sér
vel til dæmis við plástursofnæmi.
kringum fistilop. Blöðrusteinar eru ekki
óal gengir og samanskroppin blaðra – lítil
blaðra eftir langvarandi veru þvagleggs.
Belgurinn á enda þvagleggsins getur ert
þvagblöðruna og valdið óþægindum,
jafnvel óróa með leka meðfram leggnum.
Nauðsynlegt getur verið að minnka
vökvamagn í belgnum til að forðast ertingu.
Bakteríur eru alltaf fylgifiskur inniliggjandi
þvagleggs en eru ekki meðhöndlaðar nema
viðkomandi hafi einkenni um sýkingu.
Umönnun sjúklinga/einstaklinga með
þvaglegg krefst hreinlætis og alúðar.
Allur frágangur og umhirða þvagleggs
og þvagpoka er mjög mikilvægur,
hvort heldur sem er sterill þvagpoki til
notkunar á sjúkrahúsi eða þvagpoki á
fótlegg sem fólk hefur í heimahúsi til að
auðvelda hreyfigetu og daglegt líf. Mjög
mikilvægt er að fræða einstaklinginn og
fjölskyldu viðkomandi um sýkingarhættu
og mikilvægi hreinlætis og handþvotts.
Handþvottur og eða handspritt er
nauðsynlegt fyrir og eftir alla snertingu
við þvaglegg eða þvagpokann.
Heilbrigðisstarfsfólk á einnig að nota
einnota hanska.
Festing þvagleggs
Festing þvagleggs á læri, fótlegg eða kvið
skiptir miklu máli til að forðast hreyfingu
og tog á legginn sem valdið getur
særindum, bæði í þvagrás, þvagblöðru
og kringum fistilop, vegna kviðþvagleggs
og kemur einnig í veg fyrir brot á slöngu.
Einnig má notast við plástur eða þar
til gerð bönd sem koma sér vel ef um
plástursofnæmi er að ræða.
Netbuxur er góður stuðningur, halda
þvagleggnum í skorðum og styðja vel við.
Ef þvagleggur er inniliggjandi um lengri
tíma er gott að breyta til og færa festingu
á milli fótleggja til verndar þvagrásinni.
Gæta verður við frágang þvagleggs hjá
karlmönnum að plástra hann ekki of stíft,
hafa svolítinn slaka, til að gefa færi á
holdrisi. Öll hreyfing á leggnum auðveldar
bakteríum leið. Sýkingaleiðir eru aðallega
á mótum þvagleggs og þvagpoka, við
þvagrásarop og við losunarventil. Tryggja
þarf frítt flæði í pokann og reglubundna
losun.
Staðsetja skal pokann fyrir neðan
blöðrustað og stút skal þurrka með
vatnsdrægum pappír. Stundum má
sjá menn ganga um með þvagpokann
hengdan upp fyrir ofan mitti eða í
skyrtutölur og sýnir það oft skort á
upplýsingum til viðkomandi. Til dæmis
hefur sést til einstaklinga við komu á
göngudeild halda á þvagpokanum í
innkaupapoka!
Góðan festibúnað þarf fyrir þvagpokann,
sérstaklega á fótlegg, með breið og
góð bönd, sem hindra að yfirfallsstútur
falli saman og gæta að þrengi ekki að.
Einnig eru til bómullarhólkar á fótlegg
sem setja má utan um pokann og styðja
vel við.
Velja þarf þvagpoka sem passar
einstaklingnum. Til eru margar gerðir.
Á sjúkrahúsum eru oftast notaðir
sótthreinsaðir A4 pokar. Passa þarf að
þvagpokinn snerti ekki gólfið.
Mikilvægt er að stytta slöngur á legg
pokanum eftir stærð og hæð einstakl
ingsins og staðsetningu þvag pokans.
Leggpoka má einnig koma fyrir á lærinu
og því nauðsynlegt að stytta slönguna
og tryggja sem besta lausn og líðan
fyrir athafnir daglegs lífs. Millistykki fylgja
sér með leggpokum og þarf að spritta
samskeyti fyrir tengingu.
Skipta skal á leggpoka á 7–10 daga
fresti. Ekki skal skipta um þvagpoka ef
einstaklingur þarfnast aðeins þvagleggs í
2–3 vikur. Þá skal hafa lokað kerfi. Ávallt
skal skipta um þvagpoka ef samskeyti
eru rofin en ekki skal rjúfa samskeyti að
nauðsynjalausu.
Næturpoka má tengja við dagpoka og
muna þarf að opna lokuventil. Næturpoka
á alls ekki að skipta út fyrir leggpoka
heldur tengja eins og að framan greinir.
Borið hefur á við útskrift einstaklinga af
sjúkrahúsi að þeir eru sendir heim með
stóran þvagpoka þar sem slöngur eru
alltof langar og ekki gert ráð fyrir að
hægt sé að stytta þær. Langar slöngur
flækjast fyrir og valda oftast miklum
óþægindum fyrir viðkomandi. Á mörgum
deildum er ekki til viðeigandi útbúnaður til
heimferðar og er það miður.
Ventill
Til eru einstaklingar sem kjósa að hafa
ventil í þvagleggnum en það gerir þá
frjálsari og gerir þeim meðal annars kleift
að fara í sund. Ávallt skal tengja nýjan
þvagpoka við þvaglegginn þegar ventill er
fjarlægður. Ef ventill er eingöngu notaður
skal skipta á honum einu sinni í viku.
Opna skal fyrir og tæma blöðruna við
þvaglátsþörf og eftir klukkuþjálfun. Forðast
skal að loka fyrir þvaglegg ef til staðar er
hiti, blóð í þvagi, þvagfærasýking eða hjá
ósjálfbjarga eða vanhæfum einstaklingi.
Þeir einstaklingar, sem útskrifast heim með
þvaglegg eða fá þvaglegg á bráðamóttöku,
fá með sér leiðbeiningar varðandi
vökvainntöku, hreinlæti og hvert skal leita,
ásamt símanúmeri, ef upp koma vandamál
tengd þvagleggnum, pokanum eða önnur
vandamál eins og hiti, blæðing eða grunur
um sýkingu. Hreinlæti er mjög mikilvægt
Frágangur þvagpoka á fótlegg.