Þjóðmál - 01.06.2010, Blaðsíða 18
16 Þjóðmál SUmAR 2010
Ímeira en tuttugu mánuði hafa fjölmiðlar verið uppfullir af fréttum um afdrif við skipta
bankanna þriggja sem féllu með fáeinna daga
millibili í byrjun október 2008 . Svo mikil sam
felld umfjöllun um eitt málefni er líkast til eins
dæmi, en að auki var skipuð sérstök rannsóknar
nefnd á vegum Alþingis sem með fjölmennu
starfs liði ritaði gríðarlanga skýrslu um fall
bankanna og þá hefur verið skipaður sérstakur
sak sóknari efnahagsbrota til að fara með rann
sókn sakamála er tengjast hinum föllnu bönkum .
Allt er þetta kunnara en frá þurfi að segja .
Fjárfestingabankinn StraumurBurðarás hf .
(Straumur) var einn af fjórum stærstu bönkum
þjóðarinnar og var oftlega nefndur í sömu
andrá og viðskiptabankarnir þrír . Straumur
stóð nokkru lengur en viðskiptabankarnir,
en svo fór að Fjármálaeftirlitið yfirtók rekstur
hans hinn 9 . mars 2009 . Því máli var harla
lítill gaumur gefinn og fram til þessa dags
hefur sagan af endalokum Straums ekki verið
sögð opinberlega . Hér verður greint frá að
drag anda þess að Fjármálaeftirlitið tók yfir
rekstur StraumsBurðaráss . Í upphafi er þó rétt
að glöggva sig á umfangi, umsvifum og hlut
hafahóp StraumsBurðaráss .
Fjárfestingabankinn
StraumurBurðarás
Stærsti hluthafi Straums var Samson Global Holdings S .a .r .l . sem fór með rúmlega
34% hlut í bankanum, en um miðjan október
2008 var röð tíu stærstu hluthafa svofelld:
1 . Samson Global Holdings S .a .r .l . – 34,31%
2 . Landsbanki Luxembourg S .A . – 21,72%
3 . Landsbanki Íslands hf . – 5,78%
4 . StraumurBurðarás fjárfestingab . hf . – 5,24%
5 . GLB Hedge – 3,66%
6 . Lífeyrissjóður verslunarmanna – 2,22%
7 . Kaupþing Ís15 – 1,70%
8 . Lífeyrissjóðir Bankastræti 7 – 1,50%
9 . Sameinaði lífeyrissjóðurinn – 1,12%
10 . Stafir lífeyrissjóður – 1,10%
Hinn 16 . október 2008 voru hluthafar í
Straumi alls 20 .039 talsins og nam hlutafé
10 .359 .144 .971 kr . að markaðsvirði . Tuttugu
stærstu hluthafar bankans áttu þá samtals
hlutafé að markaðsvirði 8 .808 .256 .924 kr ., en
það var 85,04% af hlutafé bank ans . Bankinn
var með starfstöðvar í sjö löndum; Danmörku,
Svíþjóð, Finnlandi, Bretlandi, Póllandi og
Tékklandi, auk Íslands .
Stjórn bankans var skipuð fimm mönnum .
Formaður stjórnar var Björgólfur Thor Björg
ólfsson, alþjóðlegur fjárfestir, sem hefur sér hæft
sig í fjárfestingum í lyfjaiðnaði, fjarskiptum
og fjármálafyrirtækjum, einkanlega í Austur
Evrópu, í gegnum félag sitt, Novator Partners
LLP . Varaformaður stjórnar var Birgir Már
Ragn arsson, hluthafi og einn af stjórnendum
Novators Partners LLP . Aðrir stjórnarmenn
voru Friðrik Hallbjörn Karlsson, hluthafi í
Björn Jón Bragason
Aðdragandinn að falli
StraumsBurðaráss